Hannes fer til USA Hannes Smárason, forstjóri FL Group, er núna úti í Bandaríkjunum að herja á stjórn AMR að gera reksturinn skilvirkari. Meðal annars vill hann gera greinendum auðveldara fyrir að verðmeta félagið. Það mun vera einhverjum erfiðleikum bundið vegna undirliggjandi eigna sem erfitt er að verðleggja. Viðskipti innlent 18. október 2007 23:56
Peningaskápurinn... Jim Renwick, sem átti að vera næstæðsti maður Landsbankans í London eftir yfirtöku á fjármálafyrirtækinu Bridgewell, má ekki tjá sig við fjölmiðla um ástæðu brotthvarfs síns. Hann fullyrðir að flótti hans frá Landsbankanum í London hafi verið óumflýjanlegur án þess að útskýra það nánar. Viðskipti innlent 18. október 2007 00:01
Vínsöfnurum fjölgar Arnar Bjarnason og Arnar Sigurðsson versla báðir með gæðavín, hvor á sínum forsendum. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir talaði við nafnana um ástríðuna. Viðskipti innlent 17. október 2007 06:00
Ísland við meðtalið Verðbólga á Íslandi mælist nú nærri meðaltali EES-ríkja samkvæmt tölum Hagstofunnar yfir samræmda vísitölu neysluverðs innan EES-svæðis í september. Viðskipti innlent 17. október 2007 00:01
Upplýsingatæknifyrirtæki setja sig í stellingar Sjö mínútur liðu á milli tilkynninga um miklar breytingar hjá tveimur stærstu upplýsingatæknisamstæðum landsins síðasta fimmtudag. Viðskipti innlent 17. október 2007 00:01
Vinna eldsneyti úr mengandi útblæstri Carbon Recycling International, félag í eigu bandarískra og íslenskra aðila, hefur skrifað undir viljayfirlýsingu við íslenskt raforkufyrirtæki um byggingu þriggja til fimm megavatta tilraunaverksmiðju hér á landi. Viðskipti innlent 17. október 2007 00:01
Yfirtökur í Kína Glitnir og Útflutningsráð Íslands stóðu fyrir ráðstefnu á mánudaginn þar sem meðal annars var rætt um yfirtökur fyrirtækja í Kína. Viðskipti innlent 17. október 2007 00:01
Baugur horfir á Saks Baugur Group er meðal fjárfesta sem hafa hugsanlega áhuga á því að kaupa bandarísku munaðarvöruverslunina Saks, samkvæmt Reuters. Baugur á rúman átta prósenta hlut í félaginu. Viðskipti innlent 17. október 2007 00:01
Forsetinn talar fyrir atvinnulífið Ólafur Ragnar Grímsson segir að þjóðin verði að gera það upp við sig hvort hún vilji að forseti Íslands beiti sér fyrir því að styrkja stöðu Íslands á heimsvettvangi, hvort sem er á sviðum viðskipta, vísinda, tækni eða menningar, eða sé fyrst og fremst til heimabrúks. Björgvin Guðmundsson fór yfir verkefni forseta Íslands það sem af er þessu ári. Viðskipti innlent 17. október 2007 00:01
Miklu kostað til í umbreytingarferli Í síbreytilegu umhverfi upplýsingatækninnar skiptir höfuðmáli fyrir fyrirtæki sem í þeim geira starfa að skilgreina starfsemi sína rétt, segir Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja. Viðskipti innlent 17. október 2007 00:01
Dansar hipphopp í Belfast Halla Guðrún Mixa, framkvæmdastjóri hönnunarsviðs auglýsingastofunnar Pipars, veit fátt skemmtilegra en að dansa hipphopp. Viðskipti innlent 17. október 2007 00:01
Teymi horfir til heimamarkaðar Eins og sakir standa horfir Teymi fyrst og fremst til upplýsingatæknimarkaðar hér heima, að sögn Ólafs Þórs Jóhannessonar, framkvæmdastjóra fjármálasviðs félagsins. Hann segir horfur góðar í starfseminni og ánægju með viðskipti síðustu viku. Viðskipti innlent 17. október 2007 00:01
Baugur vill hluti fyrrverandi forstjóra Forsvarsmenn Baugs Group í Bretlandi eru sagðir bera víurnar í Jurek Piasecki, stofnanda og fyrrum forstjóra skartgripakeðjunnar Goldsmiths, næststærstu skartgripakeðju Bretlands í aldarfjórðung, um kaup á hlutum hans í keðjunni. Viðskipti innlent 17. október 2007 00:01
Flytja inn prótín til Kína Orf líftækni hefur hafið samstarf við stærstu samsteypu lyfjafyrirtækja í Kína, Sinopharm. Viðskipti innlent 17. október 2007 00:01
Dagur í lífi... Gísla Reynissonar, forstjóra Nordic Partners Viðskipti innlent 17. október 2007 00:01
SEB í íslensku kauphöllinni Sænski bankinn SEB hefur frá og með deginum í dag aðild að hlutabréfamarkaði íslensku kauphallarinnar. Viðskipti innlent 16. október 2007 00:01
Peningaskápurinn ... Þrálátur orðrómur hefur gengið um að Iceland Express ætli að kaupa Air Atlanta sem er í eigu Eimskipafélagsins. Elmar Gíslason, ritstjóri Fréttabréfs atvinnuflugmanna, veltir fyrir sér og bendir á að forsvarsmenn beggja félaga hafi boðað starfsfólk til fundar 20. október næstkomandi. Matthias Imsland neitar því í samtali við Markaðinn að þetta standi til. Tilviljun ráði þessari dagstetningu. Auðvitað á að taka orð forstjórans alvarlega. Uppstokkun á ákveðnum sviðum í viðskiptalífinu getur verið tilviljunum háð. Þannig urðu stór viðskipti í upplýsingatæknigeiranum á fimmtudaginn. Allt tilviljanir. Viðskipti innlent 13. október 2007 11:03
Industria verðlaunað fyrir sjónvarp um net „Freewire“ er besta nýjungin á sviði sjónvarps sem dreift er með internettækni (Internet Protocol Television – IPTV) að mati dómnefndar Global Telecoms Business magazine Innovation Awards. Industria, ásamt breskum samstarfsaðila að nafni Inuk Networks, vann til verðlaunanna nýverið. Viðskipti innlent 10. október 2007 04:15
Hugmyndir mikilvægasta framleiðsluvara Vesturlanda Vestrænum þjóðum stafar veruleg ógn af því hversu lítið skapandi þegnar þeirra eru. Þetta fullyrðir sænski fyrirlesarinn Fredrik Hären sem staddur var hér nýverið í boði Nýherja. Viðskipti innlent 10. október 2007 03:30
Íbúðalánasjóður nýtist helst fjáðum Íbúðalánasjóður sinnir ekki hlutverki félagslegs sjóðs fyrir þá sem eru að kaupa í fyrsta sinn á höfuðborgarsvæðinu. Þvert á móti nýtist hann helst fólki sem á mikið eigið fé til húsnæðiskaupa. Viðskipti innlent 10. október 2007 00:01
Olíuverð á niðurleið Heimsmarkaðsverð á hráolíu fór undir 79 dali á tunnu í gær eftir að olíufélagið Shell greindi frá því að það ætlaði að auka olíuframleiðslu í Nígeríu. Verðið hefur verið rúmlega áttatíu dalir á tunnu upp á síðkastið. Viðskipti erlent 10. október 2007 00:01
Þrjár stoðir í FL Group eiga að skerpa áherslur í fjárfestingum 160 manns sóttu fjárfestadag FL Group í Lundúnum. Kynnt var nýtt skipurit og stefna. Starfsmönnum hefur fjölgað úr fimm í tæp 40 á einu ári. FL Group á auðseljanlegar eignir sem standa undir skuldbindingum félagsins til næstu 24 mánaða. Þetta er meðal þess sem fram kom í máli Hannesar Smárasonar, forstjóra FL Group, á Capital Markets Day fjárfestakynningu í Lundúnum fyrir helgi. Á fundinum var kynnt nýtt skipurit og skipulag félagsins, auk þess sem nánari grein var gerð fyrir fjárfestingastefnu þess. Viðskipti innlent 10. október 2007 00:01
Spá aukinni verðbólgu Greiningardeildir bankanna spá því að vísitala neysluverð hækki á bilinu 0,5 til 0,8 prósentustig á milli mánaða í október. Viðskipti innlent 10. október 2007 00:01
Útrás í anda stjórnarsáttmála Útrás Landsvirkjunar og Landsbankans í gegnum HydroKraft Invest er í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá því í maí, að sögn Friðriks Sophussonar, forstjóra Landsvirkjunar. Þar er talað um að tímabært sé „að leysa úr læðingi krafta einkaframtaksins svo að íslensk sérþekking og hugvit fái notið sín til fulls í útrás orkufyrirtækja“. Viðskipti innlent 10. október 2007 00:01
Tíu prósent iPhone-síma ólögleg Einn af hverjum tíu iPhone-margmiðlunarsímum frá Apple er seldur til fólks sem hefur í hyggju að afkóða símann og selja á svörtum markaði. Þetta segir í nýrri umfjöllun um símana, sem eingöngu er hægt að kaupa í Bandaríkjunum og á ekki að vera hægt að nota utan landsteinanna. Ekki er gert ráð fyrir að símarnir komi á markað í Evrópu fyrr en eftir mánuð. Viðskipti erlent 10. október 2007 00:01
Annað Ísland í útlöndum Fjöldi erlendra starfsmenn íslenskra fyrirtækja í útlöndum hefur rúmlega áttatíufaldast á rúmum áratug og eru þeir nú jafn margir ef ekki fleiri en allir starfandi einstaklingar hér á landi í fyrra. Viðskipti innlent 10. október 2007 00:01
Stærstu bankakaupin senn að veruleika Þrír bankar frá Belgíu og Spáni undir forystu Royal Bank of Scotland (RBS) hafa tryggt sér samþykki handhafa 86 prósenta hlutabréfa í ABN Amro, stærsta banka Hollands, fyrir yfirtöku á honum. Kaupverð nemur tæpum 72 milljörðum evra, rúmum 6.200 milljörðum íslenskra króna og allt útlit er fyrir að bankarnir taki þátt í einhverjum stærstu fyrirtækjakaupum í evrópskum fjármálaheimi til þessa. Viðskipti erlent 10. október 2007 00:01
Strætóferð breytti lífinu Strætóferð Carlos Cardoza í heimalandi sínu, Kostaríku, fyrir um tíu árum átti eftir að gjörbreyta lífi hans. Þar hitti hann unga konu sem hann gaf sig á tal við. Viðskipti erlent 10. október 2007 00:01
Handan járntjaldsins Nokkur íslensk fyrirtæki námu land í Eystrasaltsríkjunum í kjölfar sjálfstæðis þeirra frá Rússlandi árið 1991 og hafa komið sér þar ágætlega fyrir. Viðskipti innlent 10. október 2007 00:01
Forstjórinn farinn Breskir fjölmiðlar segja marga farna frá Landsbankanum í Bretlandi. Bankastjórinn segir eðlilegar skýringar á málinu. Viðskipti erlent 10. október 2007 00:01