Ný byggð í Úlfarsárdal

Gert er ráð fyrir að allt að 3.700 íbúðir geti risið í nýju Hallahverfi í Úlfarsárdal. Á opnum fundi borgarstjóra um húsnæðismál í dag var hulunni svipt af vinningshafa hugmyndaleitar vegna rammaskipulagsgerðar á svæðinu. Arkitektastofan Nordic Office of Architecture var hlutskörpust. Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, mætti í myndver og ræddi málið.

8
04:43

Vinsælt í flokknum Fréttir