Christopher Kise og Todd Blanche lögðu í gær fram kröfu þar sem þeir lögðu til að engin dagsetning yrði sett á það hvenær réttarhöldin myndu hefjast. Það að halda réttarhöldin fyrir kosningar myndi samkvæmt lögmönnunum koma niður á rétti Trumps til að hljóta sanngjörn réttarhöld og koma niður á kosningabaráttu hans.
Lögmennirnir gera ráð fyrir því að Trump sigri í forvali Repúblikanaflokksins og verði upptekinn út næsta ár en kosningarnar fara fram í nóvember 2024.
Trump var í síðasta mánuði ákærður í 37 liðum sem snúa flestir að því að hann hafi neitað að skila leynilegum gögnum, sem hann mátti ekki taka með sér þegar hann hætti sem forseti. Eins og frægt er tók hann mikið magn opinberra gagna með sér, sem hann hefði lögum samkvæmt átt að skila til Þjóðskjalasafns Bandaríkjanna.
Forsetinn fyrrverandi neitað að skila gögnunum og er sakaður um að hafa reynt að fela leynileg skjöl, með því markmiði að komast hjá því að skila þeim. Mikið magn opinberra gagna fundust á heimili hans og í Mar A Lago í Flórída, þegar rannsakendur Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) gerðu húsleit þar.
Umrædd leynileg skjöl snerust meðal annars að varnarmálum Bandaríkjanna og annarra ríkja, kjarnorkuvopnum Bandaríkjanna og mögulegum veikleikum Bandaríkjanna og annarra ríkja, svo eitthvað sé nefnt.
Sjá einnig: CNN birtir upptöku af Trump ræða leynileg skjöl um árás á Íran
Saksóknari vill réttarhöld í desember
Jack Smith, sérstakur rannsakandi Dómsmálaráðuneytisins, hefur farið fram á að réttarhöldin gegn Trump hefjist í desember. Dómarinn í málinu, sem skipuð var í embætti af Trump sjálfum, hefur skipulagt málaflutning á föstudaginn en lögmenn Trumps segja að einnig þurfi að fresta því þar til í næstu viku.
þeir segja lögmann Walt Nauta, starfsmanns Trumps sem einnig hefur verið ákærður, þurfa meiri tíma til undirbúnings. Lögmennirnir segja einnig að bæði Trump og Nauta séu of uppteknir vegna kosninganna til að undirbúa réttarhöld í lok þessa árs. Nauta vinnur við að aðstoða Trump og fylgir honum hvert sem hann fer.
Líka upptekin við önnur réttarhöld
Þá segja lögmennirnir að réttarhöldin vegna leyniskjalanna geti ekki farið fram í desember, vegna annarra réttarhalda og rannsókna sem Trump standi frammi fyrir. Til að mynda verður réttað yfir honum í Manhattan í New York í mars á næsta ári en þau réttarhöld tengjast 130 þúsunda dala greiðslu til fyrrverandi klámleikkonu í aðdraganda forsetakosninganna 2016.
Trump stendur einnig frammi fyrir réttarhöldum í New York í október sem tengjast áskönunum umdæmasaksóknara um að Trump hafi framið svik. Þar að auki gæti Trump verið ákærður vegna viðleitni hans til að breyta niðurstöðum forsetakosninganna í Georgíu árið 2020. AP fréttaveitan segir að ákvörðun um ákæru gæti verið tekin í dag.