Joanna Pettet er látin Bresk-kanadíska leikkonan Joanna Pettet, sem er þekktust fyrir leik sinn í Bond-paródíunni Casino Royale frá 1967, er látin, 83 ára að aldri. Pettet lést 31 ári, upp á dag, eftir að sonur hennar, Damien Zachary Cord, lést úr ofskömmtun heróíns. Bíó og sjónvarp 10.7.2026 17:01
Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, brá á leik á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi og óskaði eftir liðsstyrk fyrir fótboltalandslið þjóðarinnar fyrir næsta heimsmeistaramót. Fótbolti 8.7.2026 08:03
Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Ellefu ára kanadískur drengur lést úr hundaæði eftir að hafa vaknað við að leðurblaka var sest á andlit hans en atvikið átti sér stað árið 2024. Foreldrar drengsins leituðu með hann til læknis um tveimur vikum seinna þegar hann fór að finna fyrir doða og bólgu í andliti. Illa gekk að greina einkenni hans og á tímabili var gert ráð fyrir að hann væri með svokallaða Bell-lömun og seinna herpes-munn- og gómsýkingu. Þegar hann var loks greindur með hundaæði átti hann rétt rúmar tvær vikur ólifaðar. Erlent 2.7.2026 11:21
Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Yfirvöld í Alberta í Kanada hyggjast boða til atkvæðagreiðslu um aðskilnað frá Kanada. Sjálfstæðissinnum hefur fjölgað í héraðinu, sem er ríkt af olíuauðlindum. Þeim þykja þeir vanræktir af stjórnvöldum í Ottawa. Erlent 22. maí 2026 09:09
Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Aðskilnaðarsinnar í Alberta-fylki í Kanada, segjast hafa safnað nægilega mörgum undirskriftum til að kveða á um atkvæðagreiðslu um sjálfstæði. Samkvæmt lögum í fylkinu þarf 178 þúsund undirskriftir til að þvinga yfirvöld til að halda atkvæðagreiðslu um tiltekin málefni en aðskilnaðarsinnarnir sögðust í gær hafa safnað nærri því 302 þúsund. Erlent 5. maí 2026 10:52
Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Bretar, Ísland og átta önnur lönd í Norður-Evrópu hyggjast sameina krafta sína og koma á fót sérstöku samiginlegu sjóherliði til að sporna við aukinni ógn Rússa á norðurslóðum, að sögn bresks herforingja. Verkefnið er á vegum JEF-samstarfsins sem Ísland er aðili að. Erlent 1. maí 2026 00:02
Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Borgar- og lögregluyfirvöld í Vancouver höfnuðu beiðni FIFA þess efnis fjórða stigs öryggisráðstafanir yrðu gerðar vegna komu Gianni Infantino, forseta FIFA, til borgarinnar. Fótbolti 29. apríl 2026 10:03
Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Vopnaður maður skaut kanadískan ferðamann til bana og særði að minnsta kosti þrettán til viðbótar við Teotihuacán-pýramídann í Mexíkó í gær. Hann svipti sig lífi áður en lögreglu tókst að hafa hendur í hári hans. Erlent 21. apríl 2026 08:28
Skoraði fyrsta löglega rangstöðumarkið Mark sem hefði verið ólöglegt í öllum öðrum heimshlutum var skorað í Kanada í nótt. Nýja „dagsbirtu“-rangstöðureglan hefur nú verið formlega prófuð í fótboltanum. Fótbolti 19. apríl 2026 11:45
Leik lokið: Kanada - Ísland 2-2 | Jafntefli í Toronto Ísland gerði 2-2 jafntefli við Kanada í vináttuleik í Toronto í dag. Orri Steinn Óskarsson átti frábæra endurkomu í landsliðið eftir langa fjarveru og skoraði bæði mörk Íslands. Fótbolti 28. mars 2026 16:46
„Við erum ekki hrædd“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra þakkaði Mark Carney forsætisráðherra Kanada fyrir forystuna sem hann hefur sýnt á alþjóðavettvangi og talaði um tómarúm sem fylla hefði þurft. Innlent 15. mars 2026 13:09
Taka Amaroq af markaði í Kanada Amaroq hefur óskað eftir afskráningu hlutabréfa sinna úr TSX Venture-kauphöllinni í Kanada. Gert er ráð fyrir að afskráningin taki gildi við lok viðskipta þann 19. mars 2026. Þá stefnir félagið á skráningu á aðalmarkað kauphallarinnar í London í stað vaxtarmarkaðar þar í borg. Viðskipti innlent 18. febrúar 2026 11:54
„Einræðisherrann“ aðstoðaði við handtöku eftirlýsta ólympíufarans Kanadískur maður sem gekk undir nafninu „Einræðisherrann“ aðstoðaði yfirvöld í Bandaríkjunum við að handsama Ryan Wedding fyrr á árinu. Einræðisherrann svokallaði heitir Andrew Clark en hann er sagður hafa verið hægri hönd Weddings í að flytja gífurlegt magn kókaíns frá Suður-Ameríku til Bandaríkjanna og Kanada um árabil. Erlent 16. febrúar 2026 14:31
Ætla einnig að draga úr vopnakaupum frá Bandaríkjunum Ríkisstjórn Kanada stefnir að því að draga verulega úr því hve mikið ríkið reiðir á bandaríska vopnaframleiðendur. Til stendur að verja fúlgum fjár, sem hafa í gegnum árin endað í höndum bandarískra vopnaframleiðenda, í að byggja upp hergagnaiðnað í Kanada. Erlent 16. febrúar 2026 11:48
Vinkonuferð til Íslands tók óvænta stefnu Avery Francis fór í stelpuferð til Íslands, eftir ár sem hún lýsir sem því versta í sínu lífi. Skipbrot í starfi, kulnun og áföll í einkalífi höfðu tekið sinn toll og hún hafði verið einhleyp í sex ár. Hún var ekki að leita að sambandi. Síðasta kvöldið í ferðinni kynntist hún íslenskum manni í miðbæ Reykjavíkur og þar kviknaði eitthvað óvænt. Þau hittust aftur ári síðar, og það fyrir einskæra tilviljun. Nú eru þau hjón og Avery býr hér og skipuleggur kvennaferðir til Íslands, sem hún kallar besta stað í heimi. Lífið 16. febrúar 2026 09:01
Talin hafa myrt móður sína og stjúpbróður fyrir skotárásina Jesse Van Rootselaar, átján ára, er talin hafa skotið móður sína og stjúpbróður til bana. Hún fór síðan í fyrrverandi skólann sinn þar sem hún skaut aðra sex, þeirra á meðal tólf ára börn. Erlent 11. febrúar 2026 21:02
„Þjóðin syrgir með ykkur“ Mark Carney forsætisráðherra Kanda segir alla þjóðina syrgja með íbúum Tumbler Ridge í Kanada. Tíu eru látin í kjölfar skotárásar í framhaldsskóla í gær. Ástæða skotárásar og tengsl geranda og fórnarlamba hafa ekki verið gefin upp. Fram hefur komið að árásarmaður sé kona en það hefur ekki verið staðfest. Erlent 11. febrúar 2026 17:35
Tíu látnir í skotárás á skóla í Kanada Tíu eru látnir og að minnsta kosti 25 særðir eftir skotárás sem beindist gegn skóla í norðurhluta Bresku-Kólumbíu í Kanada í gær. Árásarmaðurinn er meðal látnu. Erlent 11. febrúar 2026 06:44
Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað því að koma í veg fyrir opnun nýrrar brúar á milli Bandaríkjanna og Kanada, nema að „Bandaríkin fái bætt allt sem við höfum gefið þeim, og það sem meira er, að Kanada komi fram við Bandaríkin af þeirri sanngirni og með þeirri virðingu sem við verðskuldum“, eins og hann orðaði það. Erlent 10. febrúar 2026 07:24
Hitnar í kolunum hjá Heated Rivalry-stjörnum? Connor Storrie og François Arnaud, leikararnir sem eru að gera allt vitlaust með stjörnuleik í kanadísku þáttunum Heated Rivalry, hafa sést nokkrum sinnum opinberlega saman síðustu vikur. Aðdáendur velta því fyrir sér hvort leikararnir séu í sambandi. Lífið 7. febrúar 2026 15:29
Ævintýri á slóðum Vesturfara Ég fékk þann heiður að fara sem einskonar sendiherra Snorra-verkefnisins til Manitoba í Kanada síðasta sumar. Snorraverkefnið, í nánu samstarfi við ÞFÍ, leitast við að styrkja tengslin á milli Íslendinga og Vestur-Íslendinga með ferðum fyrir ungt fólk þar sem það fær að kynnast sögunni og mynda tengsl við ættingja. Skoðun 28. janúar 2026 09:30
Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað að setja hundrað prósenta toll á vörur frá Kanada ef forsætisráðherra Kanada undirritar viðskiptasamning við Kína. Erlent 24. janúar 2026 16:07
Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Kanadamaðurinn Ryan Wedding, sem keppt hefur á Vetrarólympíuleikunum fyrir hönd Kanada, hefur verið handtekinn en hann var einn af þeim tíu mönnum sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) vilja mest koma höndum yfir. Wedding hefur verið ákærður fyrir morð, smygl og peningaþvætti og hefur verið á flótta frá 2015. Erlent 23. janúar 2026 15:30
Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Donald Trump Bandaríkjaforseti virðist hafa dregið til baka boð sitt til Kanada um sæti í svokallaðri „Friðarstjórn“, ef marka má færslu forsetans á Truth Social í nótt. Erlent 23. janúar 2026 06:48