Mýrin vekur mikla hrifningu Kvikmyndin Mýrin í leikstjórn Baltasars Kormáks hefur hlotið frábærar viðtökur í Bretlandi og Frakklandi að undanförnu. Myndin var frumsýnd í Bretlandi á föstudag og var um að ræða stærstu frumsýningu á íslenskri mynd í Bretlandi frá upphafi. Bíó og sjónvarp 16. september 2008 08:00
Á tökustað Verður Arnold Schwarzenegger í nýju Terminator-myndinni, sem kemur út næsta sumar? Hann hefur alltént sést á tali við Christian Bale á tökustað myndarinnar og hefur það vakið grunsemdir manna á Empire og zimbio.com. Bíó og sjónvarp 12. september 2008 03:00
Kjaftfor strákastelpa Hin 21 árs gamla Ellen Page hefur tekið að sér ímynd hinnar gáfuðu og sjálfstæðu unglingsstúlku, nú síðast í Smart People sem frumsýnd er hér á landi um helgina. Bíó og sjónvarp 11. september 2008 07:00
Speglar sálarinnar Speglar eru miðpunktur nýrrar spennumyndar með Keifer Sutherland sem frumsýnd er hérlendis um helgina. Í Mirrors segir frá Ben Carson, löggu, sem nýbúið er að reka, og tekur að sér næturvörslu í rústum gamallar verslunar. Bíó og sjónvarp 11. september 2008 06:00
Del Toro ráðinn til 2017 Guillermo del Toro hefur undirritað samning við Universal. Að Hobbitanum loknum, 2012, mun del Toro leikstýra fjórum myndum fyrir kvikmyndaverið, til ársins 2017. Allar myndirnar byggja á bókum, það eru Frankenstein, Dr. Jekyll and Mr. Hyde, Slaughterhouse Five eftir Kurt Vonnegut og væntanleg bók Dans Simmons, Drood. Bíó og sjónvarp 6. september 2008 09:00
Draugabanar snúa aftur Fyrirtækið Columbia Pictures hefur í hyggju að framleiða Ghostbusters 3, þriðju myndina um draugabanana skrautlegu. Tæp tuttugu ár eru liðin síðan önnur myndin kom út með þeim Bill Murray, Harold Ramis, Dan Aykroyd og Ernie Hudson í aðalhlutverkum. Talið er að þeir muni allir snúa aftur í nýju myndinni. Bíó og sjónvarp 6. september 2008 08:00
Semur tónlist fyrir stórmynd í Hollywood Jóhann Jóhannsson semur tónlistina við Hollywoodmyndina Personal Effects, sem frumsýnd verður á næsta ári. Í aðalhlutverkum eru stórstjörnurnar Ashton Kutcher, Michelle Pfeiffer og Kathy Bates. Bíó og sjónvarp 6. september 2008 07:00
Umhverfismál í brennidepli á RIFF Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, eða RIFF bætir sífellt við sig. Nú síðast var nýjum heimildamyndaflokki bætt við, sem ber heitið nýr.heimur. Þar verða umhverfismál í brennidepli, en sérstök áhersla er lögð á umhverfisvernd auk tengsla kvikmynda og tónlistar á hátíðinni. Bíó og sjónvarp 6. september 2008 06:00
Katie Holmes sló í gegn Katie Holmes gerði stormandi lukku þegar hún tók að sér gestahlutverk í bandarísku grínþáttunum Eli Stone á dögunum. Þættirnir fjalla um samnefndan lögfræðing sem greinist með slagæðargúlp í heila og fer fljótlega að sjá ýmiss konar sýnir, sem margar hverjar virðast tengjast framtíðaratburðum. Holmes leikur einnig lögfræðing í þáttunum og tekur þátt í dans- og söngatriði. Bíó og sjónvarp 6. september 2008 03:00
Hasarkóngur síðustu ára Jason Statham leikur aðalhlutverkið í Death Race sem frumsýnd verður hér á landi á morgun. Statham hefur á fáum árum gerst hasarkóngur kvikmyndanna og mætti líkja honum við Sylvester Stallone á sínu besta skeiði. En hver er þessi maður? Bíó og sjónvarp 4. september 2008 06:00
Sherlock Holmes verður hörkutól „Ég er ekki kominn með neinn í hlutverk Watsons,“ sagði Guy Ritchie á heimsfrumsýningu RocknRolla, en á þar við næstu mynd sína um Sherlock Holmes. „Einhver sagði mér að ég væri kominn með Russell Crowe, en sá veit þá meira en ég. Mig grunar að það hafi ekki gerst og ég sé enn að leita að Watson.“ Bíó og sjónvarp 4. september 2008 06:00
Smith aftur á flug Aðdáendur Kevins Smith geta glaðst yfir því að annað sýnishorn úr myndinni Zack and Miri Make a Porno er komið á vefinn. Myndin segir frá tveimur vinum, leiknum af Seth Rogen og Elizabeth Banks, sem eru svo blönk að þau ákveða að gera klámmynd. Bíó og sjónvarp 4. september 2008 05:00
Fullvaxta menn, tólf ára enn Gamanmyndaáhugamenn vita að þegar Will Ferrell og John C. Reilly mætast er voðinn vís. Seinast mættust þeir í Talladega Nights: The Ballad of Ricky Bobby, árið 2006 og veltu bíógestum úr sætum sínum með einstakri grínblöndu. Mætast þeir að nýju í Stepbrothers, sem frumsýnd er á föstudaginn. Bíó og sjónvarp 4. september 2008 03:45
Smáfuglar í forvali Stuttmynd Rúnars Rúnarssonar, Smáfuglar, er komin í forval fyrir Óskarsverðlaunin sem verða afhent næsta vor. Með því að vinna til verðlauna á kvikmyndahátíðinni í Melbourne fyrr í sumar fór myndin sjálfkrafa í hóp þeirra sem valið er úr þegar kosnar eru þær fimm myndir sem fá tilnefningu. Bíó og sjónvarp 3. september 2008 03:00
Kvikmyndasmiðja Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík eða RIFF stendur að kvikmyndasmiðju 2. til 4. október. Smiðjan er einungis ætluð kvikmyndagerðarmönnum og ætluð þeim til framdráttar. Bíó og sjónvarp 1. september 2008 04:00
Facebook-kvikmyndin Aaron Sorkin, höfundur West Wing og Charlie Wilsons War, er með kvikmynd um Facebook í smíðum. Fréttir af verkefninu bárust í gegnum Facebook-síðu Sorkin. Bíó og sjónvarp 29. ágúst 2008 06:30
Ráðstefna á RIFF Ráðstefna um snertifleti tónlistar og kvikmynda verður á tónlistardagskrá Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, eða RIFF. Sjónum verður beint að heimildarmyndinni Heima og skoðað hvað gerði þá mynd eins vinsæla og vel heppnaða og raun ber vitni. Bíó og sjónvarp 29. ágúst 2008 06:00
Einn með íslenskri náttúru Stefan Erdmann er ástfanginn af Íslandi. Svo ástfanginn að hann hefur helgað sig landinu og kvikmynd um það seinustu ár. Myndin heitir Island 63°66° og er sýnd á Shorts and Docs. Bíó og sjónvarp 29. ágúst 2008 05:15
Skrapp út fær góða dóma Kvikmyndin Skrapp út fær góða dóma á heimasíðu hins virta bandaríska kvikmyndatímarits Variety. „Þetta er hæglát og sniðug gamanmynd um hassreykjandi íslenskt ljóðskáld, skrítna vini hennar og fjölskyldu. Skrapp út er lítil og skemmtileg mynd sem er uppfull af töfrandi augnablikum," segir í umfjöllun tímaritsins. „Leikstjórinn Sólveig Anspach sýnir meðfædda hæfileika fyrir hversdagslegu gríni og myndin gæti hitt í mark hjá almenningi fái hún góða dreifingu og gott umtal." Bíó og sjónvarp 26. ágúst 2008 03:30
English Pub í þýskri mynd English Pub var undirlagður af kvikmyndatökufólki fyrr í vikunni, þegar þar fóru fram lokatökur á þýsk/íslenskri sjónvarpsmynd. Bíó og sjónvarp 24. ágúst 2008 06:00
Bláu mennirnir slá í gegn Danska kvikmyndin Blå mænd [ísl. Bláu mennirnir], sem er dreift af Scanbox, fyrirtæki í eigu Sigurjóns Sighvatssonar og fjölskyldu hans, hefur heldur betur slegið í gegn í Danaveldi. Myndin var frumsýnd fyrir rétt rúmri viku og sáu um 105 þúsund manns myndina fyrstu sýningarhelgina. Bíó og sjónvarp 23. ágúst 2008 12:01
Smáfuglar hljóta verðlaun í Melbourne Smáfuglar, nýjasta stuttmynd Rúnars Rúnarssonar, hlaut á dögunum verðlaun sem besta leikna stuttmyndin á MIFF kvikmyndahátíðinni í Melbourne í Ástralíu. Bíó og sjónvarp 8. ágúst 2008 16:31
Vélmennið og gúrúinn Í þessari viku eru tvær myndir frumsýndar, nýjasta myndin frá teiknimyndaverinu Pixar um vélmennið WALL-E, og gamanmyndin The Love Guru með Mike Myers. Bíó og sjónvarp 31. júlí 2008 06:00
Fleiri skrímsli frá del Toro Guillermo del Toro, leikstjóri og framleiðandi mynda eins og Hellboy, Laberinto del fauno, eða Pan's Labyrinth, og The Orphanage hefur tekið að sér að framleiða endurgerð hryllings-sjónvarpsmyndarinnar Don't Be Afraid of the Dark. Bíó og sjónvarp 31. júlí 2008 06:00
Vill Depp í hlutverkið Rokkarinn Tommy Lee hefur lýst því yfir að hann vilji að Johnny Depp leiki sig í kvikmynd byggðri á sögu hljómsveitarinnar Mötley Crue. Ástæðan fyrir að Tommy Lee er svo æstur í að fá Depp í hlutverkið er sú að honum finnst þeir búa yfir sömu persónueinkennum. „Við erum að vinna í myndinni og erum að reyna að finna hentugan leikstjóra, framleiðendur og leikara,“ sagði Lee. Bíó og sjónvarp 30. júlí 2008 03:45
Dark Knight slær öll aðsóknarmet „Við vorum einmitt að fá póst frá Warner Brothers þar sem þeir óska okkur til hamingju með þennan árangur,“ segir Sigurður Victor Chelbat, markaðsstjóri SamFilm, sem sér um dreifingu kvikmyndarinnar The Dark Knight, en myndin hefur slegið öll aðsóknarmet á Íslandi síðan hún var frumsýnd 23. júlí síðastliðinn. Bíó og sjónvarp 29. júlí 2008 06:00
Ný íslensk brettamynd í bíó Getting There, ný íslensk snjóbrettamynd, verður sýnd klukkan sex í Laugarásbíói í dag. Pétur Kristján Guðmundsson stendur að myndinni. Bíó og sjónvarp 29. júlí 2008 06:00
Fjórar íslenskar myndir fyrir jól Að minnsta kosti fjórar íslenskar myndir verða frumsýndar fyrir jól ef allt gengur samkvæmt áætlun. Bíó og sjónvarp 24. júlí 2008 09:00
Önnur mynd væntanleg Matt Groening hefur staðfest að það verði gerð önnur mynd um helsta sköpunarverk hans, Simpsons-fjölskylduna alræmdu. Fyrsta myndin, sem hét því frumlega nafni The Simpsons Movie, hlaut afar góðar viðtökur á síðasta ári og rakaði inn 500 milljónum dollara í miðasölu. Bíó og sjónvarp 24. júlí 2008 04:00
Ég fer aldrei til Hollywood Dagur Kári Pétursson hefur lokið tökum á nýjustu kvikmynd sinni, The Good Heart, og er kominn heim á klakann á ný. Vinnunni er þó langt því frá lokið því nú tekur við öll eftirvinna myndarinnar. Bíó og sjónvarp 23. júlí 2008 06:00