Sport

Lést að­eins tveimur árum eftir að hún varð Evrópu­meistari

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ciara Mageean fagnar góðum árangri með írska fánann.
Ciara Mageean fagnar góðum árangri með írska fánann. EPA/FILIP SINGER

Frjálsíþróttastjarna er látin eftir baráttu við krabbamein en fyrir aðeins tveimur árum stóð hún efst á palli á Evrópumeistaramóti.

Hin sigursæla írska millivegalengdahlaupakona Ciara Mageean er látin en hún varð 34 ára gömul. Fjölskyldan greindi frá andlátinu í færslu á Instagram.

„Klukkan 06.30 í morgun tapaði Ciara baráttunni við krabbameinið, umkringd sínum nánustu. Hún var heittelskuð dóttir, systir, eiginkona og vinkona, og hún var mörgum innblástur. Hennar verður sárt saknað,“ sagði í yfirlýsingunni.

Mageean varð Evrópumeistari í 1500 metra hlaupi svo nýlega sem árið 2024. Auk þess vann hún silfur árið 2022 og brons árið 2016. Írska hlaupakonan keppti á tvennum Ólympíuleikum.

Í fyrra greindist hún með ristilkrabbamein sem hafði dreift sér. Fyrir mánuði gekk Mageean að eiga Thomas Moran, að því er dagblaðið Belfast Telegraph greinir frá.

„Ég hef svo margt til að hlakka til. Tommy og ég höfum trúlofað okkur. Við höfðum alltaf séð fyrir okkur að gifta okkur fyrir næstu Ólympíuleika,“ sagði Mageean við norðurírska dagblaðið í júní.

Krabbameinið varð til þess að brúðkaupinu var flýtt.

Frjálsíþróttasamband Írlands minntist hlaupakonunnar í yfirlýsingu. „Athletics Ireland hefur borist sú sorgarfregn að Ciara Mageean sé látin. Ciara var afar ástsæl og hvetjandi manneskja sem snerti líf svo margra. Hugrekki hennar, hlýja og andi munu skilja eftir sig varanlega arfleifð. Hugur allra hjá Athletics Ireland er hjá fjölskyldu Ciöru, vinum og ástvinum á þessum ólýsanlega erfiðu tímum og við vottum þeim okkar dýpstu samúð,“ sagði í yfirlýsingunni.

Ástralski hlauparinn Jess Hull, silfurverðlaunahafi í 1500 metra hlaupi á Ólympíuleikunum, minntist hennar einnig:

„Það eru engin orð til. Einfaldlega fallegasta manneskja sem hugsast getur, á allan hátt. Þín verður sárt saknað, hugur okkar og ást eru hjá Tommy og fjölskyldu þinni. Ég var heppin að fá að hlaupa marga kílómetra með þér en enn dýrmætara var að fagna áföngum saman við endamarkið. Ég er svo þakklát fyrir hverja stund, hvíl í friði, Ciara.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×