Fall mannsins við Glym mun hærra en talið var í fyrstu Ljóst er að um alvarlegt slys er að ræða í tilfelli ferðamanns sem féll við fossinn Glym fyrir hádegi í dag. Fjölmennt lið björgunarsveitar auk lögreglu er á svæðinu og er verið að bera viðkomandi frá slysstað. Innlent 22. mars 2023 14:43
Þyrlan kölluð út vegna ferðamanns sem féll við Glym Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út að beiðni lögreglunnar á Vesturlandi eftir að tilkynning barst um að maður hafi fallið og slasast nærri fossinum Glym í Hvalfirði um klukkan 10:30 í morgun. Innlent 22. mars 2023 11:52
Eldur kviknaði í þaki skemmu Eldur kviknaði í þaki skemmu í nágrenni við olíustöðina í Hvalfirði í morgun. Haft var samband við slökkvilið en iðnaðarmenn sem voru á svæðinu náðu að slökkva eldinn áður en slökkvilið bar að garði. Innlent 21. mars 2023 11:06
Íslenska hvalkjötið komið í höfn í Japan Norska flutningaskipið Silver Copenhagen kom til hafnar í Japan í morgun eftir sjö vikna siglingu frá Íslandi. Farmurinn var 2.576 tonn af frystum hvalaafurðum. Innlent 8. febrúar 2023 09:49
Hvalkjöt fyrir 2,8 milljarða króna til kaupenda í Japan Um 2.600 tonn af íslensku hvalkjöti eru væntanleg með skipi til Japans um miðja þessa viku og er þetta mesta magn hvalaafurða sem flutt hefur verið út frá Íslandi í 35 ár. Útflutningsverðmætið nemur um 2,8 milljörðum króna, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Innlent 6. febrúar 2023 21:50
Reikna með allt að 40 metrum á sekúndum á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli Reikna má með að mjög hvasst verði á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli í fyrramálið þegar suðaustanstormur gengur yfir suðvestanvert landið. Innlent 19. janúar 2023 10:21
Skagamenn bjóða víðtækt samstarf eftir höfnun Hvalfjarðarsveitar Akraneskaupstaður hefur boðið Hvalfjarðarsveit „víðtækt samstarf“ í kjölfar þess að síðarnefnda sveitarfélagið hafnaði færslu sveitarfélagamarka og beiðni um kaup á landi í lok síðasta árs. Innlent 10. janúar 2023 20:36
Hvalkjötið komið í skip og á leið til kaupenda í Japan Allt hvalkjöt frá síðustu vertíð, og raunar meira til, er farið úr landi. Flutningaskip lestaði kjötið í Hafnarfirði skömmu fyrir jól og er það núna á leiðinni til kaupenda í Japan. Innlent 9. janúar 2023 22:42
Stækka álverið á Grundartanga fyrir sextán milljarða Áætlað er að stækkun álvers Norðuráls á Grundartanga muni kosta sextán milljarða. Gert er ráð fyrir að framkvæmdunum ljúki árið 2024. Viðskipti innlent 25. október 2022 17:15
„Þú mátt ekki segja íbúarnir og vera að vísa til allra“ Ketill Sigurjónsson er framkvæmdastjóri Zephyr Iceland, sem hefur stórtæk áform um uppbyggingu vindmyllugarða víða um land, þar á meðal í Hvalfirði. Þar hefur áformunum verið harðlega mótmælt af sumum íbúum, þar á meðal Skúla Mogensen athafnamanni. Fjallað var um áformin í Íslandi í dag og lúxusböð Skúla heimsótt, sem vindmyllurnar eru sagðar munu skyggja á. Innlent 24. október 2022 08:45
Skagamenn vilja kaupa land af Hvalfjarðarsveit og færa sveitarfélagamörkin Akraneskaupstaður sendi í morgun sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar erindi þar sem óskað er eftir samkomulagi við um færslu sveitarfélagamarka og viðræðum um kaup eða makaskipti á landi í eigu Hvalfjarðarsveitar. Innlent 13. október 2022 13:54
Nýr stigabíll gjörbreyti öllu fyrir slökkviliðið Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar fékk afhentan nýjan stigabíl í dag. Bíllinn kemst í 42 metra hæð. Þjálfunarstjóri slökkviliðsins segir aðra stigabíla á landinu töluvert lægri. Viðskipti innlent 24. september 2022 08:01
Beittu armlás og tóku dróna svissnesks tökuliðs ófrjálsri hendi Lögreglan á Vesturlandi hefur endurheimt dróna svissnesks tökuliðs sem níu starfsmenn Hvals tóku ófrjálsri hendi þegar tökuliðið var að mynda hvalstöðina í Hvalfirði. Tökuliðið hefur nú gefið skýrslu hjá lögreglu en Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals, hefur einnig kært atvikið. Innlent 13. ágúst 2022 16:32
Há verð og stöðugur rekstur skiluðu Elkem metafkomu í fyrra Elkem Ísland, sem rekur kísilver á Grundartanga, hagnaðist um 458 milljónir norskra króna, jafnvirði 6,4 milljarða íslenskra króna, á síðasta ári. Þetta er langbesta rekstrarniðurstaða Elkem á síðustu sjö árum og líklega sú besta í sögu fyrirtækisins á Íslandi. Innherji 27. júlí 2022 12:00
Hvalfjarðargöng með helming allrar umferðar um jarðgöng Hvalfjarðargöng yrðu megingjaldstofn boðaðra jarðgangatolla stjórnvalda enda er umferð um þau álíka mikil og í öllum öðrum göngum hérlendis til samans. Sérfróðir menn áætla að gjaldið þyrfti að vera um helmingur af því meðalgjaldi sem var í Hvalfjarðargöngum. Innlent 19. júlí 2022 22:01
Mikill stuðningur við færslu hringvegar út úr Borgarnesi Verulegur stuðningur er við þá tillögu að hringvegurinn um Borgarnes verður færður út á vegfyllingu utan við byggðina, samkvæmt könnun sem Samgöngufélagið lét gera. Þá er allnokkur stuðningur við að hringvegurinn milli Akraness og Borgarness liggi í framtíðinni yfir mynni Grunnafjarðar norðan Akrafjalls. Innlent 9. júlí 2022 08:25
Sóttu slasaðar konur í Hvalfirði og á Snæfellsnesi Útkall barst til björgunarsveita á Vesturlandi á fjórða tímanum í dag vegna konu sem hafði hrasað og slasað sig á fæti í Hvalfirði. Hún hafði verið á göngu í Síldarmannagötum innst í firðinum þegar hún slasaðist og gat hún ekki gengið. Innlent 6. júlí 2022 19:25
Einn af þremur ofnum Elkem úti í um viku vegna brunans Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem á Íslandi, segist reikna með að einn ofn af þremur í kísilverinu verði úti í um viku tíma vegna viðgerðar sem framundan er eftir að eldur kom upp í verinu í nótt. Enginn slasaðist og segir hún að starfsmenn hafi náð að koma í veg fyrir að tjónið yrði mun meira. Innlent 5. júlí 2022 08:53
Eldur kviknaði í Elkem í nótt og slökkvilið kallað til Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað til vegna bruna í járnblendiverksmiðjunni Elkem á Grundartanga á þriðja tímanum í nótt. Innlent 5. júlí 2022 06:39
Fjórtán hvalir komnir á land í Hvalfirði og fjórir við skipshlið Fjórtán langreyðar hafa verið dregnar á land til vinnslu í hvalstöðinni í Hvalfirði á þeim tólf dögum sem liðnir er frá því hvalbátarnir tveir héldu til veiða. Auk þeirra eru fjórar langreyðar til viðbótar veiddar, komnar að skipshlið, og á leið til lands. Innlent 4. júlí 2022 11:48
Björgunarsveit kölluð út vegna tveggja slysa hjá Glymi Útkall barst á Björgunarsveitum á Vesturlandi rétt fyrir klukkan þrjú í dag vegna göngukonu sem hrasaði og slasaðist á fæti á leið að Glymi í stórum gönguhóp. Skömmu síðar barst annað útkall vegna ferðamanns sem hafði runnið niður gil steinsnar frá fyrri slysstað. Innlent 29. júní 2022 17:09
Sjötti hvalur vertíðarinnar kominn á land í Hvalfirði Sex langreyðar eru komnar á land í Hvalfirði það sem af er hvalvertíðinni og segir Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, það ágætis veiði miðað við að bræla hafi verið á miðunum fyrstu dagana. Innlent 27. júní 2022 22:00
Gert að fyrsta hvalnum í hvalstöðinni í morgun Hvalbáturinn Hvalur 9 kom með fyrstu langreyðina á þessari vertíð að landi í Hvalfirði í morgun. Hún reyndist átján metra löng og veiddist djúpt út af Faxaflóa um miðjan dag í gær. Innlent 24. júní 2022 11:49
Segir það kjaftæði að ferðamenn sniðgangi Ísland vegna hvalveiða Fyrsta langreyður vertíðarinnar, og jafnframt sú fyrsta sem skotin er við Ísland í nærri fjögur ár, veiddist um miðjan dag vestur af landinu. Búist er við að hvalurinn verði dreginn á land í Hvalfirði á morgun en þar var í kvöld byrjað að kynda undir kötlunum. Innlent 23. júní 2022 21:42
Forstjóri Hvals býst við fyrsta hvalnum á land fyrir helgi Hvalbátarnir héldu til veiða í dag og vonast Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., til að fyrsti hvalurinn verði kominn á land fyrir helgi. Hann efast þó um að það takist að veiða alla kvótann en segir ekkert vesen að selja hvalkjötið. Innlent 22. júní 2022 22:22
Hvalveiðimenn gera klárt til að hefja hvalvertíð á morgun Stefnt er að því að hvalveiðiskip Hvals hf. hefji hvalvertíð á morgun, þá fyrstu í fjögur ár. Áhafnir hvalbátanna Hvals 8 og Hvals 9 voru í óðaönn í dag að undirbúa brottför. Innlent 21. júní 2022 21:30
Flúor ekki mælst meiri í lofti og lömbum við Grundartanga Magn flúors var óvenjuhátt í kringum iðnaðarsvæðið á Grundartanga á seinasta ári þar sem Norðurál, Alur Álvinnsla og Elkem eru meðal annars með starfsemi. Þá var styrkur brennisteinstvíoxíðs og brennisteinsvetnis með því hæsta sem mælst hefur. Innlent 15. júní 2022 16:28
Kannar hug fólks til breytinga á tveimur köflum hringvegarins Samgöngufélagið leitar eftir afstöðu almennings til þess hvort breyta eigi legu hringvegarins á tveimur köflum á Vesturlandi. Frestur til að taka þátt í skoðanakönnun félagsins rennur út 10. júní. Innlent 7. júní 2022 22:30
Andrea Ýr fékk flest atkvæði í Hvalfjarðarsveit Andrea Ýr Arnarsdóttir fékk flest atkvæði í sveitarstjórnarkosningum í Hvalfjarðarsveit en þar voru listar ekki boðnir fram heldur var um persónukjör að ræða. Innlent 16. maí 2022 15:37
Grænn iðngarður byggður á hringrásarhugsun á Grundartanga Í dag fögnum við enn einum áfanga öflugs atvinnusvæðis Grundartanga sem fyrirtæki og sveitarfélög hafa byggt upp sameiginlega. Þá verður undirrituð sérstök viljayfirlýsing um uppbyggingu græns iðngarðs byggðum á hringrásarhugsun. Skoðun 11. maí 2022 08:31