Íslendingalið Ribe-Esbjerg ekki í vandræðum með Nordsjælland Íslendingalið Ribe-Esbjerg vann öruggan tólf marka sigur á Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, lokatölur 35-23. Handbolti 12. september 2022 18:16
Tveir nýir sérfræðingar koma með látum inn í Seinni bylgju kvenna Seinni bylgjan fyrir Olís-deild kvenna hefur göngu sína að nýju í kvöld. Upphitunarþáttur fyrir komandi leiktíð verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 20:00. Tveir nýir sérfræðingar. Handbolti 12. september 2022 16:00
„Er Guðmundur Hólmar að nenna þessu?“ „Þetta verður rosalega langt tímabil fyrir Selfyssinga,“ sagði Arnar Daði Arnarsson, ómyrkur í máli eftir afhroðið sem Selfoss hlaut gegn Fram í fyrstu umferð Olís-deildar karla í handbolta í síðustu viku. Handbolti 12. september 2022 14:01
„Ef ekki núna, hvenær þá?“ Stjarnan fór vel af stað í Olís-deild karla í handbolta er liðið vann 33-28 sigur á FH í Kaplakrika. Nýju mennirnir í Garðabæ, þeir Hergeir Grímsson og Arnar Freyr Ársælsson, komu vel inn í liðið. Handbolti 12. september 2022 12:00
Olís-spá kvenna 2022-23: Treysta á heilaga Rut sem aldrei fyrr Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir KA/Þór 5. sæti Olís-deildar kvenna í vetur. Handbolti 12. september 2022 10:01
ÍBV örugglega áfram í Evrópubikarkeppninni Eyjamenn lögðu ísraelska liðið Holon að velli öðru sinni í Vestmannaeyjum í dag og eru komnir áfram í aðra umferð Evrópubikarkeppninnar. Handbolti 11. september 2022 17:40
Olís-spá kvenna 2022-23: Svigrúm fyrir vaxtaverki Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Haukum 6. sæti Olís-deildar kvenna í vetur. Handbolti 11. september 2022 10:00
Teitur með fimm mörk í öruggum sigri Nokkrir Íslendingar voru í eldlínunni í þýska handboltanum í kvöld. Handbolti 10. september 2022 20:21
Íslendingaliðin skildu jöfn Það var boðið upp á Íslendingaslag í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Handbolti 10. september 2022 18:14
Öruggur sigur Eyjamanna í fyrri leiknum ÍBV stendur vel að vígi fyrir síðari viðureigna sína við ísraelska liðið Holon en liðin eigast tvívegis við í Vestmannaeyjum um helgina í Evrópubikarkeppninni í handbolta. Handbolti 10. september 2022 17:47
Ágúst Þór Jóhannson: „Ég held við höfum unnið ansi sanngjarnan sigur“ Valskonur eru meistarar meistaranna eftir frábæran sigur á Fram í nýju Framhúsi í Úlfársdalnum fyrr í dag. Valur var með yfirhöndina allan tímann og sigldu þær sigrinum heim. Lokatölur 19-23. Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari Vals, var virkilega sáttur með sitt lið í dag. Handbolti 10. september 2022 15:45
Umfjöllun og viðtöl: Fram 19-23 Valur | Valur er meistari meistaranna Valur vann fyrsta bikar vetursins er þær unnu Fram í uppgjöri meistara meistaranna, 19-23. Fram varð Íslandsmeistari á síðustu leiktíð á meðan að Valur vann bikarmeistaratitilinn. Valskonur voru með yfirhöndina allan leikinn en eftir að hafa verið yfir með tveimur mörkum í hálfleik sigldu þær öruggum sigri heim. Handbolti 10. september 2022 15:00
Olís-spá kvenna 2022-23: Hanga á horriminni Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Selfossi 7. sæti Olís-deildar kvenna í vetur. Handbolti 10. september 2022 10:00
„Ætlum líka að vera Evrópumeistarar, það er alveg á hreinu“ Róbert Aron Hostert fór í öxl í október á síðasta ári. Hann virðist hafa náð fyrri styrk en hann skoraði tólf þegar Valur vann nauman sigur á Aftureldingu, 25-24, í Olís deild karla á dögunum. Handbolti 10. september 2022 08:01
„Geggjað að vinna KA“ Rúnar Sigtryggsson stýrði Haukum til sigurs í fyrsta leik sínum sem þjálfari liðsins. Staðan í hálfleik gegn KA var jöfn, 11-11, en Haukar stigu á bensíngjöfina í upphafi seinni hálfleiks og náðu þá forskoti sem þeir létu ekki af hendi. Handbolti 9. september 2022 22:15
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - KA 27-21 | Þreytt, þungt og þunnt á Ásvöllum Haukar unnu KA, 27-21, í eina leik kvöldsins í Olís-deild karla. Staðan í hálfleik var jöfn, 11-11, en Haukar voru mun sterkari í seinni hálfleik. Handbolti 9. september 2022 21:55
Bjarki Már skoraði þrjú í fyrsta deildarleiknum í Ungverjalandi Veszprém vann stórsigur á Dabas í ungversku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, lokatölur 30-21 gestunum í vil. Landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson var að leika sinn fyrsta deildarleik fyrir liðið en hann missti af leiknum í fyrstu umferðar vegna meiðsla. Handbolti 9. september 2022 19:30
Hundrað ára afmæli handbolta á Íslandi: „Alltaf stórasta land í heimi“ Handknattleikssamband Íslands fagnar því að í ár séu hundrað ár liðin frá því að handboltinn kom til Íslands og hefur nú birt nýja auglýsingu af því tilefni þar sem stiklað er á stóru í sögu handboltans hér á landi. Handbolti 9. september 2022 14:31
„Hornið hentar minni líkamsbyggingu betur“ Leikur Fram og Selfoss í gærkvöldi var ekki bara fyrsti leikur tímabilsins 2022-23 í Olís-deild karla, fyrsti leikur Fram á nýjum heimavelli í Úlfarsárdal heldur einnig fyrsti alvöru leikur Ívars Loga Styrmissonar í nýrri stöðu. Handbolti 9. september 2022 13:01
Olís-spá kvenna 2022-23: Áskriftinni sagt upp Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir HK 8. sæti Olís-deildar kvenna í vetur. Handbolti 9. september 2022 10:00
Ánægður að fá soninn í liðið: „Vonum bara að hann hjálpi okkur mikið í vetur“ Andri Már Rúnarsson skrifaði undir hjá Haukum í Olís-deildinni í handbolta í vikunni en þar þekkir hann vel til þjálfarans. Karl faðir hans, Rúnar Sigtryggsson, tók við liðinu fyrir þessa leiktíð og lýst þeim vel á komandi samstarf. Handbolti 8. september 2022 23:30
Björn Viðar leggur skóna á hilluna Handboltamarkvörðurinn Björn Viðar Björnsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna frægu og mun því ekki leika með ÍBV í Olís-deild karla á tímabilinu. Handbolti 8. september 2022 23:01
Umfjöllun og viðtöl: Valur-Afturelding 25-24 | Meistararnir byrja tímabilið á sigri Valur hóf titilvörn sína í Olís-deild karla í handbolta er Afturelding kom í heimsókn á Hlíðarenda í kvöld. Verkefnið var ærið fyrir Mosfellinga gegn þreföldum meisturum síðasta árs. Handbolti 8. september 2022 22:27
Róbert Gunnarsson: „Ég var mjög, mjög stressaður fyrir þennan leik“ Róbert Gunnarsson tók sín fyrstu skref sem aðalliðsþjálfari í kvöld þegar hann stýrði Gróttu til stórsigurs á ÍR-ingum. Lokatölur á Seltjarnarnesi 31-20. Handbolti 8. september 2022 22:14
Umfjöllun og viðtöl: FH-Stjarnan 28-33| Garðbæingar sannfærandi í fyrsta leik 1. umferð í Olís deild karla fór af stað í kvöld með fjórum leikjum. Í Kaplakrika vann Stjarnan sannfærandi sigur á FH.Leikurinn var jafn til að byrja með en góður endasprettur Stjörnunnar í fyrri hálfleik sló FH-inga út af laginu og var síðari hálfleikur aldrei spennandi og endaði leikurinn með fimm marka sigri Stjörnunnar 28-33. Handbolti 8. september 2022 22:10
Umfjöllun og viðtal: Grótta-ÍR 31-20 | Grótta fór illa með nýliðana ÍR spilaði í kvöld sinn fyrsta leik í Olís-deild karla í handbolta síðan vorið 2021. Andstæðingurinn í kvöld var Grótta, en leikið var í Hertz höllinni út á Seltjarnarnesi. Leiknum lauk með stórsigri heimamanna 31-20. Handbolti 8. september 2022 21:56
„Fengum fullt af hraðaupphlaupum sem er ekki sjálfgefið í okkar leik“ Stjarnan vann FH í fyrstu umferð Olís deildar karla. Stjarnan vann nokkuð sannfærandi sigur 28-33. Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, var ánægður með sigur í Kaplakrika. Sport 8. september 2022 21:40
„Það er hrikalega mikilvægt að við sýnum styrkleika að landa svona sigrum“ Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var gríðarlega sáttur með sína menn eftir að þeir sigruðu Aftureldingu með einu marki 25-24 í fyrsta leik Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Handbolti 8. september 2022 21:31
„Ánægður með okkur í dag“ Einar Jónsson, þjálfari Fram, var ánægður eftir fyrsta keppnisleik félagsins á nýja heimavellinum í Úlfarsárdal. Frammarar unnu þá Selfyssinga örugglega, 33-26. Handbolti 8. september 2022 20:55
Umfjöllun og viðtöl: Fram-Selfoss 33-26 | Draumabyrjun í nýja dalnum Fram vann Selfoss, 33-26, í upphafsleik Olís-deildar karla tímabilið 2022-23 í kvöld. Þetta var jafnframt fyrsti keppnisleikur Fram á nýjum og glæsilegum heimavelli félagsins í Úlfarsárdal. Handbolti 8. september 2022 20:35