Fleiri fréttir

Breskt fyrirtæki tekur yfir Orkustöðina á Húsavík

Breska orkufyrirtækið Global Geothermal Ltd, hefur gert samkomulag við Orkuveitu Húsavíkur (OH) um samvinnu vegna viðgerðar og enduruppbyggingar Orkustöðvar OH á Hrísmóum við Húsavík. Kaupin eru háð samþykki nefndar um erlenda fjárfestingu en ákvörðun nefndarinnar liggur ekki fyrir.

VBS lánaði milljarða út á loftkastalasmíði

VBS fjárfestingarbanki með fulltingi Landsbankans tók þátt í kaupum á fasteignaverkefnum og lánaði milljarða króna út á mat á hugsanlegu söluandvirði fasteigna sem aldrei risu.

Segir VBS hafa stundað talnaleiki

Innova varð á meðal fimm umsvifamestu fyrirtækja í byggingageiranum að undangengnum samruna Stafna á milli við tvö önnur verktakafyrirtæki. Starfsmenn voru rúmlega tvö hundruð og veltan í kringum sjö milljarðar króna. Forstjóri fyrirtækisins var Engilbert Runólfsson. Hann sat inni fyrir aðild að fíkniefnainnflutningi fyrir fimmtán árum en varð stórtækur á fasteignamarkaði eftir aldamótin.

Vísitala neysluverðs verði ekki notuð við verðtryggingu

Talsmaður neytenda hefur lagt til við verðtryggingarnefnd sem efnahags og viðskiptaráðuneytið hefur sett á fót að önnur og raunhæfari viðmið en vísitala neysluverðs verði notuð við að reikna verðtryggingu lána. Fyrst og fremst þar sem vísitalan lýsi ekki vel rýrnun gjaldmiðilsins.

Nauðungarsölum fækkar

Alls voru 289 bifreiðar seldar nauðungarsölu hjá Sýslumanninum í Reykjavík í fyrra og skráðar nauðungarsölubeiðnir voru 723. Þetta er umtalsvert minna en árin tvö á undan því þá var 441 bifreið seld nauðungarsölu hjá

Kristín nýr forstjóri Skipta

Kristín Guðmundsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Skipta hf. Hún hefur starfað sem fjármálastjóri félagsins undanfarin átta ár og jafnframt verið staðgengill forstjóra á þeim tíma. Hún mun taka við nýju starfi frá og með deginum í dag.

AGS klárar fjórðu endurskoðun á mánudag

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn mun ljúka fjórðu endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands á mánudaginn kemur. Þetta kemur fram á Bloomberg fréttaveitunni og er haft eftir Franek Roszvadovski sendifulltrúi sjóðsins hér á landi. Þegar endurskoðunin hefur verið staðfest mun Íslendingum standa til boða um 160 milljónir bandaríkjadala í formi lánafyrirgreiðslu.

Ríkir Íslendingar kaupa lúxusbíla

„Sem betur fer er fullt af fólki sem á pening,“ segir Páll Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota. Sala á nýjum bílum hefur farið nokkuð greitt af stað þessa fyrstu viku ársins. Alls hafa 37 bílar selst, en af þeim eru fjórtán sem geta talist lúxusbílar. Þá er átt við bíla á borð við Audi,

Það verður réttað yfir Baldri - frávísunarkröfu vísað frá

Frávísunarkröfu Baldurs Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, í máli sérstaks saksóknara gegn honum var vísað frá dómi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, samkvæmt frétt sem DV birtir á heimasíðu sinni.

Porsche Cayenne uppseldur fram í mars

Lögin sem tóku gildi um áramótin og eiga að draga úr útblæstri koltvísírings íslenska bílaflotans hafa valdið því að Porsche Cayenne jeppinn frá Bílabúð Benna hefur lækkað í verði og er nú uppseldur.

Skilanefnd Landsbankans vill selja fleiri dönsk hótel

Skilanefnd Landsbankans hyggst selja fleiri dönsk hótel í náninni framtíð. Þetta kemur fram í viðtali Berlinske Tidende við Pál Benediktsson talsmann skilanefndarinnar. Sem kunnugt er af fréttum er skilanefndin búin að selja Hotel D´Angleterre.

Gistinóttum fækkar um tæp 2%

Gistinætur á hótelum í nóvember síðastliðnum voru 70.300 en voru 71.500 í sama mánuði árið 2009. Þetta er tæplega 2% fækkun.

Samtök lánþega fordæma yfirlýsingu Lýsingar

Samtök lánþega fordæmir þá yfirlýsingu Lýsingar hf, um að ætla ekki að fara að landslögum og telja að yfirlýsing fyrirtækisins, eftir úrskukrð áfrýjunarnefndar neytendamála beri vott um einbeittan brotavilja.

Björgólfshús til sölu

Fjölnisvegur 3, húsnæði sem áður var í eigu Björgólfs Thor Björgólfssonar, hefur verið sett á sölu. Húsið er 321 fermetri að stærð og er metin á tæplega 79 milljónir króna. Eignarhaldsfélags Landsbankans, Mynni hf, á húsið en það var sett á sölu í gær.

Samið um kaup á D´Angleterre

Hótel D´Angleterre í Kaupmannahöfn verður selt félagi í eigu Remmen´s Stiftung von 1986, samkvæmt samkomulagi sem náðist þess efnis í dag. Hótelið er nú í eigu skilanefndar Landsbankans en nýju eigendurnir munu taka við rekstri þess þann 1. febrúar næstkomandi.

Glæsibílar og flugferðir fyrir eiginkonur hjá FL Group

Fyrrverandi hluthafi í FL Group segir allt á huldu í hvað þeir sex komma tveir milljarðar króna fóru sem efnahagsbrotadeild fær nú til rannsóknar vegna meintra skattalagabrota. Hann segir FL Group hafi verið spilaborg og bréf fyrirtækisins hafi verið notuð til að tæma bankana innanfrá.

Íslandsbanki hættir að senda út reikningsyfirlit

Íslandsbanki hefur ákveðið að hætta útsendingu reikningsyfirlita til einstaklinga í viðskiptum við bankann. Yfirlitin verða aðgengileg öllum viðskiptavinum í Netbanka, en þeir viðskiptavinir sem óska þess sérstaklega geta fengið yfirlitin prentuð út og send í pappírsformi. Er þetta gert til þess að spara kostnað auk þess sem Íslandsbanki leggur áherslu á að vera umhverfisvænn vinnustaður.

Allt útlit fyrir að gjaldþrotamet hafi verið slegið í fyrra

Allt útlit er nú fyrir að nýtt met verði slegið á árinu 2010 hvað varðar fjölda gjaldþrota og að fyrra met frá árinu 2009 verði slegið út. Það ár voru 910 fyrirtæki úrskurðuð gjaldþrota sem var það mesta sem sést hefur undanfarna áratugi.

Raungengi krónunnar lækkaði í desember

Raungengi íslensku krónunnar lækkaði um 0,6% í desember síðastliðnum á mælikvarða hlutfallslegs verðlags. Er þetta í takti við þróunina á nafngengi krónunnar á sama tímabili sem og þróun verðlags.

Reikna með 72 milljóna afgangi á Dalvík í ár

Samkvæmt fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árið mun A hluti bæjarsjóðs skila tæplega 60 milljónum kr. í afgang. A og B hlutar samanlagt skila um 72 milljónum kr. í afgang.

Viðræður standa yfir um skuldamál NTC-veldisins

„Ekkert hefur breyst hjá okkur; ég er búin að bíða í fimmtán mánuði eftir því að bankinn semji við okkur en lítið þokast. Við eigum samt von á að það verði í þessum mánuði,“ segir Svava Johansen, stofnandi og eigandi tískuvöruveldisins NTC, einnar stærstu fatakeðju landsins sem meðal annars rekur Sautján-verslanirnar.

Lýsing hundsar fyrirmæli Neytendastofu

Fjármögnunarfyrirtækið Lýsing ætlar að innheimta verðbætur á óverðtryggðum lánum, þrátt fyrir úrskurði Neytendastofu og áfrýjunarnefndar neytendamála um að þeim hafi verið það óheimilt. Neytendastofa hefur fá úrræði í höndunum, en getur þó beitt sektum. Breki Logason.

Ráðin markaðsstjóri Íslandsbanka

Hólmfríður Einarsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Íslandsbanka. Hólmfríður er 38 ára viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík. Í tilkynningu frá bankanum segir að hún hafi starfað við markaðsmál fyrirtækja í um 10 ár, fyrst sem deildarstjóri Markaðs- og vefdeildar Kaupþings og síðar sem forstöðumaður Markaðsmála hjá Símanum. Hólmfríður hefur búið í Hollandi undanfarin tvö ár og hún er gift Ragnari Þór Ragnarssyni og eiga þau þrjú börn.

Usmanov handrukkari - voru bankamenn að bjarga lífi sínu?

„Ég trúi því ekki að íslenskir bankamenn séu svona miklir aular að þeir láni manni eins og Usmanov 280 milljarða króna. Ég neita að trúa þeirri sögu,“ sagði Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur, í Morgunútvarpinu á rás 2 í morgun. Þar fullyrðir hann að Úsbekinn Alisher Usmanov sé lítið annað en handrukkari eldsneytisfyrirtækisins Gazprom.

Ferðaskrifstofa Akureyrar eykur umsvifin

Nú um áramótin tók ný innanlandsdeild Ferðaskrifstofu Akureyrar formlega til starfa og mun megin hlutverk hennar verða skipulag á ráðstefnum, fundum og hvataferðum á Akureyri og Norðausturlandi.

Intrum verður Motus

Motus er nýtt nafn á starfsemi Intrum á Íslandi. Ákvörðun hefur verið tekin um að félagið starfi undir eigin vörumerki á Íslandi og notkun á alþjóðlega vörumerkinu „Intrum Justitia“ verði lögð af.

Aflaverðmætið jókst um 17,8%

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 101 milljarði króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2010 samanborið við rúma 86 milljarða á sama tímabili árið 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um 15 milljarða eða 17,8% á milli ára.

Vöruskiptin hagstæð um 109 milljarða á 11 mánuðum

Í nóvembermánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 48,4 milljarða króna og inn fyrir 37,9 milljarða króna. Vöruskiptin í nóvember voru því hagstæð um 10,4 milljarða króna. Í nóvember 2009 voru vöruskiptin hagstæð um 1,8 milljarða króna á sama gengi.

Velta á gjaldeyrismarkaði tók stökk í desember

Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri tók mikið stökk í desembermánuði s.l. Nam veltan rúmlega 27.4 milljörðum kr., sem er rúmlega 24.7 milljarða kr. meiri velta en í nóvembermánuði.

Sjá næstu 50 fréttir