Trump með stöðu sakbornings, aftur Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segir Jack Smith, sérstakan rannsakenda Dómsmálaráðuneytisins, hafa tilkynnt sér að hann hafi stöðu sakbornings í enn einu málinu. Þetta mál snýr að viðleitni Trumps til að snúa niðurstöðum forsetakosninganna 2020, sem hann tapaði gegn Joe Biden, núverandi forseta, og gefur tilkynningin til kynna að Trump verði ákærður. Erlent 18. júlí 2023 15:09
Sagði SARS-CoV-2 hannaða til að leggjast þyngra á hvíta og svarta Nánir ættingjar forsetaframbjóðandans Robert Kennedy Jr. hafa fordæmt ummæli sem hann lét falla um helgina þess efnis að svo virtist sem SARS-CoV-2 veirunni hefði verið breytt til að leggjast þyngra á hvítt og svart fólk en gyðinga og Kínverja. Erlent 18. júlí 2023 07:28
Uppsagnir og óhófleg eyðsla í kosningabaráttu DeSantis Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída og forsetaframbjóðandi, hefur þegar þurft að segja upp starfsfólki í kosningaherferð sinni, en upplýsingar gefa í skyn að óhóflega mikið fjármagn hafi farið í framboð hans miðað við hve stutt baráttan er komin. Erlent 16. júlí 2023 12:47
Vill fresta réttarhöldum fram yfir kosningar Lögmenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hafa farið fram á að réttarhöldum yfir honum vegna leynilegra skjala sem hann tók með sér úr Hvíta húsinu verði frestað þar til eftir forsetakosningarnar í nóvember á næsta ári. Þeir segja óréttlátt að rétta yfir Trump á þessu ári, þar sem Trump verði upptekinn við kosningabaráttu og vegna annarra sakamála sem að honum beinast. Erlent 11. júlí 2023 09:14
CNN birtir upptöku af Trump ræða leynileg skjöl um árás á Íran CNN hefur komist yfir og birt upptöku þar sem Donald Trump heyrist ræða um leynileg skjöl sem hann hefur undir höndum og viðurkennir að hafa ekki aflétt leynd af. Erlent 27. júní 2023 06:52
Gagnrýnandi Trump býður sig fram gegn honum Will Hurd, fyrrverandi fulltrúadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins frá Texas, skilaði inn formlegu framboði í forvali flokksins fyrir forsetakosningar næsta árs í dag. Hurd skaut föstum skotum að Donald Trump þegar hann tilkynnti um framboðið. Erlent 22. júní 2023 15:47
Segist hafa sýnt blaðaúrklippu en ekki leyniskjal Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segist ekki hafa sýnt tveimur rithöfundum leynilegt skjal, heldur hafi það verið blaðaúrklippa. Á upptöku segir Trump að skjalið sé leynilegt og er það eitt þeirra sem hann hefur verið ákærður fyrir að taka með sér úr Hvíta húsinu. Erlent 20. júní 2023 16:01
Hafnaði ráðleggingum og laug að ráðgjöfum um leyniskjölin Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hafnaði ítrekaðri viðleitni lögmanna hans og ráðgjafa til að reyna að fá hann til að skila gögnum og leynilegum skjölum. Ítrekað var reynt að fá Trump til að gera samkomulag við Dómsmálaráðuneytið til að forðast ákærur, en forsetinn fyrrverandi vildi ekki heyra slíkt. Erlent 15. júní 2023 11:08
Vígreift afmælisbarn sakar Biden um spillingu og að grafa undan lýðræðinu „Það var verið að ákæra mig. Dásamlegur afmælisdagur,“ sagði Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, þegar hann ávarpaði stuðningsmenn sína við gólfklúbb sinn í New Jersey í gær, eftir að hann var ákærður fyrir óvarlega meðferð leyniskjala. Erlent 14. júní 2023 07:02
Umdeildur dómari sem Trump tilnefndi stýrir réttarhöldunum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, mætir fyrir dómara í fyrsta sinn eftir að hann var ákærður í leyniskjalamálinu svokallaða. Þar tekur á móti honum umdeildur dómari sem hann sjálfur tilnefndi og hefur áður tekið ákvarðanir honum í vil. Erlent 13. júní 2023 13:00
Lögregluyfirvöld segjast geta höndlað allt að 50 þúsund mótmælendur Mikill viðbúnaður er í Miami þar sem Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti mun mæta fyrir dóm í dag. Lögregla hefur unnið að því að fullvissa íbúa um að hún sé fær um að takast á við ástandið og allt að 50 þúsund mótmælendur. Erlent 13. júní 2023 06:57
Soros felur syni sínum stjórn á viðskiptaveldinu Milljarðamæringurinn George Soros ætlar að láta yngri syni sínum eftir stjórn á viðskiptaveldi sínu. Hægrihreyfingar um allan heim haf gert Soros að sérstakri grýlu en sonurinn segist „pólitískari“ en faðir sinn. Viðskipti erlent 12. júní 2023 09:25
Vara við hættulegri orðræðu stuðningsmanna Trump Sérfræðingar eru uggandi vegna orðræðu stuðningsmanna Trump í kjölfar þess að ákærur voru gefnar út á hendur honum í tengslum við leyniskjöl sem hann tók úr Hvíta húsinu, faldi á heimili sínu í Flórída og neitaði að afhenda þegar eftir því var leitað. Erlent 12. júní 2023 08:38
Ákæran sé ein versta valdníðslan í sögu landsins Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, segir ákæru á hendur sér vegna þess að hann hélt opinberum gögnum með ólöglegum hætti og hindraði framgang réttvísinnar, munu fara í sögubækurnar sem ein versta valdníðslan í sögu Bandaríkjanna. Erlent 10. júní 2023 21:29
Viðurkenndi á upptöku að gögnin væru leynileg Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, viðurkenndi á upptöku að hann hefði ekki svipt leyndinni af skjölum sem hann tók með sér úr Hvíta húsinu. Þá viðurkenndi hann einnig að hann gæti ekki svipt hulunni af þeim lengur, þar sem hann væri ekki enn forseti. Erlent 9. júní 2023 16:18
Keppinautar Trump koma honum enn til varnar eftir ákæru Nokkrir mótframbjóðendur Donalds Trump sem keppa við hann um að verða forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins tóku undir gagnrýni hans á dómsmálayfirvöld eftir að hann var ákærður vegna leyniskjala sem hann hélt eftir. Ákæran er söguleg en kemur ekki í veg fyrir að Trump geti boðið sig fram til forseta. Erlent 9. júní 2023 09:07
Trump ákærður vegna leyniskjala Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, greinir frá því á samfélagsmiðlum að hann hafi verið ákærður vegna leyniskjala sem hann hafði með sér úr Hvíta húsinu þegar hann lét af embætti. Erlent 9. júní 2023 00:03
Líkurnar á að Trump verði ákærður vegna leyniskjalanna aukast Alríkissaksóknarar hafa tjáð lögmönnum Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, að hann sé viðfangsefni rannsóknar þeirra á leyniskjölum sem Trump hafði með sér úr Hvíta húsinu þegar hann lét af embætti. Þetta er sagt benda til þess að Trump verði líklega ákærður. Erlent 8. júní 2023 09:16
Pence segir óbeinum orðum að Trump sé vanhæfur „Sjötti janúar var sorgardagur í sögu þjóðar okkar. En þökk sé hugrekki löggæsluyfirvalda náðist að kveða ofbeldið niður og hefja þingfund á ný. Sama dag ógnuðu kæruleysisleg orð Trump forseta fjölskyldu minni og öllum í þinghúsinu.“ Erlent 8. júní 2023 08:12
Lögmenn Trump funduðu um gagnamálið í dómsmálaráðuneytinu Þrír lögmenn Donald Trump áttu tveggja tíma fund í dómsmálaráðuneytinu í Washington í gær til að ræða framgöngu sérstaks saksóknara við rannsókn á meðhöndlun forsetans fyrrverandi á leynilegum gögnum. Erlent 6. júní 2023 07:32
Pence býður sig fram Mike Pence, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, ætlar að sækjast eftir tilnefningu Repúblikanaflokksins til forsetakosninga sem haldnar verða á næsta ári. Mun hann því aftur fara gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta, en forsetatíð hans endaði á árásinni á þinghúsið þar sem stuðningsmenn Trumps kölluðu eftir því að Pence yrði hengdur. Erlent 5. júní 2023 15:51
Biden féll á sviði Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, féll á sviði í Colorado í kvöld, þar sem verið var að útskrifa fólk úr skóla flughers Bandaríkjanna. Forsetann sakaði ekki. Erlent 1. júní 2023 21:29
Christie sagður ætla að lýsa yfir framboði Chris Christie, fyrrverandi ríkisstjóri New Jersey og ráðgjafi Donalds Trump, er sagður ætla að lýsa yfir forsetaframboði í næstu viku. Stuðningsmenn Christie hafa hleypti nýrri pólitískri aðgerðanefnd af stokkunum til þess að styðja framboðið. Erlent 31. maí 2023 12:05
„DeSaster“ er DeSantis hóf kosningabaráttu sína Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, opinberaði í gær það sem allir vissu, að hann ætlaði að sækjast eftir tilnefningu Repúblikanaflokksins til forsetakosninga í Bandaríkjunum á næsta ári. DeSantis birti myndband þar sem hann kvartaði yfir ástandinu á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó og glæpatíðni í borgum, svo eitthvað sé nefnt. Erlent 25. maí 2023 13:20
DeSantis staðfestir forsetaframboð sitt Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, hefur lýst formlega yfir framboði sínu til forseta Bandaríkjanna. DeSantis hefur sagst vera sá eini í forvali Repúblikana sem eigi möguleika á að skáka Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, í komandi kosningum. Erlent 24. maí 2023 23:30
Mútugreiðslumálið tekið fyrir í miðju forvali fyrir forsetakosningarnar Dómsmálið gegn Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, þar sem hann er sakaður um bóhaldssvik í tengslum við greiðslur til klámmyndastjörnunnar Stormy Daniels, verður tekið fyrir 25. mars næstkomandi. Erlent 24. maí 2023 08:16
Hyggst tilkynna framboðið á morgun með Elon Musk Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, hyggst lýsa formlega yfir forsetaframboði sínu á morgun. Hann hyggst gera það ásamt milljónamæringnum Elon Musk á stafrænum vettvangi á samfélagsmiðlinum Twitter, í eigu milljónamæringsins. Erlent 23. maí 2023 23:45
Enn bætist í hóp frambjóðenda hjá repúblikönum Tíundi frambjóðandinn bætist við í forvali Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningar á næsta ári þegar Tim Scott, öldungadeildarþingmaður flokksins, lýsir formlega yfir framboði sínu í dag. Fastlega er búist við því að Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída og helsti áskorandi Donalds Trump, kynni sitt framboð í vikunni. Erlent 22. maí 2023 13:59
DeSantis sagður lýsa yfir framboði á næstu dögum Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, er sagður ætla að lýsa formlega yfir forsetaframboði í næstu viku. Hann sagði bakhjörlum sínum og stuðningsmönnum að hann væri sá eini sem gæti unnið í forvali Repúblikanaflokksins og í forsetakosningunum á næsta ári. Erlent 19. maí 2023 09:00
Gæti stefnt Trump þriðja sinni fyrir meiðyrði Konan sem hafði sigur gegn Donald Trump í einkamáli vegna kynferðisofbeldis og ærumeiðinga í vikunni gæti stefnt honum aftur, nú fyrir ummæli sem hann lét falla í viðtali á CNN í gærkvöldi. Hún segir orð sem Trump viðhafði um hana viðbjóðsleg. Erlent 11. maí 2023 23:50