Sjálfstætt fólk - Thelma Ásdísar og systur hennar
Á sunnudagskvöld halda þeir félagar Steingrímur og Jón Ársæll áfram að fjalla um sögu Thelmu Ásdísardóttur og systra hennar, en faðir þeirra og félagar hans misnotuðu þær systur frá unga aldri á hroðalegan hátt. Í þessum þætti ræðir Jón Ársæll við hinar systurnar, Björgu, Írisi og Ruth sem einnig voru fórnarlömb þessara voðaverka og hvernig þeim hefur gengið að lifa af. Hræðileg saga sem þó verður að segja ef breyta skal þeim heimi sem við lifum í. Saga sem aldrei má gleymast. Sjálfstætt fólk er á dagskrá Stöðvar 2 á sunnudagskvöld.