Blikar enn með fullt hús stiga Breiðablik er enn með fullt hús stiga í riðli tvö í A-deild Lengjubikars karla eftir 2-1 útisigur gegn Þór frá Akureyri í dag. Íslenski boltinn 6. mars 2022 18:56
Utan vallar: Skiptar skoðanir hvort sala ungra leikmanna hafi áhrif á gæði í Bestu deildinni Í liðinni viku seldi Breiðablik tvo unga og efnilega drengi til stórliða á Norðurlöndunum. Báðir leikmenn komu við sögu í einum leik Breiðabliks á síðasta tímabili og spurning hvort hlutverk þeirra hefði verið enn stærra í ár. Íslenski boltinn 6. mars 2022 09:05
ÍA vann Fjölni í Lengjubikranum ÍA fékk Fjölnismenn í heimsókn á Akranes í riðli númer 2 í A deild nú fyrr í dag. Skemmst er frá því að segja að Akurnesingar sigruðu nágranna sína úr Grafarvogi með þremur mörkum gegn einu. Fótbolti 5. mars 2022 15:12
Mikil gæði á Kópavogsvelli en þunnskipaðir fram á við Þó enn sé töluvert í að knattspyrnusumarið hér á landi fari af stað þá er aldrei of snemmt að spá í spilin. Breiðablik rétt missti af Íslandsmeistaratitlinum á síðustu leiktíð, markmið sumarsins er því einkar einfalt: landa báðum titlunum sem í boði eru. Íslenski boltinn 5. mars 2022 10:01
Fékk tæplega eina og hálfa milljón í sekt því dómarinn misskildi hann Aron Jóhannesson, framherji Vals, mætti í hlaðvarps- og spjallþáttinn Chess After Dark á dögunum. Framherjinn ræddi atvinnumannaferil sinn ásamt mörgu öðru. Þar kom í ljós að hæsta sekt sem hann hefur þurft að greiða fyrir atvik á knattspyrnuvellinum hljóðaði upp á 10 þúsund pund eða 1,4 milljón íslenskra króna, á núverandi gengi. Fótbolti 5. mars 2022 09:01
Víkingar unnu öruggan sigur gegn Gróttu Íslandsmeistarar Víkings unnu öruggan 3-0 sigur er liðið mætti Gróttu í A-deild Lengjubikars karla í fótbolta í kvöld. Íslenski boltinn 4. mars 2022 21:31
Elín Metta segir rangt að hún sé hætt Landsliðskonan Elín Metta Jensen segir ekki rétt að hún sé hætt í fótbolta. Hún vill að öðru leyti ekki tjá sig um sögusagnir þess efnis að svo stöddu. Íslenski boltinn 4. mars 2022 13:32
Andrés Escobar dæmdur fyrir kynferðisbrot Kólumbíski fótboltamaðurinn Andrés „Manga“ Escobar, sem lék með Leikni R. á síðasta tímabili var dæmdur fyrir kynferðisbrot í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðasta mánuði. Íslenski boltinn 4. mars 2022 08:07
KR vann gegn Leikni í átta marka leik | Selfyssingar höfðu betur í botnslagnum Tveir leikir fóru fram í A-deild karla í Lengjubikarnum í kvöld. KR-ingar unnu 5-3 útisigur gegn Leikni og Selfyssingar unnu 2-0 sigur gegn Grindvíkingum. Íslenski boltinn 3. mars 2022 21:41
Skorar á stjórn KSÍ að breyta Ársþingi KSÍ úr gamaldags samkomu Formaður Knattspyrnudeildar Breiðabliks segist vilja koma vinnubrögðum á ársþingi Knattspyrnusambands Íslands til nútímans og hefur þess vega skorað á nýkjörna stjórn sambandsins. Fótbolti 3. mars 2022 14:01
Ágúst Orri til sænsku meistaranna Knattspyrnumaðurinn ungi Ágúst Orri Þorsteinsson er genginn í raðir sænsku meistaranna í Malmö og hefur skrifað undir samning til þriggja ára við félagið. Íslenski boltinn 2. mars 2022 11:45
Breiðablik snéri taflinu við gegn Fjölni Breiðablik vann 4-2 sigur gegn Lengjudeildarliði Fjölnis í Lengjubikar karla í fótbolta í kvöld eftir að hafa lent tvisvar sinnum undir í leiknum. Íslenski boltinn 1. mars 2022 21:09
Breiðablik vann Stjörnuna í markaleik | Tveimur leikjum frestað Breiðablik vann 3-2 sigur á Stjörnunni í Lengjubikar kvenna í knattspyrnu í kvöld. Tveir aðrir leikir áttu að fara fram en þeim var frestað vegna veðurs. Íslenski boltinn 28. febrúar 2022 22:01
Galdur samdi við danska stórveldið fyrir grunnskólalok Danska knattspyrnuveldið FC Kaupmannahöfn heldur áfram að sækja sér efnilega Íslendinga og hefur nú tryggt sér krafta hins 15 ára gamla Ásgeirs Galdurs Guðmundssonar. Fótbolti 28. febrúar 2022 15:01
Ástbjörn semur við FH til þriggja ára Ástbjörn Þórðarson hefur skrifað undir þriggja ára samning við FH en Hafnfirðingar hafa nú staðfest kaup á þessum fjölhæfa leikmanni sem lék með Keflavík í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu á síðustu leiktíð. Fótbolti 28. febrúar 2022 14:45
Sex marka jafntefli á Akureyri | Níu Blikar kláruðu Skagamenn Tveir leikir fóru fram í A-deild Lengjubikarsins í fótbolta í kvöld. Fótbolti 26. febrúar 2022 20:58
„Þarf líka góðan leiðtoga sem talar mikið og er tilbúinn að stýra og stjórna“ Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Víkinga segir félagið ekki aðeins hafa verið að leita að góðum fótboltamanna heldur einnig leiðtoga en félagið samdi við hinn sænska Oliver Ekroth í gærdag. Íslenski boltinn 26. febrúar 2022 09:00
Tvö mörk undir lokin tryggði sigur Stjörnunnar Stjarnan vann 3-1 sigur á Fjölni í Lengjubikar karla í knattspyrnu í kvöld. Um var að ræða síðasta leik kvöldsins. Íslenski boltinn 25. febrúar 2022 23:00
FH og HK skoruðu fjögur í öruggum sigrum Tveimur af þremur leikjum kvöldsins í Lengjubikar karla í fótbolta er nú lokið. FH og HK skoruðu bæði fjögur mörk er liðin unnu örugga sigra. Íslenski boltinn 25. febrúar 2022 21:01
Nýr miðvörður Víkings um veðrið á Íslandi: „Getur bara orðið betra úr þessu“ „Ég varð mjög spenntur þegar ég heyrði um félagið. Er að spila í Evrópu á næstu leiktíð, unnu deild og bikar í fyrra og stefna á að verja þá í ár,“ sagði Oliver Ekroth, nýjasti liðsmaður Íslands- og bikarmeistara Víkings við Vísi og Stöð 2 Sport eftir undirskrift í dag. Íslenski boltinn 25. febrúar 2022 18:35
Ólafur Kristjáns ráðinn til Breiðabliks Ólafur Kristjánsson, sem stýrði karlaliði Breiðabliks þegar það varð Íslandsmeistari í fótbolta í fyrsta og eina sinn árið 2010, hefur verið ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu. Íslenski boltinn 25. febrúar 2022 14:12
Meistararnir kynntu Ekroth til leiks Sænski miðvörðurinn Oliver Ekroth verður í vörn Íslands- og bikarmeistara Víkings í sumar en hann var í dag formlega kynntur til leiks í Víkinni. Íslenski boltinn 25. febrúar 2022 12:16
Meistararnir búnir að fylla í stóru skörðin? Íslands- og bikarmeistarar Víkings hafa boðað til blaðamannafundar í Víkinni í dag. Íslenski boltinn 25. febrúar 2022 07:01
Fylkir rúllaði yfir Selfoss og nýju mennirnir á skotskónum hjá Leikni Tveir leikir fóru fram í A-deild Lengjubikarsins í kvöld. Fótbolti 24. febrúar 2022 21:53
Víkingar skelltu Val að Hlíðarenda Það var stórleikur í Lengjubikarnum í fótbolta í kvöld þegar Íslands- og bikarmeistarar Víkinga heimsóttu Val að Hlíðarenda. Íslenski boltinn 24. febrúar 2022 19:53
Svona var kynningarfundur ÍTF | Nýtt nafn, nýr bikar og nýir styrktaraðilar Frá og með næsta tímabili munu efstu deildir karla og kvenna bera nafnið Besta deildin. Þetta kom fram á kynningarfundi Íslensks toppfótbolta (ÍTF) í Bæjarbíói í dag. Íslenski boltinn 24. febrúar 2022 12:35
Vanda með veiruna og missir af ársþingi Vanda Sigurgeirsdóttir, sitjandi formaður Knattspyrnusambands Íslands, missir af síðustu dögum kosningabaráttunnar fyrir formannsembættið þar sem hún hefur greinst með kórónuveirusmit. Íslenski boltinn 24. febrúar 2022 12:07
Efstu deildirnar heita Besta deildin Besta deildin er nýtt nafn á efstu deildum karla og kvenna í fótbolta. Þetta kom fram á kynningarfundi Íslensks toppfótbolta í Bæjarbíói í dag. Íslenski boltinn 24. febrúar 2022 11:56
Vanda og Sævar ósammála varðandi ráðningu Jóhannesar Karls Vanda Sigurgeirsdóttir og Sævar Pétursson, sem berjast um formannsembættið hjá KSÍ, hafa ólíka sýn á ráðningu KSÍ á Jóhannesi Karli Guðjónssyni sem aðstoðarlandsliðsþjálfara en hann stýrði karlaliði ÍA áður en hann var ráðinn í síðasta mánuði. Íslenski boltinn 24. febrúar 2022 09:00
„Fjölmennasti starfsmannahópurinn“ kallar eftir skýrri sýn Vöndu og Sævars Knattspyrnudómarar kalla eftir skýrri framtíðarsýn um dómaramál innan KSÍ hjá frambjóðendum til formanns og stjórnar KSÍ, fyrir ársþing sambandsins sem fram fer um helgina. Íslenski boltinn 23. febrúar 2022 15:01