Erlent

Segir af sér vegna lestarslysa

Samúel Karl Ólason skrifar
Oscar Puente í þinghúsi Spánar í kvöld.
Oscar Puente í þinghúsi Spánar í kvöld. AP/Diego Radames

Oscar Puente, samgönguráðherra Spánar, ætlar að segja af sér. Hann sagði ekki hvenær hann ætlar að láta af embætti en tilefni afsagnarinnar eru tvö mannskæð lestarslys á undanförnu ári. Slys þessi hafa leitt til spurninga um stöðu umfangsmikils og mikils notaðs lestarkerfis Spánar.

Í ávarpi á þingi undir kvöld sagðist Puente hafa tekið þessa ákvörðun strax eftir síðara slysið, sem varð þann 28. október en þá létust 69 manns. Ráðherrann vildi þó ekki segja af sér strax og vildi takast á við afleiðingar slyssins fyrst.

„Samgönguráðherra í ríki eins og Spáni getur ekki setið í embætti eftir tvö svo alvarleg slys á innan við ári,“ sagði Puente á þingi, samkvæmt frétt Reuters. Puente verður ekki í framboði í kosningum í lok mánaðarins.

Pedro Sánchez, forsætisráðherra, hefur hrósað Puente fyrir ákvörðunina.

„Hann tók ábyrgð, lagði fram lausnir og vék svo til hliðar,“ sagði Sánchez samkvæmt El País.

Fleiri þingmenn hafa hrósað Puente fyrir að segja af sér. Meðal annars hafa þeir talað um að sjaldgæft sé að ráðamenn á Spáni axli ábyrgð með þessum hætti.

Leiðtogar Fólksflokksins á Spáni hafa ekki talað á þeim nótum. Þeir segja Puente hafa hætt út af væntanlegum kosningum á Spáni. Þá sé það honum að kenna að ástand lestarkerfisins sé eins og það er.

Lestarkerfið á Spáni er mjög umfangsmikið og hefur lengi verið talið eitt af krúnudjásnum landsins. Það er næststærsta lestarkerfi heims, á eftir Kína, en í fyrra ferðuðust rúmlega 45 milljónir manna með því. Þar til fyrr á þessu ári hafði mannskætt slys ekki átt sér stað í rúma þrjá áratugi.

Rúmlega fimm hundruð manns voru um borð í lestunum tveimur í slysinu í síðasta mánuði en önnur þeirra var kyrrstæð eftir að hafa verið stöðvuð vegna tölvubilunar. Hinni var ekið á þá kyrrstæðu á miklum hraða. Báðar lestir voru á leið frá höfuðborginni Madrid suður til Sevilla í Andalúsíu.

Fjörutíu er enn á sjúkrahúsi.

Í janúar dóu 46 þegar ein lest fór af teinunum og lenti utan í annarri sem var að koma úr mótstæðri átt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×