Loðnuvertíðin komin á fulla ferð
Loðnuvertíðin er komin á fulla ferð og er loðnan á hraðri göngu vestur með suðurströndinni og að nálgast sitt verðmætasta form. Hún er gengin upp á landgrunnið og búin að þétta sig þar í torfur. Loðnuflotinn fylgir henni eftir og hefur undanfarna daga verið vel sýnilegur frá landi.