Viðskipti innlent

Reitir féllu frá sam­starfi við Art-verk

Birgir Olgeirsson skrifar
Fyrirhugað hjúkrunarheimili við Þursaholt á Akureyri á að rúma 140 íbúa. Reitir hafa fallið frá samstarfi við Art-verk um uppbygginguna.
Fyrirhugað hjúkrunarheimili við Þursaholt á Akureyri á að rúma 140 íbúa. Reitir hafa fallið frá samstarfi við Art-verk um uppbygginguna.

Reitir hafa fallið frá samstarfi við Art-verk um byggingu 140 rýma hjúkrunarheimilis á Akureyri. Jarðvinna stendur yfir og Reitir munu leita til annarra aðila um framhald verkefnisins.

Þetta staðfestir Lára Hilmarsdóttir, samskiptastjóri Reita, í svari við fyrirspurn Vísis.

„Jarðvinna stendur yfir um þessar mundir og félagið mun leita til samstarfs við aðra aðila um framhald verkefnisins,“ segir Lára.

Art-verk hefur verið aðalverktaki við byggingu Radisson RED-hótelturnsins við Skúlagötu í Reykjavík. Þar voru framkvæmdir stöðvaðar á mánudaginn og verktökum gert að yfirgefa byggingarsvæðið.

Kynntu samstarfið í júní

Reitir tilkynntu um fyrirhugað samstarf við Art-verk 15. júní síðastliðinn, þegar tilboð fasteignafélagsins í hjúkrunarheimilið hafði verið metið hagstæðast af Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum.

Þá kom fram að Reitir myndu vinna að hönnun og framkvæmdum með Art-verk. Byggja ætti heimilið með samblandi af forsmíðuðum og forsteyptum einingum.

Hjúkrunarheimilið á að rísa við Þursaholt 6 á Akureyri, verða um 9.100 fermetrar og rúma 140 íbúa.

Í september tilkynntu Reitir að samningur við Framkvæmdasýsluna – Ríkiseignir hefði verið gerður. Að framkvæmdum loknum tekur við leigusamningur til 25 ára. Heilsuvernd mun annast rekstur hjúkrunarheimilisins en fyrirtækið rekur þegar Hlíð og Lögmannshlíð á Akureyri.

Arion segir unnið að lausn við Skúlagötu

Samkvæmt heimildum RÚV fengu verktakar við hótelturninn þau svör á mánudaginn að viðskiptabanki Rauðsvíkur, sem stendur að uppbyggingunni, hefði lokað fyrir frekari fjármögnun verkefnisins. Miðillinn greindi einnig frá vatnstjóni á herbergiseiningum fyrr á árinu.

Arion banki staðfesti í svari við fyrirspurn Vísis fyrr í dag að bankinn væri veðhafi í hótelverkefninu og að unnið væri að lausn málsins.

Eins og Vísir greindi frá námu skuldir S26 Hotel, félagsins sem á hótelbygginguna, rúmum tíu milljörðum króna í lok síðasta árs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×