Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. janúar 2026 15:54 Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Vilhelm Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði í pontu Alþingis í dag minnihlutann ekki hafa nein önnur úrræði en að halda áfram umræðum um útlendingafrumvarpið verði frumvarp um grásleppuveiðar enn á dagskrá í dag.
Frumvarpið miðar að því að afnema aflamarksstjórn á grásleppu og er Lilja Rafney Magnúsdóttir þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi fyrsti flutningsmaður. Þar er gert ráð fyrir því að kvótakerfi sem komið var á 2024 með grásleppu verði lagt af og hið gamla dagakerfi tekið upp að nýju. Landssamband grásleppuútgerða hefur lýst sig andvígt afnáminu. Lilja Rafney sagði sig úr VG á sínum tíma vegna kvótasetningarinnar. Geti rætt útlendingamálin fram á kvöld Jón Gunnarsson steig upp í pontu í umræðum um fundarstjórn forseta þegar þingfundur hófst klukkan 13:00. Þar ræddi hann málið sem er á dagskrá þingsins í dag, á eftir umræðu um útlendingalög. „Ég hef farið yfir það hér í morgun og fleiri reyndar yfir athugasemdir okkar við það að svokallað grásleppufrumvarp skuli vera á dagskrá í dag. Það er margt að í vinnslu þess máls og hér er mikilvægt mál fyrir marga aðila, það eru nokkrir grásleppusjómenn þegar farnir á sjó á grundvelli þeirra laga sem unnið er eftir núna, aðrir eru að gera sig klára að fara á sjó eftir helgina,“ sagði Jón. Hann er vel tengdur inn í samfélag grásleppusjómanna en tengdasonur hans rekur grásleppuútgerð á Siglufirði, að því er fram kom í umfjöllun Heimildarinnar á sínum tíma. Jón segir á þingi nú að víða sé beðið eftir þessum mögulegu breytingum á kerfinu. „Það er því víða sem er beðið eftir þessu og ég vil fagna því að það sé eitthvert samtal í gangi núna milli þingflokksformanna um þetta mál og þá væntanlega í framhaldi fundur með þingforseta til að skoða þá beiðni okkar og óskir, til að halda hér friðinn í þessum þingsal, að þá verði þetta mál kallað til baka, það er að segja ekki haft á dagskrá þingsins í dag,“ segir Jón. „Ég vona að það verði niðurstaðan en það er alveg ljóst virðulegur forseti að þetta er eitt af þeim málum sem býr til leiðindi hér í þinginu, og við höfum engin önnur úrræði þá í minnihlutanum annað en þá að halda hér áfram út þennan dag, út þetta kvöld umræðum um útlendingafrumvarpið, sem annars getur farið héðan í tilölulega góðri sát ttil nefndar í annarri og þriðju ti lað fjalla hér um þær góðu breytingartillögur sem við Sjálfstæðismenn lögðum fram við það mál.“
Alþingi Sjávarútvegur Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sjá meira