Sagrada Familia lýst upp

Það var mikið um dýrðir í Barcelona á Spáni í gærkvöldi þegar Leó páfi blessaði hæsta turn Sagrada Familia kirkjunnar. Í gær voru einnig hundrað ár liðin frá dánardegi arkitektsins Antoni Gádi og til heiðurs honum sköpuðu drónar andlitsmynd Gádís á himninum. Hundrað fjörutíu og fjögur ár eru nú liðin frá því að bygging kirkjunnar hófst en það var einungis í febrúar síðastliðnum sem vinnu lauk við turninn, sem er hundrað sjötíu og tveggja metra hár. Fjöldi fólks kom saman við kirkjuna í gær og meðal gesta á athöfninni voru konungsfjölskylda Spánar, forsætisráðherra landsins og áhrifafólk innan kirkjunnar.

32
01:17

Vinsælt í flokknum Fréttir