Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ekkert löndunarbann í bili Evrópusambandið (ESB) hefur enn ekki tilkynnt íslenskum stjórnvöldum um boðað löndunarbann á makrílafla íslenskra skipa í höfnum aðildarríkja sambandsins. Eins og fram hefur komið eru ESB og Noregur ósátt við einhliða ákvörðun Íslendinga um úthlutun makrílkvóta. 17.1.2011 03:00
Verður í gangi dag og nótt Ný lyfjaverksmiðja Actavis í Hafnarfirði var formlega tekin í notkun í gær. 17.1.2011 02:45
Landsbankinn veitti búlgörskum kaupsýslumanni milljarða yfirdrátt í miðju hruni Meðal þess sem Sigurjóni Þ. Árnasyni, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, er gefið að sök er að hafa borið ábyrgð á 4,5 milljarða króna yfirdráttarláni til búlgarsks viðskiptafélaga Björgólfs Thors Björgólfssonar í lok september 2008 aðeins viku fyrir hrun. Sigurjón er sakaður um fjársvik, umboðssvik, skilasvik og markaðsmisnotkun. 16.1.2011 18:30
Krónueigendur að róast Lagaheimildir Seðlabankans til að hefta gjaldeyrisviðskipti áttu upphaflega að renna út í nóvemberlok á síðasta ári, en voru framlengdar til 31. ágúst þessa árs. Nú er unnið að því að endurskoða áætlun um afnám gjaldeyrishaftanna, en Seðlabankastjóri hefur sagt að hugsanlega verði tillaga um að framlengja gjaldeyrishöftin enn frekar hluti af slíkri áætlun. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segist ekki vilja segja til um það fyrirfram hvort sú verði raunin. 16.1.2011 19:16
Tilvonandi bankastjóri lýsir yfir dauða verðtryggingarinnar „Verðtryggingin er búin að vera,“ segir tilvonandi bankastjóri nýja Sparibankans sem verið er að setja á laggirnar. Viðskiptavinir hans munu geta fengið óverðtryggð lán með breytilegum vöxtum en fyrst og fremst ráðgjöf um uppbyggingu sparnaðar og eigna. 16.1.2011 18:48
Geysir Green Energy tapaði tæplega 18 milljörðum Geysir Green Energy (GGE) tapaði 17,8 milljörðum króna á árinu 2009. Það tap bætist við 16,7 milljarða tap félagsins á árinu 2008. Þetta kemur fram í ársreikningi GGE fyrir árið 2009 sem greint er frá á vef Viðskiptablaðsins (vb.is). 16.1.2011 10:29
Coca Cola á Spáni eignast Vífilfell Coca Cola á Spáni hefur gengið frá kaupum á Vífilfelli, framleiðanda Coca Cola á Íslandi. Kaupverðið gengur að mestu leyti upp í skuldir félaga Þorsteins M. Jónssonar við Arion banka en þær eru samtals tíu milljarðar króna. Bankinn fær kröfur sínar á hendur Þorsteini og félögum í hans eigu greiddar að fullu. 15.1.2011 18:45
Meðhöndlun aflandsfélaga sýndu ranga stöðu Landsbankans Meðhöndlun aflandsfélaga sem héldu utan um kauprétti starfsmanna Landsbankans og eru nú ein þungamiðjan í rannsókn sérstaks saksóknara á bankanum varð þess valdandi að eigið fé bankans varð meira en 50 milljörðum króna hærra í ársreikningi og staða hans sýndist því mun betri en hún var í raun. 15.1.2011 18:42
Íslandsbanki sameinar útibú Útibú Íslandsbanka á Suðurlandsbraut 30 og Háaleitisbraut verða sameinuð á nýjum stað í gamla B&L húsinu á Suðurlandsbraut 14. Þar verður starfrækt öflugt útibú sem verður miðstöð fjármálaþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. 15.1.2011 14:11
Framtakssjóður búnn að ná sáttum við Samkeppniseftirlitið Framtakssjóður Íslands og Samkeppniseftirlitið hafa náð samkomulagi um tiltekin skilyrði eftirlitsins fyrir kaupum Framtakssjóðsins á eignarhaldsfélaginu Vestia ehf. 15.1.2011 11:30
Davíð Oddsson bað um milljarðs dollara lán Samkvæmt þeim skjölum sem Wikileaks hefur nýlega birt bað Davíð Oddsson, þáverandi seðlabankastjóri, Bandaríkjamenn um að lána Íslandi einn milljarð dollara árið 2008. Sendiráð Bandaríkjanna hvatti bandarísk stjórnvöld til þess að verða við beiðninni. 15.1.2011 10:29
Þrettán flugfélög til Íslands Vaxandi áhugi er nú meðal erlendra flugfélaga á að fljúga til og frá Íslandi. Að minnsta kosti ellefu erlend félög hafa tilkynnt um flug hingað til lands næsta sumar og fleiri gætu bæst við. 15.1.2011 08:30
Hefur áhyggjur af atvinnuleysi Vel hefur tekist til við að draga úr halla á fjárlögum og koma efnahagslífinu á réttan kjöl. Nýtt Icesave-samkomulag er mun hagstæðara en fyrri samningar sem kynntir hafa verið og flýtir fyrir bata efnahagslífsins. Þetta segir Julie Kozack, sendifulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, AGS, hér á landi. 15.1.2011 06:15
Google stofnar fyrirtæki á Íslandi Netrisinn Google hefur stofnað fyrirtæki á Íslandi. Google er með íslenska kennitölu og lögheimili að Stórhöfða 21. Stofnendur fyrirtækisins samkvæmt Lögbirtingablaðinu eru Graham Law, fjármálastjóri hjá Google, og Ronan Aubyn Harris, framkvæmdastjóri hjá Google. Báðir eru þeir skráðir til heimilis á Írlandi en höfuðstöðvar Google í Evrópu eru einmitt í höfuðborg Írlands, Dublin. 15.1.2011 00:01
Þögn bankanna ósiðleg Talsmaður neytenda segir stöðu skuldara hafa styrkst með lögum um ábyrgðarmenn sem tóku gildi fyrir tveimur árum. Hann segir ekki siðlegt hjá bönkunum að þegja yfir ákvæði sem skyldar þá til þess að meta hæfi skuldara. 14.1.2011 18:54
Lætur af störfum hjá Icelandair Group Sigþór Einarsson hefur ákveðið að láta af störfum sem aðstoðarforstjóri Icelandair Group. Hann hyggst snúa sér að flugvélaviðskiptum, m.a. í samvinnu við Icelandair Group. Jafnframt mun hann áfram verða félaginu til ráðgjafar á öðrum sviðum. 14.1.2011 17:27
Setja yfirtökunni á Vestia skilyrði Samkeppniseftirlitið telur að yfirráð Framtakssjóðs Íslands á fyrirtækjum sem heyra undir eignarhaldsfélagið Vestia geti að óbreyttu raskað samkeppni og að nauðsynlegt sé að koma í veg fyrir það með því að setja skilyrði fyrir yfirtökunni. 14.1.2011 15:38
Tæp hálf milljón erlendra gesta til Íslands í fyrra Heildarfjöldi erlendra gesta árið 2010 var tæplega 495 þúsund og er um að ræða 0,2% aukningu frá 2009 en þá voru erlendir gestir 494 þúsund talsins. 14.1.2011 13:10
Reiknar með allt að 8,6% atvinnuleysi í janúar Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysið í janúar í ár aukist frá fyrra mánuði og verði á bilinu 8,3%-8,6 %. 14.1.2011 13:03
Atvinnuleysi var 8% í desember Skráð atvinnuleysi í desember 2010 var 8% en að meðaltali 12.745 manns voru atvinnulausir í desember og eykst atvinnuleysi um 0,3 prósentustig frá nóvember, eða um 382 manns að meðaltali. 14.1.2011 12:58
Nýr yfirmaður upplýsingatækni Landsbankans Guðni B. Guðnason hefur verið ráðinn yfirmaður upplýsingatækni Landsbankans. Umsækjendur um stöðuna voru 63. Hún var auglýst í desember sl. 14.1.2011 12:47
Seðlabankastjóri: Stöndum á krossgötum „Þær krossgötur sem við stöndum á nú felast í því að nú þarf að breyta stöðugleika í fjárfestingu, hagvöxt og atvinnu. Að vísu er flest sem bendir til þess að hagvöxtur hafi hafist á seinni hluta síðasta árs. Hann var hins vegar ekkert sérlega kröftugur og fjárfesting er áfram í sögulegu lágmarki.“ 14.1.2011 12:39
Víxlar: Ríkissjóði bauðst bestu vaxtakjörin hingað til Ríkissjóður má vel við una miðað við niðurstöðu úr ríkisvíxlaútboðinu í gær, en umframeftirspurn hefur ekki verið jafn mikil síðan í maí á síðasta ári og vaxtakjör ríkissjóðs í útboðinu nú þau bestu sem honum hefur staðið til boða á innlendum skuldabréfamarkaði. 14.1.2011 11:57
Spáir minnstu verðbólgu frá árinu 2003 Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni lækka í janúar um 0,7% frá desembermánuði. Ef spáin gengur eftir verður verðbólgan 2,1% í mánuðinum og lækkar úr 2,5% í desember. Rætist spáin hefur verðbólgan ekki verið lægri síðan um mitt ár 2003. Hagstofan mun birta vísitölumælingu sína kl. 9:00 þann 26. janúar næstkomandi. 14.1.2011 11:50
Vestia tapaði rúmum 400 milljónum árið 2009 Eignarhaldsfélagið Vestia tapaði 413 milljónum króna á árinu 2009, en félagið var stofnað í maí á því ári. Eigið fé þess var jákvætt um 2,5 milljarða króna. Þetta kemur fram í ársreikningi Vestiu sem var skilað inn til fyrirtækjaskrár í gær. 14.1.2011 11:01
Útgjöld til félagsverndar 380 milljarðar á árinu 2009 Útgjöld til félagsverndar námu rúmum 380 milljörðum króna á árinu 2009 eða 25,3% af landsframleiðslu og hækkuðu verulega frá árinu 2008 er þau námu 22% af landsframleiðslu. 14.1.2011 09:11
Stækkun verksmiðju Actavis lokið Actavis á Íslandi hefur lokið við að stækka lyfjaverksmiðju sína í Hafnarfirði og eykst framleiðslugetan við það úr einum milljarði taflna í einn og hálfan milljarð taflna á ári. Verksmiðjan verður opnuð formlega í dag, 14. janúar kl.10:30, að viðstöddum forseta Íslands, herra Ólafi Ragnari Grímssyni. 14.1.2011 09:07
Lán ÍLS í desember námu 2 milljörðum Heildarútlán Íbúðalánasjóðs (ÍLS) námu um 2 milljörðum króna í desember, en þar af voru rúmir 1,7 milljarðar króna vegna almennra lána. 14.1.2011 07:57
Fór langt fram úr heimildum Rannsókn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra á meintum brotum stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs er lokið. Lífeyrissjóðurinn lánaði bæjaryfirvöldum í Kópavogi 600 milljónir króna í kjölfar bankahrunsins síðla hausts 2008 og námu lánin allt að fimmtungi eiginfjár sjóðsins. Hámark er tíu prósent. 14.1.2011 06:00
Greiningarfyrirtæki telur byrðina af Icesave hóflega Ef ekkert óvænt gerist ætti Icesave-samningurinn að vera hófleg byrði á ríkissjóði, gangi grunnspár eftir. Þetta er mat IFS, þjónustu- og ráðgjafarfyrirtækis á sviði fjármála og greininga. Fyrirtækið lagði mat á nýjan Icesave-samning að ósk fjárlaganefndar Alþingis. Nefndin fjallar þessa dagana um samninginn og fer yfir umsagnir sem um hann bárust. 14.1.2011 05:30
Lánasafnið kostaði Landsbankann 121 milljarð Heildarupphæðin, sem Landsbankinn borgaði til þess að kaupa lánasafnið af Landsbankanum í Lúxemborg, sem er til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara, nam um 784 milljónum evra, samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. 13.1.2011 15:48
Íslandsbanki eignast Jarðboranir hf. Sú breyting hefur orðið á eignarhaldi Jarðborana hf. að Miðengi ehf., eignarhaldsfélag Íslandsbanka, fer nú með allt hlutafé í félaginu. Breytingin á eignarhaldi kemur til í kjölfar fjárhagslegrar endurskipulagningar Íslandsbanka á Jarðborunum en sú vinna hefur staðið yfir undanfarna mánuði. 13.1.2011 15:37
Þjóðhagsvarúð sé í forgangi við fjármálaeftirlit Seðlabanki Íslands hefur birt skýrslu um hlutverk seðlabanka í fjármálaeftirliti. Ein megin ályktunin sem dregin hefur verið af reynslu við fjármálaeftirlit undanfarin ár er að setja þurfi svokallaða þjóðhagsvarúð í forgang við hönnun nýrrar umgjarðar fyrir fjármálaeftirlit. 13.1.2011 15:17
Einkaneyslan rétti vel úr kútnum í árslok Einkaneysla virðist heldur betur hafa rétt úr kútnum undir lok síðasta árs, ef marka má kortaveltutölur Seðlabankans sem birtar voru í gær. Nam kreditkortavelta í desember síðastliðnum 26,5 milljörðum kr. og var það 4% meiri velta í krónum talið en í mánuðinum á undan. 13.1.2011 14:30
Samherji kaupir tvö erlend útgerðarfélög Útgerðarfélagið Samherji hefur fest kaup á tveimur erlendum útgerðargélögum. Samherji á nú Pesquera Ancora á Spáni og helmingshlut í Compagnie des Peches Saint Malo í Frakklandi í gegnum dótturfélag sitt UK Fisheries. 13.1.2011 12:29
Rúmlega 80% sætanýting hjá Iceland Express Iceland Express ætlar að auka sætaframboð félagsins um rúm 20 prósent á þessu ári miðað við í fyrra enda fjölgaði farþegum félagsins á flesta áfangastaði, sem Iceland Express flýgur til. Til dæmis voru farþegar Iceland Express tæplega áttatíu þúsund í júlí síðastliðnum, sem er 35 prósenta fjölgun frá sama tíma árið áður. Þá jókst markaðshlutdeild Iceland Express á flugleiðinni milli Keflavíkur og London um 38,24 % í júlí. Hlutur félagsins á þessari flugleið hefur aldrei verið stærri í átta ára sögu þess. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Iceland Express. 13.1.2011 12:09
Væntingar um verðbólgu ekki minni síðan 2007 Í desember síðastliðnum vænti almenningur þess að verðbólgan verði 4% eftir 12 mánuði samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerir fyrir Seðlabanka Íslands og niðurstöður voru birtar um í hagvísum bankans fyrir sama mánuð. Samkvæmt þessari könnun hafa væntingar almennings um verðbólgu ekki verið minni síðan í ágúst árið 2007. 13.1.2011 12:07
Spáir 0,5 prósentustiga vaxtalækkun í febrúar Greining Íslandsbanka reiknar með því að Peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að lækka vexti bankans um 0,5 prósentur á næsta vaxtaákvörðunarfundi sínum sem er 2. febrúar næstkomandi. 13.1.2011 11:56
Procar kaupir 100 bíla frá B&L og Ingvari Helgasyni Bílaleigan Procar, sem leigir að jafnaði um 200 bíla, hefur fest kaup á eitt hundrað bílum frá bílaumboðinu B&L og Ingvari Helgasyni. Var samningur þess efnis undirritaður í gær, miðvikudag. 13.1.2011 11:10
IKEA safnaði 2,4 milljónum handa Barnaheill og UNICEF Fyrsta nóvember á nýliðnu ári hóf IKEA um allan heim söfnunarátakið Mjúkdýraleiðangurinn. Á Íslandi söfnuðust tæplega 2,4 milljónir kr. og munu þær renna til Barnaheilla og UNICEF. 13.1.2011 10:17
Skotar vilja víðtækara viðskiptabann gegn Íslandi ESB mun í dag taka ákvörðun um löndunarbann á íslensk makrílveiðiskip. Skotar telja að slíkt gangi of skammt og vilja víðtækara viðskiptabann gegn Íslandi. 13.1.2011 10:10
MP Banka skipt í tvennt, Margeir á leið úr bankanum MP Banka verður skipt í tvennt og núverandi hluthafar bankans fara að mestu út úr eigendahópi hans. 13.1.2011 09:32
Heildaraflinn dróst saman um 8% á liðnu ári Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum desembermánuði, metinn á föstu verði, var 8,2% minni en í desember 2009. Árið 2010 dróst aflinn saman um 8,0% miðað við árið 2009, sé hann metinn á föstu verði. 13.1.2011 09:01
Velta debetkorta jókst um 1,4% milli ára í desember Heildarvelta debetkorta í desember síðastliðnum var 40,2 milljarðar kr. og er þetta 1,4% aukning miðað við desember árið áður en 31,1% aukning miðað við nóvember síðastliðnum. 13.1.2011 07:57
Gjaldeyrisforðinn jókst um 124 milljarða í desember Gjaldeyrisforði Seðlabankans nam 667 milljarða kr. í lok desember og hækkaði um 124,5 milljarða kr. milli mánaða. 13.1.2011 07:53