Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Telja gengisáhrif af Icesave innan ásættanlegra marka Að gefnum gjaldeyrishöftum og engum meiriháttar utanaðkomandi skellum er nokkuð líklegt að gengisáhrif krónunnar á Icesave skuldbindinguna verði innan ásættanlegra marka þ.e. að krónan veikist ekki umtalsvert umfram 15-20%. 20.1.2011 11:12
Þrotabú Roku höfðar mál á hendur Nýherja Þrotabú Roku ehf. hefur höfðað mál á hendur Nýherja hf. Sökum þessa hefur Nýherji sent Kauphöllinni tilkynningu um málið. 20.1.2011 10:22
Hætt við rannsókn á viðskiptum stjórnenda SPRON Rannsókn á viðskiptum stjórnarmanna í SPRON, sem kærð voru af Vilhjálmi Bjarnasyni lektor við Háskóla Íslands, hefur verið hætt með vísan til laga um meðferð sakamála. Ekkert var talið benda til að stjórn SPRON hafi brotið lög. 20.1.2011 09:56
Landspítalinn rekinn með tekjuafgangi Landspítali var rekinn með 52 milljóna króna tekjuafgangi á árinu 2010 samkvæmt bráðabirgðaruppgjöri spítalans. Heildarvelta Landspítala í fyrra var 40,1 milljarður króna og þar af nam rekstrarframlag ríkissjóðs 33,1 milljarði. Ekki var um að ræða viðbótarfjárframlag til spítalans í fjáraukalögum fyrir árið 2010. 20.1.2011 09:29
Aflaverðmætið jókst um 16,5% á tíu mánuðum í fyrra Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 112 milljörðum króna á fyrstu tíu mánuðum ársins 2010 samanborið við rúma 96 milljarða kr. á sama tímabili árið 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um tæpa 16 milljarða kr. eða 16,5% á milli ára. 20.1.2011 09:10
Vísitala byggingarkostnaðar hækkar Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan janúar 2011 er 101,4 stig sem er hækkun um 0,6% frá fyrri mánuði. 20.1.2011 09:06
AGS: Lausn Icesavedeilunnar væru tímamót Julie Kozack yfirmaður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á Íslandi segir að lausn Icesavedeilunnar yrðu tímamót (milestone) á leið Íslands út úr kreppunni. 20.1.2011 08:40
Alcoa á Íslandi er hætt við álver á Bakka Álfyrirtækið Alcoa á Íslandi (Fjarðarál) ætlar á næstunni að draga sig út úr því ferli, sem miðar að uppbyggingu álvers á Bakka við Húsavík, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins. 20.1.2011 08:18
Arion banki semur við Þorstein Arion banki hefur gert samkomulag við Þorstein M. Jónsson og félög sem tengjast honum um uppgjör skulda. Meðal þessara félaga er Vífilfell hf. sem fer undir nýtt eignarhald. Gerir samkomulagið ráð fyrir fullum endurheimtum Arion banka, en fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá þessu á laugardaginn sl. 20.1.2011 08:11
Rifja upp náin tengsl Usmanov og Landsbankans Danskir fjölmiðlar hafa rifjað upp náin tengsl milli úzbeska auðjöfursins Alisher Usmanov og Landsbankans og Björgólfs Guðmundssonar fyrrum stjórnarformanns bankans. Þetta er gert í framhaldi af fréttum um handtöku Sigurjóns Þ. Árnasonsonar fyrrum bankastjóra Landsbankans. 20.1.2011 07:57
Eru að klára uppstokkun Líklegt þykir að stór hluti bílaumboða B&L og Ingvars Helgasonar verði á næstu tveimur vikum fluttur yfir í Miðengi, eignarhaldsfélag í eigu Íslandsbanka. 20.1.2011 06:00
Ráðherra óskar upplýsinga um Vestiu Fjármálaráðherra sendi Bankasýslu ríkisins bréf í gærmorgun og óskaði eftir öllum þeim upplýsingum sem unnt væri að veita um aðdraganda að sölu Landsbankans á eignarhaldsfélaginu Vestiu til Framtakssjóðs Íslands. 20.1.2011 00:01
Sjóváhluturinn seldur á 4,9 milljarða Kaupverðið fyrir 52,4 prósent hlut í Sjóvá sem samið var um í dag er tæpir 4,9 milljarðar króna, samkvæmt tilkynningu frá Seðlabanka Íslands. Í henni kemur fram að heildarvirði Sjóvá sé því tæplega 9,4 milljarðar króna. 19.1.2011 18:21
Sjóvá selt Stefni Eignasafn Seðlabankans seldi í dag tryggingafélagið Sjóvá. Kaupandinn er Stefnir verðbréfasjóður sem er í eigu Arion banka. Tilkynning um þetta verður send út innan skamms, samkvæmt upplýsingum Vísis. Salan var kynnt starfsfólki Sjóvár um fimmleytið í dag. 19.1.2011 17:04
Aon: Pólitísk áhætta fyrir fjárfesta hefur aukist á Íslandi Samkvæmt nýju áliti frá alþjóðlega áhættumatsfyrirtækinu Aon Risk Solutions hefur pólitísk áhætta fyrir viðskipti og fjárfestingar aukist á Íslandi á þessu ári. Áhættan er metin í meðallagi (medium) en hún var í lægra meðallagi (medium low) í fyrra og árið 2009 en lítil (low) árið 2008. 19.1.2011 13:40
Heildarvelta í atvinnulífinu stóð í stað milli ára í haust Heildarvelta í atvinnulífinu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum stóð nánast í stað í krónum talið í september og október síðastliðnum samanborið við sama tímabil árið 2009. 19.1.2011 12:16
Miklar sveiflur á íbúðaverði milli mánaða Miklar sveiflur eru í íbúðaverði á milli mánaða. Þannig lækkaði íbúðaverð um 1,2% í desember síðastliðnum samkvæmt mælingum Þjóðskrár Íslands. Íbúðir í sérbýli lækkuðu um 1% frá fyrri mánuði í desember og íbúðir í fjölbýli lækkuðu um 1,3%. 19.1.2011 12:04
Viðskiptaráð viðurkennir ábyrgð í hruninu Viðskiptaráð Íslands getur ekki skorast undan að hafa verið þátttakandi í því. „ástandi“ sem skapaðist í aðdragenda bankahrunsins haustið 2008. Þetta kemur fram í nýrri skoðun frá ráðinu sem birt hefur verið á vefsíðu þess. Þar segir að því miður hefur gagnrýni á ýmsa þætti í starfsemi ráðsins að mörgu leyti verið réttmæt. 19.1.2011 09:20
Atvinnuþátttakan var 79,9% á fjórða ársfjórðungi Fjöldi starfandi á fjórða ársfjórðungi 2010 var 165.600 manns og fækkaði um 900 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 178.800 manns sem jafngildir 79,9% atvinnuþátttöku. 19.1.2011 09:08
Að meðaltali 13.200 manns án vinnu á fjórða ársfjórðungi Á fjórða ársfjórðungi 2010 voru að meðaltali 13.200 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 7,4% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 8,4% hjá körlum og 6,3% hjá konum. Frá fjórða ársfjórðungi 2009 til fjórða ársfjórðungs 2010 fjölgaði atvinnulausum um 1.200 manns. 19.1.2011 09:05
SA: Nýjar vegabætur skapa hundruð starfa Nýjar arðbærar vegabætur munu bæta innviði landsins og skapa hundruð starfa. Þá auka framkvæmdirnar öryggi í umferðinni og spara þar með þjóðfélaginu stórfé á ári hverju. 19.1.2011 08:50
Tveir bankar líklegir til að bítast um Byr Ekki er útilokað að Íslandsbanki og Landsbankinn (NBI) banki á dyr kröfuhafa Byrs í næsta mánuði og bjóði upp á samrunaviðræður hvor í sínu lagi. Það gæti gerst sama dag og fjárhagslegri endurskipulagningu bankans lýkur eftir tvær til fjórar vikur. 19.1.2011 08:00
Íbúðaverð lækkaði í borginni í desember Íbúðaverð í borginni lækkaði undir lok síðasta árs. Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 302,6 stig í desember í fyrra og lækkar um 1,2% frá fyrra mánuði. 19.1.2011 07:53
Opera þarf meira pláss Norska hugbúnaðarfyrirtækið Opera stefnir að því að þrefalda gagnaflutning hingað á næstu árum. Fyrirtækið rekur netvafra fyrir einkatölvur og farsíma og vistar farsímahluta Opera-vafrans í gagnaveri Thor Data Center í Hafnarfirði. 19.1.2011 00:01
Megnið fer á fiskiflotann og bílana Níu af hverju tíu lítrum af innfluttu eldsneyti eru notaðir við fiskveiðar og í samgöngum, að því er fram kemur á vef Orkuseturs. „Þessir tveir flokkar nota álíka mikið en hlutur samgangna hefur þó farið vaxandi með auknum fjölda bifreiða,“ segir þar og bent er á að fjöldi bíla hér á landi hafi farið úr 70 þúsund bifreiðum árið 1974 í 200 þúsund bíla árið 2004. 19.1.2011 00:01
Öðruvísi banki bíður eftir græna ljósinu Ingólfur H. Ingólfsson, sem kennt hefur fjölda manns að höndla fjármál sín síðastliðin níu ár, vinnur að stofnun banka að þýskri fyrirmynd. Bankinn mun heita Sparibankinn og byggir hann á þeirri hugmyndafræði sem Ingólfur hefur miðlað til fólks og hugbúnaði sem hann hefur þróað og ætlað er að auðvelda fólki að stýra útgjöldum sínum, byggja upp sparnað og eignir ásamt því að hraða uppgreiðslu lána. 19.1.2011 00:01
Arion banki eignast líklega hlut í Refresco Líklegt þykir að Arion banki gangi að veðum í evrópska drykkjarvöruframleiðandanum Refresco í skuldauppgjöri Þorsteins M. Jónssonar við bankann. 19.1.2011 00:01
Ferðagleðin gerir vart við sig á ný Rétt rúmlega tuttugu þúsund Íslendingar fóru til útlanda í desember á nýliðnu ári, sem er um 25 prósenta aukning milli ára. 19.1.2011 00:01
Breskir háskólanemar vista heimaverkefnin í Hafnarfirði Forsvarsmenn Thor Data Center, gagnavers í Hafnarfirði, hafa undirritað samkomulag við breska upplýsingatæknifyrirtækið HRC Cube um hýsingu á heimaverkefnum þúsundum breskra háskólanema. HRC Cube, sem IBM í Bretlandi stendur á bak við, sérhæfir sig í tækniþróun fyrir menntakerfið ytra og heldur utan um netumhverfi fjölda breskra háskóla. Ekki liggur fyrir nákvæmt verðmæti samningsins. Hann er talinn geta numið nokkuð hundruð milljónum króna. 19.1.2011 00:01
SA og ASÍ semja um viðræðuáætlun Samtök atvinnulífsins (SA) og Alþýðusamband Íslands (ASÍ) hafa undirritað viðræðuáætlun um sameiginleg mál en áætlunin var undirrituð á fundi samninganefnda samtakanna hjá ríkissáttasemjara í gær. 18.1.2011 15:13
Viðræður sjömenningana og Glitnis sigla í strand Viðræður við sjömenningana um útfærslu skilyrða fyrir frávísun máls þeirra hafa siglt í strand. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem slitastjórn Glitnis hefur sent dómstóli í New York og greint er frá í Fréttablaðinu í dag. 18.1.2011 12:43
Utanlandsferðir jukust um rúm 25% í desember Í desember síðastliðnum héldu mun fleiri Íslendingar erlendis en á sama tíma árið 2009, eða um 20.300 á móti 16.100. Þetta jafngildir aukningu upp á ríflega fjórðung. 18.1.2011 12:22
Gengi krónunnar hefur veikst um 1,8% á árinu Gengi krónunnar hefur lækkað nokkuð það sem af er ári. Frá áramótum nemur lækkunin 1,8% ef miðað er við viðskiptavegna gengisvísitölu krónunnar. 18.1.2011 12:13
AGS vill að gjaldeyrishöftunum verði aflétt af varkárni Ef Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) fær einhverju um það ráðið mun aflétting gjaldeyrishafta taka tímann sinn og verða framkvæmd af mikilli varfærni. Sjóðurinn telur áhættu sem tengist of hröðu afnámi haftanna einn af lykiláhættuþáttum varðandi framgang efnahagsáætlunar sjóðsins og stjórnvalda. 18.1.2011 12:07
Alþingi: Vilja óháðan uppboðsmarkað á eignum banka „ Alþingi ályktar að fela efnahags- og viðskiptaráðherra að hafa forgöngu um að stofnaður verði óháður og gagnsær uppboðsmarkaður fyrir eignir banka og fjármálastofnana, fyrir utan íbúðarhúsnæði, sem hafa verið yfirteknar á grundvelli ... laga um fjármálafyrirtæki... 18.1.2011 11:53
Greining MP Banka spáir 2,2% verðbólgu Greining MP Banka reiknar með því að vísitala neysluverðs (VNV) lækki um 0,6% í janúar og tólf mánaða verðbólga lækki þar með í 2,2%. Þeir þættir sem hafa mest áhrif til lækkunar á VNV eru útsölur, breytt mæling útvarpsgjalds og lækkun bílverðs. Á móti því vegur hækkun bensínverðs og ýmsar gjaldskrárhækkanir. 18.1.2011 11:10
Bensínverð lækkar um 9 krónur hjá Orkunni og Atlantsolíu Orkan hefur í dag lækkað verð á öllum eldsneytisstöðvum sínum um 9 krónur. Þar að auki er Ofurdagur Orkunnar í dag, sem veitir Orkulyklahöfum 5 krónu afslátt í ofanálag. 18.1.2011 09:59
Vilja skuldajafna í deilu um fráveitu Álftanes hefur lýst yfir skuldajöfnuði vegna riftunar Orkuveitunnar á fjögurra ára gömlum samningi um kaup, uppbyggingu og rekstur fráveitunnar á Álftanesi. 18.1.2011 06:15
Kanna ástand og magn síldar Dröfn RE, skip Hafrannsóknastofnunar fór í gær til síldarrannsókna í Breiðafirði. Markmiðið er að kanna útbreiðslu stofnsins þar, magnmæla hann og síðast en ekki síst að meta sýkinguna sem herjað hefur á stofninn frá árinu 2008 og valdið miklum afföllum bæði í ungsíld sem og veiðistofninum. 18.1.2011 05:45
Eyraroddi gjaldþrota Héraðsdómur Vestfjarða hefur úrskurðað fiskvinnsluna Eyrarodda hf. á Flateyri gjaldþrota. Stjórn fyrirtækisins og umsjónarmaður nauðasamninga félagsins lögðu fram beiðni þess efnis fyrir dómara í dag. „Það eru stjórn Eyrarodda mikil vonbrigði að ekki hafi tekist að tryggja áframhaldandi rekstur á Flateyri," segir stjórnarformaðurinn Teitur Björn Einarsson í tilkynningu. 17.1.2011 20:19
Ráðherra heimilt að leysa upp hlutafélög Efnahags- og viðskiptaráðherra er heimilt að leysa upp hlutafélög sem hafa ekki skilað inn ársreikningum þannig að eigendur þeirra beri eftirleiðis ótakmarkaða persónulega ábyrgð á rekstri og skuldum félaganna. Heimildinni hefur aldrei verið beitt. Þúsundir félaga eru í vanskilum með ársreikninga. 17.1.2011 19:07
Rýr svör á Alþingi um fyrirtækjasölu Landsbankans Fram kemur í svari NBI hf./ Landsbankans við fyrirspurn á Alþingi að hann telur sér almennt ekki skylt að svara fyrirspurnum alþingismanna um önnur málefni en þau sem teljast opinber. 17.1.2011 15:25
Eignir Jóns Ásgeirs og Lárusar áfram frystar Kröfum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Lárusar Welding um að kyrrsetning eigna þeirra verði felldar úr gildi var hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 17.1.2011 14:02
Greining spáir verðhjöðnun, verðbólgan verður 2% Greiningardeild Arion banka spáir því að verðlag lækki um 0,8% í janúar frá fyrri mánuði. Ástæða verðlækkunar er að stærstum hluta vegna útsöluáhrifa. Gangi spáin eftir verður tólf mánaða verðbólga komin í 2% í janúar samanborið við 2,5% í desember. Án skattaáhrifa verður verðbólgan hinsvegar komin í 1,8%. 17.1.2011 12:03
Þriðjungur atvinnulausra án vinnu í meir en ár Gríðarleg breyting hefur orðið á fjölda þeirra sem hafa verið atvinnulausir í meira en ár og hafa þeir aldrei mælst fleiri en nú. Þannig höfðu 4.969 einstaklingar verið án atvinnu í meira en ár, eða sem nemur ríflega þriðjungi atvinnulausra, en á sama tíma í fyrra voru þeir 3.224 talsins eða um 21% atvinnulausra. 17.1.2011 11:56