Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gull hækkar í verði Gull hefur aldrei verið verðmætara. Heimsmarkaðsverð á gulli sló met á föstudaginn þegar verðið á gulli náði 1260 dollurum á únsuna. Svo virðist sem fjárfestar leiti frekar í góðmálma en hlutabréf á þessum erfiðu tímum í efnhagslífi heimsins. 20.6.2010 20:04
SSB ræddi þjófnað á arði við Íslandsbankastjóra Í síðustu viku átti stjórn Samtaka stofnfjáreigenda í Byr (SSB) tveggja tíma fund með Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka, og tveimur lögfræðingum bankans. Meðal annars var rætt um meintan þjófnað Glitnis af arði stofnfjárbréfa í Byr sem keypt voru í janúar 2008. 20.6.2010 12:20
Gengisdómur hefur lítil áhrif á lausafjárstöðu bankanna Aðeins í undantekningatilvikum mun leiðrétting á höfuðstól gengistryggðra lána leiða til útgreiðslu hjá fjármálafyrirtækjum og því hefur nýlegur hæstaréttardómur lítil áhrif á lausafjárstöðu þeirra. Þetta er mat Seðlabanka Íslands. Enn er algjör óvissa um lögmæti húsnæðislána bankanna í erlendri mynt. 18.6.2010 18:30
Danske bank: Stjórnmálamenn brugðust en ekki markaðurinn „Það voru stjórnmálamennirnir sem brugðust, ekki markaðurinn“, sagði Lars Christensen, yfirmaður greiningardeildar Danske bank, þegar hann skýrði bankahrunið á Íslandi haustið 2008. 18.6.2010 19:50
Íslandsbanki Fjármögnun frestar greiðsluseðlum Vegna óvissu sem ríkir um hvernig endurreikna skal höfuðstól og mánaðarlegar greiðslur af gengistryggðum bílalánum og bílasamningum í kjölfar dómsúrskurðar Hæstaréttar þann 16. júní síðastliðinn hefur Íslandsbanki Fjármögnun hefur ákveðið að fresta útsendingu greiðsluseðla vegna gengistryggðra bílalána og bílasamninga um næstu mánaðarmót. 18.6.2010 19:29
Mesta hækkun GBI visitölunnar á einum degi Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 1,2% í dag í 16,5 milljarða kr. viðskiptum og er þetta mesta dagshækkun vísitölunnar það sem af er ársins. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 1,5% í 9,1 milljarða kr. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,6% í 7,4 milljarða kr. viðskiptum. 18.6.2010 16:02
Sumardofi í fasteignasölu á höfuðborgarsvæðinu Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 11. júní til og með 17. júní 2010 var 35. Þetta eru töluvert færri samningar en nemur meðaltali undanfarinna 12 vikna en á þeim tíma hefur fjöldi samninga verið 49 talsins á viku. 18.6.2010 14:37
Landsbankastjóri sér tækifæri í Hæstaréttardómi Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans segir að hann telji mikilvægt að bankinn nýti sér það tækifæri sem felst í nýlegum dómum Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggingar lána. Tækifærið sé fólgið í að móta sér afstöðu sem bankinn getu staðið við jafnt gagnvart viðskiptavinum og stjórnvöldum með því að leggja sitt af mörkum til þess að leysa þetta erfiða deilumál. 18.6.2010 14:18
Lýsing sendir ekki út greiðsluseðla fyrir júlí Lýsing ásamt öðrum fjármálafyrirtækjum vinnur að því að leiðrétta höfuðstól bílasamninga í samræmi við nýfallinn dóm Hæstaréttar. Lýsing mun ekki senda út greiðsluseðla með gjalddaga í júlí vegna bílasamninga í erlendri mynt fyrr en það liggur fyrir hvernig útreikningum skal háttað. 18.6.2010 12:37
Avant sendir ekki út innheimtuseðla Vegna dóms Hæstaréttar um ólögmæti bílalána/samninga í erlendri mynt hefur skapast óvissa um hvernig farið skuli með slík lán varðandi endurútreikning og uppgjör. Avant hf. mun því ekki senda út innheimtuseðla vegna þessara lána/samninga þar til fyrir liggur hvernig staðið verður að útreikningi þeirra og innheimtu til framtíðar. 18.6.2010 12:29
SP gerir tímabundið hlé á innheimtuaðgerðum SP-Fjármögnun hefur ákveðið að gera tímabundið hlé á innheimtuaðgerðum sínum. Kemur þetta í kjölfar dæma Hæstaréttar þar sem gengistrygging á bílalánum er sögð ólögleg. 18.6.2010 12:11
Frjálsi segir gengisdóm hafa takmarkað fordæmisgildi „Slitastjórn Frjálsa fjárfestingabankans mun fara vandlega yfir dómsniðurstöðu Hæstaréttar vegna gengistryggðra bílalána og fylgjast með þeim skrefum sem stjórnvöld og Alþingi hyggjast taka í málinu á næstu dögum. Frjálsi fjárfestingarbankinn áréttar að hann var ekki aðili málsins og gerði ekki samninga sambærilega við þá sem voru til meðferðar í framangreindum Hæstaréttardómum. Niðurstaðan hefur því takmarkað fordæmisgildi hvað varðar lánasamninga bankans." 18.6.2010 11:49
SPRON segir gengisdóm hafa takmarkað fordæmisgildi Slitastjórn SPRON mun fara vandlega yfir dómsniðurstöðu Hæstaréttar vegna gengistryggðra bílalána og fylgjast með þeim skrefum sem stjórnvöld og Alþingi hyggjast taka í málinu á næstu dögum. 18.6.2010 11:25
Greining: Spáir 6% verðbólgu í júní Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) í júní verði óbreytt frá maímánuði. Ef spáin gengur eftir mun verðbólga minnka úr 7,5% í 6,0%. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningarinnar. 18.6.2010 11:00
ESB segir Íslandi að lausn Icesave er skilyrði fyrir aðild Financial Times segir að ESB hafi tjáð Íslandi að landið fengi ekki aðild að ESB fyrr en búið væri að ganga frá lausn á Icesavedeilunni við Breta og Hollendinga. Þetta kemur fram í uppkasti að yfirlýsingu frá leiðtogum ESB á fundi þeirra í gærdag þar sem samþykkt var að hefja aðildarviðræður við Ísland. 18.6.2010 10:10
OECD: Aðeins Írland með lægri fyrirtækjaskatt en Ísland Fyrirtækjaskattur á Íslandi nemur nú 18% en það er næstlægsta skattahlutfallið af löndunum innan OECD. Aðeins á Írlandi er fyrirtækjskatturinn lægri en þar er hann 12,5%. 18.6.2010 08:15
Arion banki ætlar ekki að birta uppgjör Arion banki verður eini stóri viðskiptabankinn sem mun ekki birta ársfjórðungsuppgjör fyrir tímabilið janúar til mars. 17.6.2010 14:43
Fréttaskýring: Staða flestra lífeyrissjóðanna neikvæð Hvaða áhrif mun erfið staða lífeyrissjóðanna hafa á þá sem eiga réttindi í sjóðunum? 17.6.2010 05:45
Bankar og sjóðir stýra fluginu Lífeyrissjóðir, Íslandsbanki og Landsbankinn munu eignast nær allt hlutafé í Icelandair Group eftir hlutafjáraukningu þess og breytingu skulda í hlutafé á næstu vikum. 17.6.2010 02:00
Gengi hlutabréfa Össurar lækkaði um 0,83 prósent Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar lækkaði um 0,83 prósent í Kauphöllinni í dag. Gengi hlutabréfa annarra félaga hreyfðist ekki. 16.6.2010 16:18
SA: Vísitala efnahagslífsins enn við lægstu mörk Aðstæður í efnahagslífinu eru nú slæmar að mati 87% stjórnenda í stærstu fyrirtækjum landsins, 1% telja þær góðar en 12% telja aðstæður hvorki góðar né slæmar. 16.6.2010 13:58
Seðlabankinn á 73% hlut í Sjóvá Seðlabankinn á nú 73% hlut í tryggingarfélaginu Sjóvá. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra á Alþingi við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur þingmanns Framsóknarflokksins um Sjóvá. Aðrir eigendur eru Íslandsbanki og SAT. 16.6.2010 13:47
Farið fram á gjaldþrotaskipti hjá BGE ehf. Farið hefur verið fram á að BGE eignarhaldsfélag verði tekið til gjaldþrotaskipta en félagið hélt utan um 1,64% hlut í Baugi Group. 16.6.2010 12:28
Bílaleiga Akureyrar kaupir 30 Kia bíla af Öskju Bílaleiga Akureyrar hefur samið við Bílaumboðið Öskju um kaup á liðlega 30 nýjum Kia bifreiðum sem afhentar verða á næstu vikum. Eins og fram hefur komið í sölutölum Bílgreinasambandsins hefur sala á nýjum bílum tekið að glæðast undanfarið og má meðal annars rekja það til þess að bílaleigurnar hafa verið að endurnýja flota sína fyrir sumarið. 16.6.2010 12:00
Greining: Kaupin á evrubréfum tvímælalaust jákvæð Greining Íslandsbanka segir að kaup ríkisins á evrubréfum sem tilkynnt var um í morgun sé tvímælalaust jákvæð aðgerð að hennar mati. 16.6.2010 11:50
SA: Snúa verður hallarekstri ríkissjóðs yfir í afgang Einn meginþátturinn í endurreisn íslensks efnahags er að snúa hallarekstri ríkissjóðs við þannig að afgangur verði á rekstrinum. Þetta sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA), á morgunverðarfundi SA í morgun þar sem nýtt rit SA um nauðsynlegar umbætur í fjármálum hins opinbera var kynnt. 16.6.2010 11:40
Microsoft hefur gefið út Office 2010 hugbúnaðinn Microsoft hefur gefið út nýjustu útgáfu Office-skrifstofuhugbúnaðarins, Microsoft Office 2010. Þar með er komin út ný kynslóð algengustu skrifstofuforrita sem notuð eru í heiminum; forrita á borð við ritvinnsluforritið Word, töflureikninn Excel, glæruforritið PowerPoint og samskiptaforritið Outlook, svo nokkur séu nefnd. 16.6.2010 11:17
Ríkið vill kaupa skuldabréf í evrum fyrir 47 milljarða Birt hefur verið tilkynning þess efnis að Ríkissjóður Íslands bjóðist til þess að leysa til sín skuldabréf sem gefin voru út í evrum og eru með gjalddaga árin 2011 og 2012. 16.6.2010 10:29
Margeir: Bankaskattur á þá sem ekki fengu fyrirgreiðslu fráleitur Margeir Pétursson, stjórnarformaður MP Banka, segir að bankaskattur á fjármálafyrirtæki sem hafi ekki fengið afslætti eða fyrirgreiðslu eins og föllnu bankarnir sé fráleitur. 16.6.2010 10:17
Eignir tryggingarfélaga hækkðu um 310 milljónir í apríl Heildareignir tryggingarfélaganna námu 137,5 milljörðum kr. í lok apríl og hækkuðu um 310 milljónir kr. milli mánaða. 16.6.2010 08:58
FME gerir athugasemdir við starfsemi Sparnaðar ehf. Fjármálaeftirlitið (FME) hefur birt á vefsíðu sinni ýmsar athugasemdir sem eftirlitið hefur gert við starfsemi Sparnaðar ehf. Fram kemur að unnið er að endurbótum á starfseminni. 16.6.2010 08:20
Aðeins einn lífeyrissjóður með jákvæða stöðu Aðeins einn almennur lífeyrissjóður af 24 slíkum er með jákvæða tryggingafræðilega stöðu. Hér er um Lífeyrissjóð starfsmanna Búnaðarbankans að ræða en staða hans er jákvæð um 13,5%. 16.6.2010 08:07
Staða opinberra lífeyrissjóða neikvæð um 57% Tryggingafræðileg staða opinberra lífeyrissjóða er neikvæð um 57%. Enginn af þessum 16 lífeyrissjóðum er með jákvæða stöðu og hefur svo verið um langt árabil. 16.6.2010 07:56
Vísitala íbúðaverðs í borginni hækkaði um 1,9% í maí Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 308,9 stig í maí 2010 og hækkar um 1,9% frá fyrra mánuði. 16.6.2010 07:44
Milljónasamningur í höfn Bandaríska fyrirtækið Ticketmaster hefur tekið í notkun farsímaviðmót frá íslenska sprotafyrirtækinu Mobilitusi. Viðmótið var tekið í notkun í Bandaríkjunum í gær, en síðan verður bætt við nýju landi hálfsmánaðarlega fram á haust. 16.6.2010 06:00
Slitasjórn Straums vill rifta samningi við Íbúðalánasjóð Slitastjórn Straums telur að samningur sem Íbúðalánasjóður gerði við fjárfestingarbankann eftir fall bankanna í október 2008 fela í sér ívilnun fyrir sjóðinn og krefst riftunar á honum. 16.6.2010 04:15
LV kaupir í Icelandair fyrir milljarð Í dag gerði Lífeyrissjóður verzlunarmanna bindandi samkomulag við Icelandair Group hf. um að sjóðurinn muni fjárfesta í fyrirtækinu fyrir 1 milljarð króna og eignast með því 12% hlut í félaginu. Lífeyrissjóður verzlunarmanna mun skrá sig fyrir 400 milljónum nýrra hluta á genginu 2,5 – alls fyrir 1 milljarð króna, segir í tilkynningu. 15.6.2010 16:42
Meðaldagur á skuldabréfamarkaðinum Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,1% í dag í 9,3 milljarða kr. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,3% í 2 milljarða kr. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,1% í 7,3 milljarða kr. viðskiptum. 15.6.2010 16:14
Mál Dekabank gegn íslenska ríkinu fær dómsmeðferð Hæstiréttur hefur fellt úr gildi úrskurð héraðsdóms og dæmt að þýski bankinn Dekabank eigi að fá efnismeðferð í héraðsdómi í máli sínu gegn íslenska ríkinu. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði úrskurðað að málinu bæri að vísa frá dómi. 15.6.2010 16:06
Guðmundur segir nýtt mat S&P ekki koma á óvart Guðmundur Bjarnason, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, segir nýtt lánshæfismat Standard & Poors (S&P) ekki koma á óvart. 15.6.2010 12:10
Spáir meiri samdrætti þjóðarútgjalda en aðrir Hagstofan gerir ráð fyrir að þjóðarútgjöld muni dragast saman um 3,3% á árinu sem er nokkuð meira en sá samdráttur sem bæði Seðlabankinn (SÍ) sem og ASÍ reikna með. Þannig hljóðar spá SÍ upp á 1,9% samdrátt í þjóðarútgjöldum en ASÍ upp á 1,5% samdrátt. 15.6.2010 11:52
Erlend kortavelta í maí langt yfir meðaltali ársins Glögglega má sjá af tölum um úttektir erlendra debet- og kreditkorta hér á landi í maí að farfuglarnir eru komnir til landsins og ferðamannatímabilið er hafið. Þannig nam heildarúttekt erlendra korta hér á landi 3,1 milljörðum kr. í maí sem er langt yfir meðaltali síðustu mánaða, en fyrstu fjóra mánuði ársins nam erlend kortavelta hér á landi 2,4 milljarði kr. á mánuði. 15.6.2010 11:25
Hagstofan spáir 4% verðbólgu í lok ársins Hagstofan spáir því að verðbólga verði 6,0% að meðaltali í ár en komin í um 4,0% í lok ársins. Spáð er áframhaldandi hjöðnun verðbólgu árið 2011 og að hún verði á verðbólgumarkmiði (2,5% innsk. blm.) að meðaltali árið 2012. 15.6.2010 11:14
Hagstofan spáir miklum samdrætti í samneyslunni Hagstofan áætlar að samneysla dragist áfram saman á komandi árum. Í nýrri þjóðhagspá Hagstofunnar er gert ráð fyrir að samneysla hins opinbera dragist saman að raunvirði árið 2010 og að samdrátturinn nemi 3,8% á milli ára. Árið 2011 er reiknað með að raunsamdrátturinn nemi 3,8% og 1,8% árið 2012. Samdrátturinn er bæði hjá ríki og sveitarfélögum. 15.6.2010 11:06
Yfir 50% útlána Byggðastofnunnar eru gengistryggð lán Nú eru 53% lántakenda Byggðastofnunar með erlend lán eða 268 af 509 lántakendum. Gengistryggð útlán Byggðastofnunar stóðu í 9,9 milljörðum kr. 30. júní 2008 en voru komin í 16,1 milljarð kr. í árslok 2008. Að mati Byggðastofnunar var staðan svipuð í árslok 2009. 15.6.2010 10:27