Svona var blaðamannafundur Íslands fyrir leikinn gegn Tyrklandi Landsliðsþjálfarinn Åge Hareide og fyrirliðinn Jóhann Berg Guðmundsson sátu fyrir svörum á blaðamannafundi á Gürsel Aksel leikvanginum, degi fyrir leik Íslands gegn Tyrklandi í Þjóðadeildinni í fótbolta. Fótbolti 8. september 2024 14:45
Þorsteinn Leó hafði betur gegn Stiven og Orri Freyr fer vel af stað Portúgalska úrvalsdeildin í handbolta er farin af stað og þar eru þrír íslenskir leikmenn í aðalhlutverki. Þorsteinn Leó Gunnarsson og félagar í Porto lögðu Stiven Tobar Valencia og félaga í Benfica að velli á meðan Orri Freyr Þorkelsson og félagar í Sporting byrja af krafti. Handbolti 8. september 2024 13:01
Tilbúinn að kaupa Boehly út Það virðist mikið ósætti meðal eiganda enska knattspyrnuliðsins Chelsea og nú hefur Sky Sports greint frá því að Behdad Eghbali og Clearlake Capital séu tilbúin að kaupa Todd Boehly út en hann hefur verið andlit hinna misheppnuðu eigendaskipta félagsins. Enski boltinn 8. september 2024 12:46
„Ef þetta hefði gerst í karlafótbolta“ „Ef þetta hefði gerst í karlafótbolta,“ skrifar Magnús Örn Helgason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Gróttu um mynd sem birt var af þjálfara FHL og aðstoðarþjálfara Fram eftir sigur síðarnefnda liðsins á því fyrrnefnda í lokaumferð Lengjudeildar kvenna. Með sigrinum tryggði Fram sér sæti í Bestu deild kvenna að ári. Íslenski boltinn 8. september 2024 11:31
Fjölskyldan í fyrsta sæti hjá Falk sem missti af stórleiknum gegn Bröndby Rasmus Falk, fyrirliði FC Kaupmannahafnar, missti af nágrannaslagnum gegn Bröndby á dögunum þar sem eiginkona hans, Jacqueline Ann Sofie Falk Østergaard, þurfti að gangast undir aðgerð eftir að hafa fætt fyrirbura fyrr í sumar. Fótbolti 8. september 2024 11:01
Vill gera fjölskylduna stolta en það getur reynst þrautin þyngri Stefán Teitur Þórðarson lék sinn 21. A-landsleik í 2-0 sigrinum á Svartfjallalandi. Hann er þó langt frá því að vera leikjahæsti landsliðsmaðurinn í fjölskyldu sinni enda kemur hann af mikilli fótboltaætt. Enski boltinn 8. september 2024 10:16
Rooney kann enn að gera glæsimörk Wayne Rooney rifjaði upp gamla takta þegar hann skoraði gullfallegt aukaspyrnumark á Old Trafford í gær, í góðgerðaleik. Enski boltinn 8. september 2024 08:02
„Gætu ekki skipulagt fyllerí í bruggsmiðju“ Roy Keane skaut harkalega á nýju vinnuveitendurna hans Heimis Hallgrímssonar, hjá írska knattspyrnusambandinu, í beinni útsendingu frá leik Írlands og Englands í Þjóðadeildinni í gær. Fótbolti 8. september 2024 07:02
Þjálfari Stjörnunnar féll með tilþrifum Stjarnan sá til þess að Keflavík félli niður í Lengjudeild kvenna í fótbolta í dag en þjálfari Stjörnunnar féll einnig, bókstaflega, með tilþrifum á meðan á leik stóð. Íslenski boltinn 7. september 2024 23:01
„Óánægður ef þetta gerðist í krakkafótbolta“ Heimir Hallgrímsson talaði hreint út á blaðamannafundi eftir fyrsta leik sinn sem þjálfari Írlands í Dublin í kvöld, en liðið tapaði 2-0 fyrir Englandi í Þjóðadeildinni. Hann sagði mistök írska liðsins ekki einu sinni eiga að sjást hjá krökkum. Fótbolti 7. september 2024 22:00
Ekið í veg fyrir rútu Eyjakvenna Leikmenn kvennaliða ÍBV í handbolta og fótbolta sluppu vel þegar rúta þeirra lenti í árekstri á leið heim úr Reykjavík í dag. Einn leikmaður var þó sendur á sjúkrahús til skoðunar. Sport 7. september 2024 21:01
Zirkzee með mark í frumraun og Þjóðverjar magnaðir Þjóðverjar hófu nýja leiktíð í Þjóðadeildinni á stórsigri, 5-0, gegn Ungverjalandi í kvöld á meðan að Holland vann Bosníu 4-2 í sama riðli, í A-deildinni. Fótbolti 7. september 2024 20:44
Arsenal náði naumlega að slá Selmu út Arsenal er komið áfram í seinni umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta kvenna en Selma Sól Magnúsdóttir og stöllur hennar í Rosenborg eru úr leik. Fótbolti 7. september 2024 20:24
Sjáðu mörkin sem felldu Fylki og Keflavík Tindastóll spilar í Bestu deild kvenna í fótbolta þriðja árið í röð á næsta ári, eftir að hafa sent Fylki niður í Lengjudeildina í dag. Keflavík féll einnig, með 4-4 jafntefli við Stjörnuna. Íslenski boltinn 7. september 2024 19:17
Amanda og félagar hentu Val úr keppni Valskonur verða ekki með í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í vetur eftir að þær steinlágu gegn Twente í Hollandi í dag, 5-0, í úrslitaleik um að komast í seinni umferð undankeppninnar. Fótbolti 7. september 2024 18:17
„Ekki spilamennska sem við eigum að vera að bjóða upp á“ Jóhannes Karl Sigursteinsson, þjálfari Stjörnunnar, var heldur svekktur með að hafa tekið aðeins eitt stig gegn Keflavík í Bestu-deild kvenna í knattspyrnu í dag. Fótbolti 7. september 2024 16:51
„Ætlum klárlega að koma okkur strax aftur upp“ Anita Lind Daníelsdóttir, fyrirliði Keflavíkur, var eðlilega sár og svekkt eftir 4-4 jafntefli liðsins gegn Stjörnunni í næstsíðustu umferð neðri hluta Bestu-deildar kvenna. Úrslitin þýða að Keflavík er fallið úr efstu deild. Fótbolti 7. september 2024 16:38
„Svo margt í sumar sem sker úr um að við förum niður“ Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, þjálfari Keflavíkur, segir það gríðarlegt svekkelsi að liðið sé fallið úr Bestu-deild kvenna í knattspyrnu eftir 4-4 jafntefli gegn Stjörnunni í dag. Fótbolti 7. september 2024 16:23
Uppgjör: Breiðablik - Sporting | Evrópudraumur Blika á enda Breiðablik tók á móti portúgalska stórveldinu Sporting Lissabon í 1. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar nú í dag. Leikið var við toppaðstæður á Kópavogsvelli þar sem gestirnir frá Portúgal reyndust sterkari og sigruðu sannfærandi 2-0. Fótbolti 7. september 2024 16:15
Gömlu Írarnir léku Heimi grátt Heimir Hallgrímsson varð að sætta sig við 2-0 tap gegn Englandi, silfurliði EM, í fyrsta leiknum sem landsliðsþjálfari Írlands í fótbolta í dag. Fótbolti 7. september 2024 16:13
Fram upp í Bestu deild kvenna Fram hefur tryggt sér sæti í Bestu deild kvenna í knattspyrnu á næstu leiktíð. Það gerði liðið með frábærum 5-0 sigri á toppliði FHL í lokaumferð Lengjudeildar kvenna. Íslenski boltinn 7. september 2024 16:12
Alexandra í umspil um sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar Alexandra Jóhannsdóttir spilaði rúma klukkustund þegar Fiorentina lagði Ajax 1-0 í Meistaradeild Evrópu kvenna í fótbolta. Fótbolti 7. september 2024 15:57
Uppgjörið: Tindastóll - Fylkir 3-0 | Stólarnir halda sæti sínu Tindastóll sigraði Fylki á Sauðárkróki í dag 3-0 í Bestu deild kvenna. Þar með eru Fylkiskonur fallnar aftur niður í Lengjudeildina en Tindastóll heldur áfram í deild þeirra bestu. Íslenski boltinn 7. september 2024 15:56
Færeyjar byrja Þjóðadeildina á sterku stigi Frændur vorir frá Færeyjum gerðu 1-1 jafntefli við Norður-Makedóníu í fyrsta leik liðanna í C-deild Þjóðadeildar karla í knattspyrnu. Fótbolti 7. september 2024 15:31
Hefur aldrei sungið þjóðsönginn og byrjar ekki á því í dag Hinn írski Lee Carsley, tímabundinn þjálfari enska A-landsliðsins, söng hvorki þjóðsönginn þegar hann spilaði fyrir Írland né þegar hann þjálfaði U-21 árs landslið Englands. Hann mun ekki byrja á því í dag þegar hann mætir þjóð sinni undir stjórn Heimis Hallgrímssonar. Fótbolti 7. september 2024 15:02
Memphis og Martial á leið til Brasilíu Tveir fyrrverandi framherjar Manchester United eru báðir á leið til Brasilíu. Memphis Depay hefur skrifað undir tveggja ára samning við Corinthians á meðan Anthony Martial er við að semja við Flamengo. Fótbolti 7. september 2024 14:31
Sædís Rún og stöllur einu skrefi nær riðlakeppninni Sædís Rún Heiðarsdóttir spilaði síðari hálfleikinn í 3-1 sigri Vålerenga á Farul Constanta frá Rúmeníu. Sigurinn hleypir Vålerenga einu skrefi nær riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu og er merkilegur fyrir þær sakir að liðið var manni færri og marki undir frá því á 30. mínútu. Fótbolti 7. september 2024 14:02
Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 4-4 | Keflavík fallið úr efstu deild Keflavík er fallið úr Bestu-deild kvenna í knattspyrnu eftir að liðið gerði 4-4 jafntefli gegn Stjörnunni í næstsíðustu umferð neðri hlutans í dag. Íslenski boltinn 7. september 2024 13:17
Heimavöllurinn skráður í Færeyjum en vonast til að spila á Íslandi Víkingur hefur tilkynnt UEFA að heimaleikir félagsins í Sambandsdeild Evrópu fari fram í Þórshöfn í Færeyjum. Frestur til að breyta leikstað rennur út á mánudag, Víkingur vill spila hér á landi og sendi út neyðarkall til ríkis og borgar í gær þar sem óskað var eftir aðgerðum. Framkvæmdastjóri Víkings er bjartsýnn á að það takist. Fótbolti 7. september 2024 13:15
Gengur til liðs við Dubai United þrátt fyrir fangelsisdóm í heimalandinu Quincy Promes, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur verið dæmdur vegna eiturlyfjasmygls í heimalandi sínu Hollandi. Hann lætur það ekki á sig fá og hefur nú samið við Dubai United sem spilar í B-deildinni í Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum. Fótbolti 7. september 2024 12:46