Skoðun

Krist­rún: Rektu Daða Má fjár­málaráðherra

Einar Steingrímsson skrifar

Til forsætisráðherra

Fjármálaráðherrann þinn, Daði Már Kristófersson, ber ábyrgð á alvarlegum lögbrotum stjórnar Landsvirkjunar, sem lengi hafa verið á almannavitorði, þar sem hann hefur ekkert aðhafst vegna þessara brota. Hann virðist auk þess sjálfur hafa tekið þátt í slikum lögbrotum, með því að mæta á fundi með stjórninni sem forstjóri LV var ekki boðaður á, eins og skylt er samkvæmt 6. gr. laga um Landsvirkjun.

Hér er ekki um smámuni að ræða, því augljóst er að framferði stjórnarinnar hefur orðið þess valdandi að forstjóri fyrirtækisins taldi sig ekki geta unnið undir henni, sem virðist í fyrsta skipti sem alvarlegur ágreiningur af því tagi kom upp í tíð hans.

Það sem gerir þetta mun alvarlegra en ella er að umrædd stjórn er handvalin af ráðherranum sjálfum, að því er virðist í einhverjum annarlegum tilgangi sem þó hefur enn farið leynt hver er.

Fyrst valdi ráðherrann valnefnd sem síðar valdi tíu af þeim hundruðum sem gefa kost á sér sem stjórnarmenn í ríkisfyrirtækjum, og úr þeim tíu valdi ráðherrann fimm. Um allt ferlið ríkti leynd. Eigendur fyrirtækisins, almenningur, fékk ekki að vita á hvaða forsendum valnefndin valdi, né heldur á hverju ráðherrann byggði sitt val.

Daði Már hefur með þessu tekið sér einræðisvald til að ráðskast með þessa eign almennings, og lætur ekki einu sinni svo lítið að útskýra hvað vaki fyrir honum með þessum bolabrögðum.

Það bætir svo ekki úr skák að manneskjan sem ráðherrann gerði að stjórnarformanni kom beint úr átta ára setu í stjórn Viðskiptaráðs, sem hefur lengi haft þá stefnu að selja beri Landsvirkjun. Í ljósi þeirrar gríðarlegu spillingar sem hefur verið landlæg á Íslandi í einkavæðingu opinberra eigna alla tíð er þetta blaut tuska í andlit þess almennings sem á fyrirtækið.

Allt gerir þetta að verkum að fyllsta ástæða er til að gruna ráðherrann um að hafa óhreint mjöl í pokahorninu, og þess þá heldur sem hann er þögull sem gröfin um áformin að baki þessum myrkraverkum.

Þetta hefur staðið of lengi, og gengið of langt. Það er of seint að veita ráðherranum kurteislega áminningu um að í lýðræðisþjóðfélagi gangi svona framkoma ekki. Þú þarft að reka manninn áður en hann veldur meira tjóni, Kristrún.

Höfundur er stærðfræðingur.




Skoðun

Sjá meira


×