Evrópuákvörðunin pólitísk
Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins telur mikilvægt að jafna hagvöxt og launahækkanir á Íslandi. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu sendinefndarinnar sem hefur lokið árlegri úttekt á íslensku efnahagslífi. Úttektin var kynnt á blaðamannafundi í Safnahúsinu í morgun. Nefndin telur að verðbólga verði áfram mikil að meðaltali, eða 5,2 prósent á þessu ári og 3,2 prósent árið 2027. Sendinefndin fjallar í úttekt sinni einnig um mögulegar aðildarviðræður við Evrópusambandið og segir formaður nefndarinnar að ákvörðun um aðild að sambandinu og upptöku evru sé fyrst og fremst pólitísk.