Körfuboltakvöld: Jeremy Pargo er betri en Khalil Shabazz
Topplið Grindavíkur kom mörgum á óvart með því að láta Bandaríkjamanninn Khalil Shabazz fara á dögunum en Teitur Örlygsson, sérfræðingur Bónus Körfuboltakvölds, segir að miðað við fyrsta leikinn hjá nýja manninum hafi það verið góð ákvörðun.