

Donald Trump
Fréttir tengdar 45. og 47. forseta Bandaríkjanna, Donald Trump.

Stofnandi Oath Keepers dæmdur í átján ára fangelsi
Stewart Rhodes, stofnandi öfgasamtakanna Oath Keepers í Bandaríkjunum, var í gær dæmdur til átján ára fangelsisvistar vegna aðkomu hans að árásinni á þinghúsið í Bandaríkjunum þann 6. janúar 2021. Þetta er lengsti fangelsisdómur sem veittur hefur verið vegna árásarinnar.

Mútugreiðslumálið tekið fyrir í miðju forvali fyrir forsetakosningarnar
Dómsmálið gegn Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, þar sem hann er sakaður um bóhaldssvik í tengslum við greiðslur til klámmyndastjörnunnar Stormy Daniels, verður tekið fyrir 25. mars næstkomandi.

Skoða viðskipti Trump við erlend ríki í samhengi við leyniskjöl
Alríkissaksóknarar sem rannsaka leyniskjöl sem Donald Trump hafði með sér þegar hann lét af embætti forseta Bandaríkjanna stefndu fyrirtæki hans um upplýsingar um viðskiptatengsl við sjö erlend ríki. Rannsóknin kann því að beinast að því hvort að Trump hafi nýtt sér skjölin í viðskiptum sínum á erlendri grundu.

DeSantis sagður lýsa yfir framboði á næstu dögum
Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, er sagður ætla að lýsa formlega yfir forsetaframboði í næstu viku. Hann sagði bakhjörlum sínum og stuðningsmönnum að hann væri sá eini sem gæti unnið í forvali Repúblikanaflokksins og í forsetakosningunum á næsta ári.

Gæti stefnt Trump þriðja sinni fyrir meiðyrði
Konan sem hafði sigur gegn Donald Trump í einkamáli vegna kynferðisofbeldis og ærumeiðinga í vikunni gæti stefnt honum aftur, nú fyrir ummæli sem hann lét falla í viðtali á CNN í gærkvöldi. Hún segir orð sem Trump viðhafði um hana viðbjóðsleg.

Segist geta bundið enda á átökin í Úkraínu á 24 klukkustundum
„Niðurstöðum kosninganna var ekki hagrætt, herra forseti. Þú getur ekki haldið áfram að tyggja á því í allt kvöld,“ sagði Kaitlan Collins, stjórnandi íbúafundar CNN með Donald Trump í New Hampshire í gær, eftir ítrekaðar staðhæfingar Trump um svik í forsetakosningunum 2020.

Kynferðisbrotamál Trump muni verða til umræðu í kosningabaráttunni
Silja Bára Ómarsdóttir, stjórnmálafræðiprófessor við Háskóla Íslands, telur að kynferðisbrots dómur Donald Trump munu vafalaust verða til umræðu í kosningabaráttunni. Óvíst sé hver áhrifin verða í atkvæðum talið.

Trump fundinn sekur um kynferðisofbeldi og ærumeiðingar
Kviðdómur í New York dæmdi Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sekan um kynferðisofbeldi og ærumeiðingar í garð E. Jean Carroll í dag. Trump var dæmdur til þess að greiða Carroll fimm milljónir dollara í miskabætur, jafnvirði tæpra 690 milljóna íslenskra króna.

Segir ásakanir um nauðgun „fáránlegar“ og „ógeðslegar“
Kviðdómur í New York fékk í gær að heyra upptöku af skýrslutökum yfir Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem gerðar voru í aðdraganda dómsmálsins sem nú stendur yfir þar sem Trump er sakaður um nauðgun.

„Hann nauðgaði mér, hvort sem ég öskraði eða ekki“
E Jean Carroll tókst á við Joe Tacopina, lögmann Donald Trump, í réttarsal í New York í gær og neitaði því ítrekað að hafa skáldað að hafa verið nauðgað af forsetanum fyrrverandi í verslun í borginni.

Pence bar vitni í kosningamáli Trump
Kviðdómendur í ákærudómstól í Washington-borg hlýddu í gær á framburð Mike Pence, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna, í tengslum við rannsókn á tilraunum Donalds Trump og bandamanna hans til að snúa við úrslitum forsetakosninganna árið 2020. Dómstóll hafði áður staðfest að Trump gæti ekki komið í veg fyrir vitnisburð Pence.

„Ég er hér vegna þess að Donald Trump nauðgaði mér“
Rithöfundurinn E. Jean Carroll sagði fyrir dómi í dag að Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti hafi nauðgað henni á tíunda áratugnum. Í kjölfarið hafi hún ekki getað átt í ástarsamböndum og mannorð hennar hafi verið í rúst eftir að hann sakaði hana um lygar.

Velja kviðdómendur í nauðgunarmáli Trump
Byrjað verður að velja kviðdómendur í máli E. Jean Carroll, fyrrverandi pistlahöfundar, gegn Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í New York í dag. Carroll sakar Trump um að hafa nauðgað sér í stórverslun í borginni á 10. áratugnum.

Tucker Carlson hættur hjá Fox News
Sjónvarpsmaðurinn Tucker Carlson, einn sá vinsælasti í sínu fagi í Bandaríkjunum, hefur lokið störfum hjá Fox News. BBC greinir frá og vísar til stuttrar tilkynningar frá Fox sjónvarpsstöðinni.

Óttast viðbrögð kjósenda við aðgerðum gegn rétti til þungunarrofs
Repúblikanar hafa áhyggjur af því að afstaða flokksins til hertra reglna um þungunarrof og aðgerðir í þá átt, muni koma niður á flokknum í kosningum næsta árs. Þeir óttast að stefna flokksins í þessum málum höfði mjög til þeirra flokksmeðlima sem ákveða úrslit forvala í flokknum, en sé óvinsæl meðal almennra kjósenda.

Trump malar gull á ákærunum
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur safnað meira en 34 milljónum dala í kosningasjóð sinn á þessu ári. Fjárveitingar til hans jukust mjög eftir að hann var ákærður í New York í síðastan mánuði.

„Konungnum hefur verið steypt af stóli“
Stormy Daniels, fyrrverandi klámstjarna, hefur tjáð sig opinberlega í fyrsta skiptið frá því að Donald Trump var ákærður á miðvikudag. Hún segist tilbúin til að bera vitni gegn Trump ef hún er kölluð til vitnis.

Vígreifur Trump gaf lítið fyrir fyrirmæli dómarans
Aðeins nokkrum klukkustundum eftir að dómarinn Juan Merchan ráðlagði Trump að stíga varlega til jarðar í ummælum sínum um yfirvofandi réttarhöld var forsetinn fyrrverandi kominn í vígaham og sakaði meðal annars dómarann og fjölskyldu hans um að hata sig.

Vaktin: Donald Trump leiddur fyrir dómara í New York
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur verið ákærður fyrir bókhaldsbrot í tengslum við mútugreiðslur til klámmyndastjörnunnar Stormy Daniels. Ákæran er í 34 liðum en Trump hefur lýst sig saklausan af þeim öllum.

Trump kominn til New York og verður leiddur fyrir dómara kl. 18.15
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, kom til New York í gær. Síðar í dag, um klukkan 18 að íslenskum tíma, fer fram þingfesting í máli gegn honum í tengslum við mútugreiðslur til klámmyndastjörnunnar Stormy Daniels.

Telja Trump hafa hindrað rannsókn á leyniskjölum
Bandaríska dómsmálaráðuneytið og alríkislögreglan eru sögð hafa safnað nýjum sönnunargögnum sem benda til þess að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hafi reynt að leggja stein í götu rannsóknar á leyniskjölum sem fundust á heimili hans í fyrra.

Trump hyggst ávarpa stuðningsmenn sína eftir þingfestingu
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er sagður í baráttuhug en hann flýgur til New York í dag. Þar mun hann verða dreginn fyrir dómara á morgun og látinn svara ákærum í tengslum við mútugreiðslur til klámmyndastjörnunnar Stormy Daniels.

Trump ekki settur í handjárn
Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti verður ekki settur í handjárn þegar hann verður leiddur fyrir ákærudómstól í New York í vikunni. Viðbúnaður verður mikill og gert er ráð fyrir því að tugir leynilögreglumanna taki á móti Trump.

Keppinautar Trump fylkja sér að baki honum eftir ákæru
Leiðtogar Repúblikanaflokksins og helstu keppinautar Donalds Trump um útnenfningu flokksins fyrir forsetakosningar næsta árs fylktu sér að baki honum eftir að hann var ákærður í gær. Búist er við því að Trump gefi sig fram við yfirvöld í New York í næstu viku.

Trump ákærður í New York
Meðlimir ákærudómstóls í New York hafa lagt til að Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, verði ákærður. Nákvæmlega fyrir hvað liggur ekki fyrir enn en búist er við því að Alvin Bragg, umdæmissaksóknari í Manhattan, opinberi ákæruna á næstu dögum.

Selenskí sagður uggandi vegna forsetakosninganna vestanhafs
Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur áhyggjur af því að mögulegar breytingar á hinu pólitíska landslagi Vestanhafs muni hafa áhrif á gang stríðsins í Úkraínu. „Bandaríki skilja að ef þeir hætta að aðstoða okkur þá vinnum við ekki,“ sagði forsetinn í viðtali við AP.

Trump með 25 prósent forskot á DeSantis á landsvísu
Donald Trump mælist nú með 50 prósenta fylgi á landsvísu en Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, með 24 prósent. DeSantis farnast hins vegar betur í Iowa og New Hampshire, þar sem fyrst verður gengið til atkvæða í forkosningum forsetakosninganna.

Trump hóf kosningabaráttuna með kór uppreisnarmanna
Fyrsti fjöldafundur kosningabaráttu Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hófst með söng kórs stuðningsmanna hans sem voru fangelsaðir fyrir að ráðast á þinghúsið fyrir tveimur árum. Trump eyddi stórum hluta fundarins í að níða saksóknara sem rannsaka hann.

Stefnir stuðningsmönnum til Waco í skugga yfirvofandi ákæru
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, ætlar að halda sinn fyrsta fjöldafund í kosningabaráttu sinni í borginni Waco í Texas í dag. Hann hefur undanfarna daga hvatt stuðningsmenn sína til mótmæla og hótað ofbeldi vegna mögulegra ákæra sem hann á yfir höfði sér.

Varar við „dauða og eyðileggingu“ verði hann ákærður
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, varaði í nótt því að „dauði og eyðilegging“ gæti fylgt því ef hann yrði handtekinn. Í sömu færslu kallaði Trump saksóknarann sem talinn er líklegur til að ákæra hann „úrkynjaðan geðsjúkling“ sem hataði Bandaríkin.