Segir dómgreindarleysi formannsins algert Bubbi Morthens tónlistarmaður hefur blandað sér í funheita umræðu um hvort Þórarinn Ingi Pétursson formaður atvinnuveganefndar hafi verið á réttu róli þegar hann, sem eigandi 0,6 prósents í Búsæld og þar með einn eigandi Kjarnafæðis, samþykkti lög sem heimiluðu sölu á Kjarnafæði til Kaupfélags Skagfirðinga. Innlent 10. júlí 2024 15:11
Um traust og vantraust Traust er ein meginundirstaða viðskipta. Alþingi hefur í ýmsu tilliti stutt við bak einstaklinga og ýmissa hópa til að stuðla að jafnri stöðu í viðskiptum. Til grundvallar liggur sú hugmynd að jöfn staða stuðli að trausti og tilvist trausts liðki fyrir viðskiptum. Viðskipti eru meðal forsendna þróunar, framleiðni, nýsköpunar, tæknibreytinga o.fl. Skoðun 9. júlí 2024 15:31
Búið að afvopna neytendur Formaður atvinnuveganefndar segir það ekki tortryggilegt að hann eigi hlut í félagi sem keypt var af Kaupfélagi Skagfirðinga á grundvelli nýsamþykktra búvörulaga sem tekin voru fyrir í nefndinni. Þingmaður Viðreisnar segir nefndina hafa tekið gríðarmikilvægt vopn úr höndum neytenda. Neytendur 8. júlí 2024 20:22
Þaulskipulagt af hagsmunaaðilum og þeirra fulltrúum á þingi Formaður atvinnuveganefndar Alþingis á hlut í félagi sem Kaupfélag Skagfirðinga er að kaupa. Kaupin ganga í gegn án aðkomu Samkeppniseftirlitsins vegna breytinga á búvörulögum sem atvinnuveganefnd gerði. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir um skipulagða aðgerða hagsmunaaðila og fulltrúa þeirra á þingi að ræða. Innlent 8. júlí 2024 13:41
Til stuðnings Kristrúnu Frostadóttur Nú býðst sósíaldemókrötum og vinstri mönnum að sameinast um ábyrga stefnu í útlendingamálum – og fleiri málum. Ekki er óhugsandi að einhverjum hafi þótt mál til komið. Skoðun 8. júlí 2024 13:00
Formaður atvinnuveganefndar á hlut í félaginu sem KS keypti Þórarinn Ingi Pétursson, formaður atvinnuveganefndar, á um það bil 0,8 prósenta hlut í Búsæld ehf., sem á rúmlega 43 prósent hlutafjár í Kjarnafæði Norðlenska hf.. Hluthafar Kjarnafæði Norðlenska hafa samþykkt kaup Kaupfélags Skagfirðinga á allt að hundrað prósent hlutafjár í félaginu. Nýsamþykkt lög, sem fóru í gegnum atvinnuveganefnd, gera kaupin möguleg. Viðskipti innlent 8. júlí 2024 11:00
Kristrún segir mál sem skekið hafa Samfylkinguna ekki svarthvít Kristrún Frostadóttir segir eðlilegt að ágreiningur eigi sér stað innan breiðfylkingar og stórs flokks líkt og Samfylkingarinnar. Þannig svarar hún gagnrýni innan flokksins sem snýr að hjásetu flokksins við afgreiðslu nýrra útlendingalaga. Innlent 6. júlí 2024 06:31
Fjöldi erlendra meintra gerenda nær tvöfaldaðist á tveimur árum Árið 2020 voru 52 karlmenn með erlent ríkisfang grunaðir um kynferðisbrot hér á landi. Tveimur árum síðar voru þeir eitt hundrað. Innlent 5. júlí 2024 14:01
Segir Miðflokkinn vilja skreyta sig stolnum fjöðrum Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, lætur Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Miðflokksins ekki eiga neitt inni hjá sér en í kröftugri svargrein um Mannréttindastofu segir hún Sigmund og þá Miðflokksmenn innilega ósamkvæma sjálfum sér. Innlent 5. júlí 2024 13:25
Sigmundur Davíð þvær hendur sínar af Mannréttindastofnun Íslands Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hefur lítinn sem engan áhuga á því að Hildi Sverrisdóttur, þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, takist að gera Miðflokkinn ábyrgan fyrir nýrri Mannréttastofnun Íslands. Innlent 4. júlí 2024 14:24
Óhjákvæmilegt fyrir stjórnvöld að grípa inn í Íslenska ríkið verður af gríðarlegum fjármunum á hverju ári sem lög eru ekki sett í kringum starfsemi erlendra veðmálasíðna hér á landi segir formaður starfshóps dómsmálaráðuneytisins. Óhjákvæmilegt sé fyrir stjórnvöld að grípa inn í. Ekkert hefur gerst í málinu síðan starfshópurinn skilaði skýrslu fyrir einu og hálfu ári. Innlent 3. júlí 2024 19:48
VG mælist enn úti af þingi og Samfylkingin dalar Vinstri græn mælast með 4 prósenta fylgi og fylgi Samfylkingarinnar dalar mest í nýjum þjóðarpúlsi Gallúp. Miðflokkurinn bætir mestu við fylgi sitt og mælist með 14,5 prósent fylgi. Innlent 1. júlí 2024 18:45
Sjálfstæðisflokkur og Píratar að miklu leyti til eins Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata gefur ekki mikið fyrir pólítíska greiningu Stefáns Einars Stefánssonar víninnflytjanda og blaðamanns Morgunblaðsins í nýlegum pistili á Facebook. Innlent 1. júlí 2024 13:13
Kjósendur hafi nýtt forsetakosningar til að senda pólitíkinni skilaboð Stefán Einar Stefánsson þáttastjórnandi segir mikla þreytu meðal almennings á núverandi ríkisstjórn og niðurstöður kannanna endurspegli það. Samkvæmt nýjustu könnun Maskínu er Sjálfstæðisflokkurinn aðeins með 14,7 prósenta fylgi og Samfylkingin með mest fylgi, 27,1 prósent. Miðflokkurinn er með 12,7 prósent í sömu könnun og Vinstri græn fimm prósent. Innlent 1. júlí 2024 10:44
Árið er 1990 Í útvarpi allra landsmanna heyrist Bogi Ágústsson, fréttamaður reglulega segja þessi orð „Árið er“. Á eftir heyrast svo gamlir poppslagarar það árið, sem rifja upp gömlu og góðu dagana. Þessi orð “Árið er 1990” spretta upp í hugann í hvert einasta sinn sem ég ferðast um vegkaflann milli Patreksfjarðar og Reykjavíkur. Orð Boga fylgja mér svo langleiðina niður í Borgarfjörðinn, þegar nokkuð góðir vegkaflar taka á móti mér. Skoðun 30. júní 2024 14:30
Vestfirðingar segja ítrekuð svik í vegamálum óboðleg „Áætlunum kollvarpað og staðan óboðleg,” er fyrirsögn ályktunar stjórnar Vestfjarðastofu þar sem lýst er miklum vonbrigðum með þá stöðu sem enn og aftur sé komin upp í samgönguframkvæmdum í fjórðungnum. Segir að verið sé að svíkja ítrekuð loforð ráðherra og þingmanna um að þær nýframkvæmdir sem ættu núna að vera á lokastigi yrðu kláraðar eins fljótt og mögulegt væri. Innlent 28. júní 2024 14:36
Væru með helmingi færri þingmenn Flokkarnir sem mynda núverandi meirihluta í Reykjavík gætu myndað ríkisstjórn með ríflegum meirihluta samkvæmt nýlegri könnun Maskínu. Stjórnmálafræðingur segir Sjálfstæðisflokkinn þurfa að gera upp við sig hvert hann sækir tapað fylgi. Formaðurinn tekur fylgistapinu alvarlega. Innlent 27. júní 2024 19:30
Kæri Jón Kaldal Jón Kaldal skrifar skoðanagrein í fyrradag, þar sem hann fagnar því að frumvarp um lagareldi hafi ekki náð fram að ganga. Það er skiljanlegt að Jón, talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins, sé gagnrýninn á lagareldisfrumvarpið. Skoðun 27. júní 2024 16:00
Sanna stefnir á þing Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, hyggst bjóða sig fram til þings fyrir hönd flokksins hljóti hún stuðning félaga sinna. Innlent 27. júní 2024 12:28
Öll stór verkútboð liggja í salti hjá Vegagerðinni Útboð stórra verka hafa verið stopp hjá Vegagerðinni frá því síðastliðið haust og stefnir í að engar nýjar stórframkvæmdir hefjist á þessu ári. Helsta skýringin er sögð sú að áform um einkafjármögnun vegagerðar yfir Hornafjörð gengu ekki eftir og því þurfi að fjármagna hana úr öðrum verkefnum. Innlent 26. júní 2024 23:00
Ræðustóll og húsgögn á bak og burt Framkvæmdir standa nú yfir í þingsalnum á Alþingi. Borð, stólar og ponta eru á bak og burt og tómlegt er um að litast í salnum. Innlent 26. júní 2024 22:50
„Örvænting í Valhöll“ færi Miðflokkurinn fram úr Sjálfstæðisflokknum Sjálfstæðisflokkurinn missir tæplega þrjú prósentustig frá síðustu mælingu Maskínu, en fylgi hans hefur aldrei mælst minna. Þá hefur samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna aldrei verið minna, og stendur í þrjátíu prósentum. Stjórnmálafræðiprófessor segir núliðið þing síðasta vinnuþingið að sinni, í haust verði þingmenn komnir í kosningaham. Innlent 26. júní 2024 18:09
Forsætisráðherra vongóður um samkomulag um stjórnarskrárbreytingar Forsætisráðherra tekur undir með forseta Íslands með að skerpa megi á ýmsum ákvæðum stjórnarskrárinnar varðandi embætti forseta. Hann geri sér vonir um að samkomulag náist milli flokka á þingi stjórnarskrárbreytinigar. Innlent 26. júní 2024 15:00
Sjálfstæðisflokkur aldrei mælst með minna fylgi Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei mælst með minna fylgi en nú í nýrri könnun Maskínu. Þingflokksformaður Miðflokksins þakkar staðfestu flokksins í útlendingamálum, orkumálum og ríkisfjármálum að hann hefur fest sig í sessi sem þriðji stærsti flokkurinn á Íslandi. Sjálfstæðisflokkurinn líði fyrir að hafa verið í vinstristjórn í sjö ár. Innlent 26. júní 2024 12:24
Miðflokkurinn nartar í hæla Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðisflokkurinn missir tæplega þrjú prósentustig frá síðustu mælingu Maskínu en Sósíalistaflokkurinn bætir við sig tveimur. Marktækur munur er á fylgi Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins sextánda mánuðinn í röð. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna er nú 30 prósent og hefur aldrei verið lægra. Innlent 26. júní 2024 09:21
Árangursríkur þingvetur skilar samfélaginu í rétta átt Á Íslandi er gott að búa og hér höfum við byggt upp öflugt velferðarsamfélag; samfélag sem gefur atvinnulífi og einstaklingum súrefni til að vaxa og dafna, samhliða því að styðja við barnafjölskyldur og þá hópa sem höllum fæti standa. Skoðun 26. júní 2024 08:00
Grásleppusjómenn hafi lengi kallað eftir kvótasetningu Þórarinn Ingi Pétursson, formaður atvinnuveganefndar, segir tilgang grásleppukvótasetningarinnar fyrst og fremst vera að búa til fyrirsjáanleika fyrir þá sem veiðarnar stunda. Grásleppusjómenn hafi lengi kallað eftir því að þetta verði gert. Bátum við grásleppuveiðar hafi fækkað mikið á stuttum tíma undanfarin ár, og nýliðun í greininni sé ekki mikil. Innlent 25. júní 2024 15:21
1969 Árið 1969 var stórmerkilegt ár í mannkynssögunni. Á þessu ári gengu Neil Armstrong og Buzz Aldrin fyrstir manna á tunglinu, hin sögufræga tónlistarhátíð Woodstock fór fram og hljómsveitin Rolling Stones gaf út plötuna „Let it Bleed“ með laginu „You Can't Always Get What You Want.“ Árið 1969 var líka merkilegt í sögu Íslands. Skoðun 25. júní 2024 12:00
Hafa ekki nokkrar áhyggjur af fækkun ferða Forsvarsmenn Hopp hafa ekki áhyggjur af minni notkun rafhlaupahjóla eftir nýjustu breytingar á umferðarlögum sem samþykktar voru af Alþingi þar sem ölvunarakstur rafhlaupahjóla er orðinn refsiverður. Þetta kemur fram í skriflegum svörum Sæunnar Óskar Unnsteinsdóttur framkvæmdastjóra Hopp Reykjavík. Viðskipti innlent 25. júní 2024 09:40
Tímamót í örorku- og endurhæfingarmálum - takk VG, takk ríkisstjórn Mjög hefur ágerst hin síðari ár að ræða um störf kjörinna fulltrúa, á Alþingi og í sveitarstjórnum eins og það sé sjálfgefið að þeir sem þar starfa eigi fátt skilið nema skít og skömm fyrir sín störf. Skoðun 24. júní 2024 18:01