Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nýjar neysluvísbendingar sýna vöxt í landsframleiðslunni Greining Arion banka segir að nýjustu neysluvísbendingar bendi nú til jákvæðs viðsnúnings á vexti landsframleiðslunnar. Þar á greiningin við nýjar tölur um kortaveltu landsmanna en kortaveltan gefur ágætis vísbendingu um stefnu einkaneyslunnar. 15.9.2010 07:52
Veitir 117 milljónum til rannsókna við Hellisheiðarvirkjun Orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur ákveðið að veita liðlega eina milljón dollara, eða um 117 milljónum kr. í styrk til vísindarannsókna sem tengjast CarbFix kolefnisbindingarverkefninu við Hellisheiðarvirkjun. 15.9.2010 07:42
Hagar minnka um þriðjung með sölu 10/11 Verslanir 10-11 hafa verið teknar út úr Haga-samstæðunni og verða þær settar í opið söluferli á næstu mánuðum. Þetta jafngildir því að Hagar verði í kringum þrjátíu prósentum minni en áður. Matvöruverslanir Haga verða eftir þetta 38 í stað 61. 15.9.2010 06:00
PwC vanrækti skyldur sínar Endurskoðunarfyrirtæki PricewaterhouseCoopers (PwC) brást starfsskyldum sínum og sýndi af sér vítaverða vanrækslu sem endurskoðandi Glitnis í aðdraganda bankahrunsins. Þetta er mat Franks Attwood, sem var varaformaður siðanefndar Alþjóðasamtaka endurskoðenda þar til um síðustu áramót. 15.9.2010 05:30
Segir VÍS hafa verið strípað af eigendum sínum Vátryggingarfélag Íslands var strípað af eigendum sínum segir löggiltur endurskoðandi. Eignir fyrir um þrjátíu milljarða króna voru teknar út úr félaginu á þriggja ára tímabili. Endurskoðandinn efast um lögmæti þess gjörnings og um starfshætti Fjármálaeftirlitsins sem lagði blessun sína yfir hann. Tryggingafélagið segir ekkert hæft í þessu. 14.9.2010 18:37
10-11 verslanirnar seldar Ákveðið hefur verið að færa rekstrarfélag 10-11 út úr Hagasamstæðunni og selja það í opnu söluferli. Undirbúningur er þegar hafinn að sölu 10-11 verslananna og gert er ráð fyrir að fyrirtækið fari í sölu á næstu mánuðum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Arion banka. 14.9.2010 16:02
Baldur ráðinn mannauðsstjóri Landsbankans Baldur G. Jónsson hefur verið ráðinn mannauðsstjóri Landsbankans, samkvæmt tilkynningu frá bankanum. 14.9.2010 13:34
Leigusamningum fjölgaði um helming Heildarfjöldi leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu jókst um 48% í ágúst frá fyrri mánuði, samkvæmt tölum Þjóðskrár. Alls var 1245 samningum þinglýst í mánuðinum sem er 5,3% meira en í sama mánuði í fyrra. Í ágúst árið 2008 var 936 samningum þinglýst og nemur fjölgunin frá þeim tíma því um 25%. 14.9.2010 12:27
Glitnir vill 1900 milljónir frá norsku sjávarútvegsfyrirtæki Skilanefnd Glitnis hefur stefnt norska sjávarútvegsfyrirtækinu Aker Seafoods og krefst 99 milljóna norskra króna eða sem nemur um 1900 milljónum 14.9.2010 09:45
Nýsköpun: Íslendingar eftirbátar nágranna sinna Ísland mælist í einu af neðstu sætunum hvað varðar nýsköpun þegar kemur að samanburði við hin Norðurlöndin. Norræna nýsköpunarvogin, sem nýlega var gefin út af Norrænu ráðherranefndinni leiðir þetta í ljós. Í tilkynningu frá nefndinni er bent á að yfirleitt komi Ísland vel út úr alþjóðlegum samanburði á frumkvöðlastarfsemi og því komi niðurstöðurnar nokkuð á óvart. 14.9.2010 08:46
Bú Straums var fremur lítið Skilanefnd Glitnis gerir ráð fyrir að kröfuhafar taki við stjórn bankans á næstu fimm árum. 14.9.2010 05:00
FFSÍ gagnrýnir kaup á Vestia Stjórn Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, FFSÍ, telur að stjórn Framtakssjóðs lífeyrissjóða hafi farið út fyrir hlutverk sitt með kaupum á Vestia af Landsbankanum. 14.9.2010 03:00
Allt að átján prósenta munur Launabil hjá starfsmönnum almannaþjónustunnar og þeim á almenna vinnumarkaðnum í sambærilegum starfsgreinum er 18 prósent. 14.9.2010 02:00
Segir spákaupmenn ráða öllu á íslenska skuldabréfamarkaðinum „Spákaupmenn eru allsráðandi á markaðnum. Þeir hafa tekið stórar stöður í löngum ríkistryggðum bréfum og ýkja þar með kröfulækkun þeirra bréfa.“ 13.9.2010 17:09
Áfram verðhækkanir á skuldabréfamarkaði Áfram miklar verðhækkanir á skuldabréfamarkaði í mikilli veltu. Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,8% í dag í 25,6 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 1% í 14,6 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,2% í 9,6 ma. viðskiptum. 13.9.2010 16:18
Atvinnuleysi minnkaði um 3,8% Skráð atvinnuleysi minnkaði um 3,8% í ágúst miðað við fyrri mánuð, eða um 473 manns að meðaltali, samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. 13.9.2010 12:36
Kortavelta: Mesta aukning frá hruni Kreditkortavelta nam 26,9 milljörðum króna í ágúst og jókst um 1,4 milljarða frá fyrri mánuði. Í Morgunkorni Íslandsbanka segir að borið saman við ágúst í fyrra nemi aukningin 13,6 prósentum í krónum talið en að raungildi jókst kreditkortavelta um 10,9%. 13.9.2010 11:45
Nýsköpunarsjóður selur eignarhluti sína í Sjávarleðri Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og hið nýstofnaða hlutafélag Roðskinn ehf. tilkynntu í dag samkomulag um kaup Roðskinns á öllum eignarhlutum sjóðsins í Sjávarleðri hf. á Sauðárkróki, tæplega 50%. Í tilkynningu frá sjóðnum segir að Roðskinn sé í eigu sömu aðila og Norðurströnd ehf. á Dalvík, en Norðurströnd átti fyrir rúmlega 30% í félaginu. 13.9.2010 10:54
Jón Ásgeir hafnar ásökunum um stuld Telji slitastjórnin að við höfum stolið peningum frá Glitni, ber henni að kæra málið til lögreglu en ekki ferðast með það til New York, segir Jón Ásgeir Jóhannesson sem segir fullyrðingu þar um, ekki standast skoðun. Hann bendir á að rannsóknarfyrirtækið Kroll hafi ekki fundið neina falda sjóði, þrátt fyrir rúmlega 12 mánaða leit. 12.9.2010 18:30
Telur skynsamlegt að endurvekja Þjóðhagsstofnun Uppgjörsnefnd Alþingis á bankahruninu vill að stofnuð verði sjálfstæð ríkisstofnun sem hafi það hlutverk að greina efnahagslífið líkt og Þjóðhagsstofnun gerði. Fyrrverandi forstjóri stofnunarinnar telur skynsamlegt að endurvekja hana í einhverri mynd. 12.9.2010 12:15
Nógu hafa þeir stolið Slitastjórn Glitnis hefur lagt fram fjöldan allan af sönnunargögnum fyrir dómstóli í New York í tengslum við hundruð milljarða króna skaðabótamál á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Hannesi Smárasyni og fleirum. Slitastjórn Glitnis segir að kostnaður hinna stefndu vegna málareksturs í New York sé smávægilegur í samanburði við þær háu upphæðir sem slitastjórnin segir þá hafa stolið frá bankanum. 11.9.2010 19:14
Fylgja eftir málarekstrinum í New York Glitnir svaraði í gær í New York frávísunarkröfum sem Jón Ásgeir Jóhannesson og aðrir, sem stefnt var í máli bankans í New York, lögðu fram í júlí. Í svari sínu ítrekaði Glitnir þann eindregna ásetning sinn að fylgja eftir málarekstrinum í New York, enda væri hann liður í viðleitni bankans um heim allan til að endurheimta eignir í þágu kröfuhafa bankans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá slitastjórn Glitnis. 11.9.2010 16:37
Ýta af stað keðjuverkun verðhækkana Sigurður Bessason, formaður Eflingar, segir að boðaðar hækkanir Orkuveitu Reykjavíkur muni ýta af stað keðjuverkun verðhækkana sem á endanum muni lenda á almenningi í landinu. 11.9.2010 14:45
Vill rifta samkomulagi VBS og Landsbankans Landsbankinn tók til sín nokkrar af verðmætustu eignum VBS fjárfestingarbanka, að fjárhæð 4,3 milljörðum króna, nokkrum mánuðum áður en VBS fór í þrot. Slitastjórnin vill rifta þessari greiðslu og verður tekin ákvörðun um málshöfðun á næstu vikum. 11.9.2010 12:15
Fullvissa sig um fjármögnunina Ekki hefur enn verið ákveðinn fundardagur fyrir stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Gert er ráð fyrir að þriðja endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands og sjóðsins verði tekin fyrir á fundi stjórnarinnar í þessum mánuði. 11.9.2010 08:00
GAMMA: Góð vika í Kauphöllinni Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,1% í dag í 26,8 ma. viðskiptum sem er næst veltumesti dagur ársins. 10.9.2010 16:12
Skuldsetning og gjaldeyrisbrask helsti vandi OR Fjárhagsvandi Orkuveitunnar stafar af of mikilli skuldsetningu og spákaupmennsku með gjaldeyri. Gjaldskrá fyrirtækisins þarf að hækka enn frekar ef fyrirtækið á að komast út úr fjárhagsvandanum, að mati Greiningar Arion banka. 10.9.2010 12:13
Nauðungarsölur fasteigna orðnar jafnmargar og allt árið í fyrra Í lok ágúst 2010 höfðu 205 fasteignir verið seldar nauðungarsölu hjá sýslumanninum í Reykjavík á árinu. Þetta er nánast sami fjöldi og allt árið í fyrra þegar 207 fasteignir voru seldar nauðungarsölu. 10.9.2010 11:24
Hrein eign lífeyrissjóða jókst um 10,6 milljarða í júlí Hrein eign lífeyrissjóða í lok júlí sl. var 1.835 milljarðar kr og hækkaði hún um 10,6 milljarða kr í mánuðinum. Sé miðað við júlí 2009 hefur hrein eign lífeyrissjóða hækkað um 141,4 milljarða kr. 10.9.2010 09:25
Taprekstur hins opinbera tæpir 150 milljarðar í fyrra Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 149 milljarða króna árið 2009, eða sem nemur 9,9% af landsframleiðslu og 24,3% af tekjum þess. Til samanburðar var tekjuafkoman neikvæð um 13,5% af landsframleiðslu 2008 en jákvæð um 5,4% árið 2007. 10.9.2010 09:03
Nýir eigendur Straums reikna með 47% endurheimtum Hinir nýju eigendur Straums reikna með að endurheimtur þeirra úr þrotabúi bankans muni nema um 47% sem þýðir að þeir reikna með að fá rúmlega 90 milljarða króna til baka. 10.9.2010 08:09
Greining býst við verulegum frekari gjaldskrárhækkunum OR Greining Arion banka segir að endurskipulagning Orkuveitu Reykjavíkur (OR) muni meðal annars krefjast þess að verulegar frekari gjaldskrárhækkanir komi til, Reykjavíkurborg leggi til aukið eigiðfé og lán verði endurfjármögnuð. 10.9.2010 07:09
Bankarnir ákváðu kaupin „Ég tók enga ákvörðun um það ásamt Björgvin [innskot blm: G. Sigurðssyni, þá viðskiptaráðherra], að kaupa þessi skuldabréf," segir Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Hann bendir á að í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis komi skýrt fram að bráðabirgðastjórnir nýju bankanna hafi ákveðið að kaupa eignir peningamarkaðssjóða rekstrarfélaga þeirra með hliðsjón af verðmati óháðra endurskoðenda. 10.9.2010 06:30
Slitameðferð Straums lokið Lánadrottnar hafa tekið við eigum Straums fjárfestingarbanka af skilanefnd bankans. Á fréttavefnum Financial Times kemur fram að þessi atburðarrás gæti sett fordæmi fyrir slitameðferð stóru bankana þrjá sem féllu í október 2008. 9.9.2010 20:26
Svaraði athugasemdum vegna gagnavera Fjármálaráðherra sendi í dag hagsmunasamtökum þeirra sem reka gagnaver svar í dag vegna óska þeirra um skattaívilnanir vegna reksturs gagnavera hér á landi. Fréttir hafa borist af því undanfarna daga að fyrirtæki sem hugðust reka gagnaver hér á landi væru farin að hugsa sinn gang. Ástæðan væri óhagstætt skattaumhverfi. 9.9.2010 19:15
Laun í bankakerfinu helmingi hærri en annarsstaðar Laun í bankakerfinu eru uppundir helmingi hærri en laun á almennum vinnumarkaði hér á landi. Meðallaun í stóru bönkunum þremur nema um hálfri milljón á mánuði, en laun sérfræðinga og stjórnenda hífa meðaltalið verulega upp. 9.9.2010 18:30
GAMMA: Talsverð velta í Kauphöllinni í dag Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 1% í dag í 24,7 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 1,3% í 17,6 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,1% í 7,1 ma. viðskiptum. 9.9.2010 16:14
Skuldatryggingarálagið lækkar hér en hækkar í Evrópu Skuldatryggingarálag á evruskuldir Ríkissjóðs Íslands hefur verið nokkuð stöðugt upp á síðkastið. Íslandsbnaki bendir á það í Morgunkorni sínu að við lok dags í gær hafi álagið staðið í 315 punktum (3,15%) samkvæmt gögnum úr Bloomberg-gagnaveitunni. 9.9.2010 13:44
Seðlabankinn mótmælir afstöðu slitastjórnar Seðlabanki Íslands hefur andmælt afstöðu slitastjórnar Icebank til krafna upp á yfir 200 milljarða króna en nú tekur við formlegt sáttarferli í málinu. Náist ekki að semja verður málinu vísað til dómstóla. 9.9.2010 12:06
Hagar keyptu eigin bréf af stjórnendum fyrir milljarð Hagar keyptu eigin bréf af helstu stjórnendum félagsins fyrir rúman milljarð. Þá vildu helstu lífeyrissjóðir landsins ekki fjárfesta í Högum með Jóhannes Jónsson innanborðs. 9.9.2010 11:49
Engin metvelta í Kauphöllinni í gær Velta á skuldabréfamarkaði í gær var ekki sú mesta frá áramótum. Í tilkynningu frá Nasdaq OMX Iceland kemur fram að veltan í gær var 25,4 milljarðar en ekki tæpir 29 milljarðar eins og ranghermt var á Vísi í gær. Veltumesti dagurinn hingað til á árinu er því enn 12. mars, þegar veltan var rúmir 26 milljarðar. 9.9.2010 11:39
Deutsche Bank gæti létt á erlendum skuldum Íslands um 10% Leiða má góðar líkur að því að Deutsche Bank sé að létta á erlendri skuldastöðu íslenska þjóðarbúsins um 10% eða 300 milljarða kr. 9.9.2010 07:13
Ísland fellur um sex sæti í samkeppnisvísitölu Ísland er nú í 31. sæti í samkeppnisvísitölu Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum) 2010-2011 en var í 26. sæti fyrir ári síðan. Samkeppnishæfnivísitalan byggir á opinberum upplýsingum og könnun sem gerð er meðal stjórnenda í atvinnulífinu. 9.9.2010 06:57
Rannsóknarstofa í hreyfivísindum samdi við Össur Rannsóknastofa í hreyfivísindum við Námsbraut í sjúkraþjálfun og Össur hf. hafa undirritað samning þess efnis að Rannsóknastofa í hreyfivísindum og Össur muni hafa með sér samstarf við rannsóknir og prófanir á stoð- og stuðningstækjum úr framleiðslulínu Össurar, auk grunnrannsókna sem gætu leitt til þróunar á nýrri vöru. Tveimur samstarfsverkefnum er þegar lokið og kom Nýsköpunarsjóður námsmanna að öðru þeirra. 8.9.2010 18:30
Kröfuhafar taka yfir Existu Kröfuhafar Exista ehf. samþykktu með 97,35% atkvæða frumvarp til nauðasamnings fyrir Exista í dag. Samkvæmt nauðasamningnum fá kröfuhafar full yfirráð yfir félaginu. 8.9.2010 17:23