Skoðun

Ég er hugsi – hvar er far­sæld barnanna?

Herdís Þórsteinsdóttir skrifar

Í haust hóf ég námsleyfi og settist aftur á skólabekk við Háskóla Íslands, þar sem ég legg stund á nám í Farsæld barna. Námið er virkilega áhugavert og hefur vakið mig til umshugsunar um stöðu barna og ungmenna hér á landi. Ég hef starfað sem grunnskólakennari í 26 ár og hef því víðtæka reynslu á starfi með börnum. Undanfarið hef ég verið ansi hugsi. Hugsi yfir því hvert við stefnum sem samfélag og hvernig við ætlum í raun að standa vörð um börnin okkar. Árið 2021 voru samþykkt lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, sem tóku gildi í ársbyrjun 2022. En í fyrstu grein laga segir:

„Lögum þessum er ætlað að stuðla að farsæld barna. Meginmarkmið laganna er að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana.“

En erum við sem samfélag að standa við þessi orð?

Undanfarið höfum við heyrt af uppsögnum og niðurskurði hjá sveitarfélögum, meðal annars í þjónustu sem snýr að börnum og fjölskyldum. Ég verð að viðurkenna að mér blöskrar. Hvernig eigum við að tryggja samþætta þjónustu án hindrana ef við fækkum því fagfólki sem að á að veita hana? Fagmennska og góður vilji duga skammt ef fjármagn og mannafli eru ekki til staðar. Við tölum endalaust um snemmtæka íhlutun, forvarnir og mikilvægi þess að grípa börn áður en vandinn verður of stór. En hvað gerist þegar úrræðin vantar? Þegar fjölskyldur þurfa að bíða lengi eftir aðstoð? Þegar starfsfólk er komið að þolmörkum?

Mig langar einnig að nefna stöðu ungs fólks sem glímir við fíknivanda. Mér finnst afskaplega sorglegt að heyra af þeim átökum sem blasa við í meðferðarþjónustu hér á landi. Sjúkrahúsið Vogur gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki, plássin eru þó ekki mörg og biðlistinn langur. Aðeins örfáir einstaklingar þar einmitt núna. Hvað með þau ungmenni sem þurfa meiri og sérhæfðari aðstoð en þar er hægt að veita? Eru úrræðin nægilega mörg? Erum við að tryggja að þau fái þá hjálp sem þau þurfa, þegar þau þurfa á henni að halda? Er ekki galið að velferðarríkið Ísland eigi ekki úrræði við hæfi þegarkemur að fíknivanda ungra einstaklinga, að foreldrar þurfi að borga háar fjárhæðir og senda börn sín erlendis í viðeigandi meðferðir.

Ég geri mér fulla grein fyrir því að fjárhagur ríkis og sveitarfélaga er ekki ótakmarkaður. En erum við virkilega að spara með því að draga úr þjónustu við börn og ungmenni? Er ekki hætt við að sá sparnaður verði margfalt dýrari þegar fram líða stundir? Við sem þjóð höfum sett okkur metnaðarfull markmið með farsældarlögunum. Þar höfum við viðurkennt mikilvægi þess að kerfin vinni saman, að börn fái þjónustu við hæfi og að enginn falli á milli kerfa. En það er ekki nóg að setja falleg lög ef ekki er tryggt að hægt sé að framfylgja þeim.

Það sem veldur mér mestum áhyggjum er bilið á milli þess sem sagt er að eigi að gera og þess sem er í raun gert. Börnin okkar eiga betra skilið.

Farsæld barna má ekki vera bara falleg orð á blaði. Hún verður að sjást í verki.

Höfundur hefur starfað sem grunnskólakennari í 26 ár og stundar nú nám í farsæld barna við Háskóla Íslands.




Skoðun

Sjá meira


×