Bylting í skipulagi miðbæjar Hafnarfjarðar Í dag var gengið frá samkomulagi um mestu framkvæmdir í miðbæ Hafnarfjarðar í áratugi. Alger bylting verður á í nýjum húsakosti bókasafns bæjarins, að sögn bæjarstjórans. Innlent 28. ágúst 2024 19:21
Veita fjölskyldunni alla viðeigandi aðstoð Sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi veitir fjölskyldu karlmannsins sem lést í slysi á Breiðamerkurjökli á sunnudaginn alla viðeigandi ræðisaðstoð. Þetta kemur fram í skriflegu svari frá sendiráðinu. Innlent 28. ágúst 2024 13:43
Vikið úr stjórn fjallaleiðsögumanna eftir slysið Öðrum eiganda fyrirtækisins sem var með hópinn sem lenti í mannskæðu slysi á Breiðamerkurjökli var vikið úr stjórn Félags fjallaleiðsögumanna daginn eftir slysið. Honum var einnig vikið frá störfum sem leiðbeinandi hjá félaginu. Innlent 28. ágúst 2024 12:52
Greinir á hvort námið hafi verið lagt niður degi eftir banaslys Kennari í jökla- og fjallaleiðsögn segir að menntamálaráðuneytið hafi tilkynnt Framhaldsskólanum í Austur Skaftafellssýslu (FAS) degi eftir banaslys í íshelli að nám í greininni verði lagt niður um áramótin. Hún segir að menntaðir og reyndir jöklaleiðsögumenn hefðu aldrei farið inn í íshellinn á sunnudaginn. Ráðuneytið hafnar því að hafa lagt til að námið yrði lagt niður. Innlent 28. ágúst 2024 11:56
Tíu ára stelpa vitni að banaslysinu við Breiðamerkurjökul Feðgin frá Bandaríkjunum telja sig hafa verið augnablikum frá því að farast í slysinu á Breiðamerkurjökli á sunnudaginn. Faðirinn segir leiðsögumennina hafa verið í áfalli og sjálfur hafi hann horft á konuna sem varð fyrir ísfarginu sárkvalda. Hann getur ekki hugsað til þess að feðginin hefðu sjálf orðið fyrir ísmassanum. Innlent 28. ágúst 2024 10:51
„Við þurfum bara að læra að segja nei“ Leiðsögumaður, ferðaþjónustufyrirtæki, ferðasölufyrirtæki og þjóðgarðurinn Vatnajökull brugðust í aðdraganda slyssins á Breiðamerkurjökli þar sem tveir bandarískir ferðamenn lentu undir ís í fyrradag. Þetta er mat Stephan Mantler jöklaleiðsögumanns sem hefur áratuga reynslu af jökla- og fjallamennsku á Íslandi. Innlent 27. ágúst 2024 22:36
Þjóðgarðurinn hafi getað komið í veg fyrir slysið Vatnajökulsþjóðgarður hefði getað komið í veg fyrir slysið á Breiðamerkurjökli ef farið hefði verið eftir skýrslu þar sem varað var við hættu, segir ráðherra. Framkvæmdastjóri þjóðgarðsins segir stofnunina finna til ábyrgðar og að fyrirkomulag á svæðinu verði endurskoðað. Innlent 27. ágúst 2024 21:01
Samstarfi um milljarðauppbyggingu slitið Íslandshótel og Skógarböðin hafa slitið samstarfi um uppbyggingu og rekstur hótels við Skógarböðin í Eyjafirði sem áætlað var að opna á vormánuðum 2026. Viljayfirlýsing um samstarf var undirrituð í ársbyrjun en reiknað var með fjárfestingu upp á um fimm milljarða króna. Viðskipti innlent 27. ágúst 2024 18:27
Eyðilögð vegna málsins og skoðar stífari ramma Framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarð segir starfsfólk eyðilagt vegna banaslyssins í Breiðamerkurjökli. Til skoðunar er að herða skilyrði til jöklaferða til muna. Innlent 27. ágúst 2024 17:12
Kona á sjötugsaldri dregin meðvitundarlaus upp úr Silfru Þyrla landhelgisgæslunnar var kölluð út á fjórða tímanum í dag til að sækja konu á sjötugsaldri sem hafði verið dregin meðvitundarlaus upp úr Silfru. Konan var komin til meðvitundar áður en hún var sótt með þyrlu og send til skoðunar á sjúkrastofnun. Innlent 27. ágúst 2024 16:29
Þyrlur í lágflugi við eldgosið Þyrlur með ferðamenn hafa verið á flugi við eldgosið á Sundhnúksgígaröðinni síðan byrjaði að gjósa á fimmtudagskvöldið. Sumar hafa hætt sér ansi nálægt gígnum. Innlent 27. ágúst 2024 15:22
Enn tilkynnt um magakveisu á hálendinu Tilkynnt var um tvo veika einstaklinga í Hrafntinnuskeri í gær. Nóróveira hefur greinst í sýnum frá fólki sem veiktist af magakveisu á fjölsóttum ferðamannastöðum á hálendinu nýverið. Rannsókn landlæknis og heilbrigðiseftirlits Suðurlands á hópsmitinu stendur enn yfir. Ekki er hægt að fullyrða um uppruna smits, í neysluvatni eða annars staðar. Innlent 27. ágúst 2024 15:10
Fyrirvari um ábyrgð alls ekkert fríspil Sérfræðingur í bótarétti segir ábyrgðarleysisyfirlýsingu sem ferðamenn undirrita áður en farið er í íshellaferðir ekki losa menn undan ábyrgð ef sök er sönnuð. Það sé hins vegar langsótt að Vatnajökulsþjóðgarður verði gerður ábyrgur fyrir slysum. Innlent 27. ágúst 2024 13:01
Sorglegt að búið hafi verið að vara við sumarferðum Ríkisstjórnin hefur falið starfshóp að skoða slysið í Breiðamerkurjökli og mögulegar brotalamir því tengdar. Í skýrslu sem var unnin fyrir Vatnajökulsþjóðgarð er varað við íshellaferðum að sumarlagi og forsætisráðherra segist hugsi yfir að ekki hafi verið tekið tillit til þess. Innlent 27. ágúst 2024 12:00
Sumarferðir ekki byrjaðar þegar skýrsla var gerð Margskonar hættur fylgja íshellum sem eru í eðli sínu óstöðugir og síbreytilegir samkvæmt skýrslu sem var unnin um íshellaferðir í Vatnajökulsþjóðgarði fyrir sjö árum. Í henni var ekki gert ráð fyrir að farið væri með fólk í hella að sumarlagi. Innlent 27. ágúst 2024 11:09
Áríðandi að slysið verði rannsakað og öllum spurningum svarað Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segist hafa verið sleginn yfir slysinu við íshellinn á Breiðamerkurjökli um helgina. Hann segist þakka fyrir það að fleiri hafi ekki lent undir ísfarginu. Innlent 27. ágúst 2024 09:09
Magakveisur ekki til þess að fólk forðist skála FÍ Fólk hefur ekki afpantað gistingu í skálum Ferðafélags Íslands eftir að fregnir af nóróveirusmitum bárust í síðustu viku. Ólíklegt er talið að smitin megi rekja í vatnsból við skálana. Innlent 27. ágúst 2024 06:12
Engar frekari íshellaferðir að svo stöddu Vatnajökulsþjóðgarður hefur farið þess á leit við ferðaþjónustuaðila sem við á, að þeir fari ekki í íshellaferðir á svæði þjóðgarðsins að svo stöddu. Allir hafa brugðist vel við þeirri beiðni, að því er kemur fram í tilkynningu frá þjóðgarðinum. Þá segir að til skoðunar hafi verið að gera enn meiri kröfur til rekstraraðila sem starfa í þjóðgarðinum. Innlent 26. ágúst 2024 18:30
Fyrirtækið er frumkvöðull í sumaríshellaferðum Fyrirtækið sem var með 23 ferðamenn í íshellaferð við Breiðamerkurjökul í gær heitir Ice Pic Journeys samkvæmt heimildum fréttastofu. Það hefur sérhæft sig í ævintýralegum jöklaferðum á svæðinu og verið frumkvöðull í sumarferðum á jökulinn. Fyrirtækið þjónustar meðal annars ferðaþjónusturisann Guide to Iceland. Innlent 26. ágúst 2024 17:57
Varhugaverður tími en traust lagt á leiðsögumenn Sveinn Kristján Rúnarsson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi segir traust lagt á leiðsögumenn til þess að meta aðstæður á jöklum á sumrin. Hann tekur hins vegar undir það að skoðunarferðir á þessum árstíma séu varhugaverðar. Innlent 26. ágúst 2024 17:52
„Þetta er visst ógnarumhverfi“ Árni Tryggvason, hönnuður og ljósmyndari, hætti fyrir nokkrum árum störfum við leiðsögumennsku þar sem honum ofbauð sú hegðun sem hafi tíðkast innan ferðaþjónustunnar. Hann starfaði áður sem jöklaleiðsögumaður og tjáði sig um öryggismál í jöklaferðum en mátti í kjölfarið sæta hótunum. Frá þessu greinir Árni í færslu á Facebook-síðu sinni í dag, í tilefni af alvarlegu slysi á Breiðamerkurjökli í gær. Innlent 26. ágúst 2024 15:24
Ferðamennirnir sem lentu undir ísnum bandarískt par Ferðamaðurinn sem lést þegar hann varð undir ísfargi við Breiðamerkurjökul var bandarískur. Kona hans slasaðist alvarlega en líðan hennar er sögð stöðug. Leit á svæðinu hefur verið hætt. Innlent 26. ágúst 2024 15:23
Varasamar aðstæður í jökulferðum á sumrin Félag fjallaleiðsögumanna harmar slysið á Breiðamerkurjökli og kallar eftir ítarlegri rannsókn. Mikil hætta geti verið fólgin í jökulferðum á sumrin. Innlent 26. ágúst 2024 11:58
Vaktin: Enginn undir ísnum og aðgerðum hætt Leitaraðgerðum björgunarsveita hefur nú verið hætt við Breiðamerkurjökul þar sem tveggja ferðamanna hefur verið leitað frá því í gær eftir að ísveggur hrundi í skipulagðri íshellaskoðunarferð í gær. Lögregla hefur staðfest að einn hafi látist í slysinu og að einn sé alvarlega slasaður. Talið var að tveir til viðbótar væru fastir undir ísnum en nú hefur leit verið hætt þar sem enginn til viðbótar reyndist vera undir ísnum. Innlent 26. ágúst 2024 07:35
Ferðir heimilar allan ársins hring en deilt um manngerða hella „Við treystum þeim fyrirtækjum sem við gerum samninga við að beita sinni bestu dómgreind í mati á aðstæðum og slysin geta alltaf gerst því miður,“ sagði Steinunn Hödd Harðardóttir, þjóðgarðsvörður á austurhluta suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs, í samtali við fréttastofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar í gær. Innlent 26. ágúst 2024 06:57
Annar ferðamannanna er látinn Annar ferðamannanna sem náð var undan ísfargi á Breiðamerkurjökli í kvöld er látinn. Hann var úrskurðaður látinn á vettvangi. Hinn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann og er líðan hans stöðug. Innlent 25. ágúst 2024 23:56
Hlupu blaut úr Bláa lóninu Andrew & Ale Kenney voru í Bláa lóninu í gær þegar tilkynnt var um rýmingu vegna mögulegs eldgoss eða kvikuhlaups. Í myndböndum sem þau deildu á samfélagsmiðlinum TikTok kemur fram að þau hafi þurft að hlaupa blaut út. Á leið frá Bláa lóninu sáu þau svo eldgosið sem þá var nýhafið. Innlent 23. ágúst 2024 14:19
Um 1.300 manns í og við Bláa lónið þegar gosið hófst Um 1.300 manns, bæði gestir og starfsfólk, voru í Bláa lóninu við Svartsengi í kvöld þegar rýming hófst vegna eldgossins sem hófst við Sýlingarfell á tíunda tímanum í kvöld. Innlent 22. ágúst 2024 22:23
Fólk rugli oft Íslendingum og Grænlendingum saman Vinsælasti áhrifavaldur Grænlands telur landið verða næsta heita áfangastað norðursins. Ferðamennska þar er á blússandi siglingu, meðal annars vegna myndbandanna sem hún birtir á samfélagsmiðlum sínum. Innlent 22. ágúst 2024 22:00
Stálu íslensku grjóti en sáu að sér Þjóðgarðinum á Þingvöllum barst óvenjulegur pakki alla leið frá Singapúr. Pakkinn var fullur af grjótvölum af ýmsum stærðum og gerðum. Innlent 21. ágúst 2024 20:56