Stærstu sjóðirnir fallast á tilboð JBT og telja sameinað félag álitlega fjárfestingu Tveir stærstu lífeyrissjóðir landsins, sem ráða sameiginlega yfir eignarhlut í Marel sem nemur vel á annan tug prósenta, staðfesta að þeir muni samþykkja yfirtökutilboðið frá John Bean Technologies. Framkvæmdastjóri LSR undirstrikar að það sé mat sjóðsins að sameinað félag muni áfram vera „álitlegur fjárfestingarkostur“ á íslenskum hlutabréfamarkaði. Innherji 7. desember 2024 13:16
Ætla að samþykkja tilboð JBT og vonast til að margir hluthafar haldi eftir bréfum Tveir lífeyrissjóðir sem eru á meðal allra stærstu hluthafa Marel ætla að samþykkja yfirtökutilboðið frá bandaríska félaginu John Bean Technologies og framkvæmdastjóri Birtu segist binda vonir við að nægjanlega margir íslenskir fjárfestar haldi eftir bréfum í sameinuðu félagi þannig að tvískráningin muni heppnast vel. Hann telur jafnframt að með áframhaldandandi eignarhaldi Birtu geti sjóðurinn haft áhrif hvernig unnið verði með fyrirtækið eftir samruna. Innherji 6. desember 2024 12:47
Brotajárnsfyrirtæki metið á milljarða í kaupum Styrkáss Í dag var undirritað samkomulag um helstu skilmála kaupsamnings milli Styrkáss, TF II slhf. og Hópsnes ehf. um kaup Styrkáss á öllu hlutafé í Hringrás ehf.. Hringrás er leiðandi í vinnslu brotajárns hér á landi og Styrkáss er að verða öflugt þjónustufyrirtæki við atvinnulífið í meirihlutaeigu Skeljar fjárfestingarfélags. Viðskipti innlent 6. desember 2024 10:59
Metsætanýting í nóvember hjá Icelandair Icelandair flutti yfir 300 þúsund farþega í nóvember. Það eru 6,4 prósentum fleiri en á sama tíma í fyrra. Þar af voru 34 prósent farþega á leið til Íslands, 19 prósent frá Íslandi, 41 prósent ferðuðust um Ísland og sex prósent innan Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair. Viðskipti innlent 6. desember 2024 10:04
Forstjóri Dominos til N1 Magnús Hafliðason, sem hefur verið forstjóri Dominos á Íslandi undanfarin ár hefur verið ráðinn forstjóri N1. Viðskipti innlent 5. desember 2024 16:34
Segir að vel væri hægt að lækka vexti Bankastjóri Arion banka segir að hægt væri að lækka vexti hressilega með því að breyta reglum sem valda svokölluðu Íslandsálagi, ástæðu þess að vextir á Íslandi eru almennt hærri en í nágrannalöndum okkar. Þá segir hann að stóru bankarnir þrír fái dýrari fjármögnun vegna óvæginnar umræðu um þá. Viðskipti innlent 5. desember 2024 09:49
Það eru leiðir til að lækka vexti íbúðalána – viljum við gera eitthvað í því? „Leiðir til að lækka vexti“ var yfirskrift fundar sem Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu og Samtök atvinnulífsins stóðu nýverið að. Þar var meðal annars fjallað um Íslandsálagið svokallaða, þ.e. ástæður þess að vextir á Íslandi eru almennt hærri en í nágrannalöndum okkar. Óhætt er að fullyrða að stærsti hluti Íslandsálagsins felist í þeim sérstöku álögum og reglum sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að leggja á fjármálaþjónustu. Skoðun 5. desember 2024 08:32
Erlendir fjárfestar með nærri helminginn í um fimm milljarða útboði Amaroq Hlutabréfaverð Amaroq hefur hækkað nokkuð á markaði eftir að félagið sótti sér jafnvirði nærri fimm milljarða króna í nýtt hlutafé, meira en upphaflega var áformað vegna umframeftirspurnar fjárfesta, aðeins nokkrum dögum eftir að það hóf framleiðslu á gulli í Suður-Grænlandi. Erlendir sjóðir voru umsvifamiklir þátttakendur í útboðinu, með tæplega helminginn af heildarstærð þess, en Amaroq hefur núna sett stefnuna á aðalmarkað í London. Innherji 4. desember 2024 15:09
„Kemur ekki til greina“ að lækka eiginfjárkröfur Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka kerfisáhættuauka en hækka eiginfjárauka fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki á móti. Með þessu lækkar eiginfjárkrafa á minni innlánastofnanir, til að mynda Indó og Kviku, en stendur í stað fyrir stóru viðskiptabankana þrjá. Seðlabankastjóri segir ekki koma til greina að lækka eiginfjárkröfur á stóru bankana. Viðskipti innlent 4. desember 2024 12:04
Fagna þotunni sem markar tímamót í sögu Icelandair Icelandair-menn fögnuðu tímamótum með komu fyrstu Airbus-þotu félagsins til landsins í dag og um leið því að fá farkost sem eyðir þrjátíu prósentum minna eldsneyti á hvert sæti en þotan sem hún leysir af hólmi. Innlent 3. desember 2024 22:10
Stjórnmálamenn segjast styðja PPP-verkefni en meina „flestir ekkert með því“ Löggjöf frá 2020 sem átti að opna á meira en hundrað milljarða fjárfestingu í vegasamgöngum með samningum við einkaaðila hefur ekki skilað þeim árangri sem lagt var upp með, að sögn utanríkisráðherra, en þótt stjórnmálamenn segist iðulega vera jákvæðir á slík samvinnuverkefni stjórnvalda og fjárfesta þá meini „flestir ekkert með því.“ Framkvæmdastjóri hjá danska ráðgjafafyrirtækisins COWI, sem keypti nýlega Mannvit, tekur í sama streng og segir skorta á pólitískan vilja að styðja við slík fjárfestingaverkefni til að bæta úr bágbornu ástandi vegakerfisins hér á landi. Innherji 3. desember 2024 14:34
Hyggjast fljúga þotunni yfir Reykjavík í hádeginu Icelandair fékk í dag afhenta fyrstu Airbus-þotuna í sögu félagsins. Stefnt er að því að hún fljúgi yfir Reykjavík við komuna til Íslands í hádeginu á morgun, þriðjudag 3. desember. Innlent 2. desember 2024 23:43
Kaup SKEL á INNO verðlaunuð í Belgíu og sögð tryggja framtíð verslunarkeðjunnar Kaupin á belgísku verslunarkeðjunni INNO, sem fjárfestingafélagið SKEL stóð að í samfloti með sænska fyrirtækinu Axcent of Scandinavia, hafa hlotið árleg viðskiptaverðlaun í flokki meðalstórra viðskipta í Belgíu á árinu 2024. Eftir kaupin er framtíð verslunarkeðjunnar sögð vera tryggð í höndum reynslumikilla fjárfesta á smásölumarkaði en SKEL hefur sagt aðstæður á þeim markaði í Evrópu vera mjög áhugaverðar eftir miklar áskoranir síðustu árin. Innherji 2. desember 2024 16:15
Leggja meiri áherslu á Prís og segja upp starfsmönnum Tólf starfsmönnum Heimkaupa hefur verið sagt upp störfum vegna skipulagsbreytinga. Vefverslun félagsins hefur verið rekin með tapi undanfarið og aukin áhersla verður lögð á rekstur lágvöruverðsverslunarinnar Prís. Viðskipti innlent 2. desember 2024 14:04
Fjárfestingararmur Samherja bætir við sig í Högum Kaldbakur ehf., tiltölulega nýstofnað félag sem heldur utan um fjárfestingar Samherja hf., hefur keypt fjórar milljónir hluta í Högum hf., sem rekur meðal annars Bónus og Hagkaup, fyrir 400 milljónir króna. Viðskipti innlent 2. desember 2024 13:52
CAPE-hlutfall Úrvalsvísitölunnar hækkar samhliða lækkun vaxta Sé litið til hlutfall virðis á móti hagsveifluleiðréttum hagnaði (CAPE) er íslenski markaðurinn er nú metinn lægra en bandaríski markaðurinn, en það er viðbúið þar sem vaxtastig er mun hærra á Íslandi. Innherji 2. desember 2024 10:25
Kristjana nýr framkvæmdastjóri hjá Sýn Kristjana Thors Brynjólfsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Miðla og efnisveitna hjá Sýn. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskipti innlent 2. desember 2024 09:53
Svona gullhnullungar finnast hvergi lengur nema í Grænlandi Fyrsta gullið úr grænlenskri gullnámu, sem Íslendingar standa fyrir, er komið úr gullkvörninni. Eldur Ólafsson, stofnandi og forstjóri málmleitarfélagsins Amaroq, segir þetta ólýsanlega tilfinningu eftir tíu ára undirbúningsstarf. Innlent 28. nóvember 2024 22:42
Sekta Festi um 750 milljónir vegna N1-samrunans Samkeppniseftirlitið hefur sektað Festi hf. um 750 milljónir vegna samkeppnislagabrota í tengslum við samruna félagsins og N1 hf. Fólust brotin í því að Festi virti ekki skilyrði sem gerð voru í sátt við eftirlitið, svo sem um sölu verslana og samstarf við keppinaut. Viðskipti innlent 28. nóvember 2024 17:23
Gæti reynst „langhlaup“ að koma verðbólgunni alla leið niður í markmið Hægari hjöðnun undirliggjandi verðbólgu kann að benda til þess að mögulega muni „síðasta mílan“ reynast peningastefnunefnd óþægur ljár í þúfu, að mati hagfræðings Kviku banka, og það verði langhlaup að koma verðbólgunni alla leið niður í 2,5 prósenta markmið. Þrátt fyrir að verðbólgulækkunin í nóvember hafi verið minni en spár greinenda gerðu ráð fyrir þá breytir það ekki væntingum um allt að hundrað punkta vaxtalækkun á fyrstu tveimur fundum nefndarinnar á nýju ári. Innherji 28. nóvember 2024 16:20
Steyptu fyrsta gullmolann Íslenska námafyrirtækið Amaroq hefur tilkynnt að fyrsta framleiðsla og steypun á gulli hafi átt sér stað í Nalunaq gullnámu félagsins í Suður-Grænlandi. Viðskipti innlent 28. nóvember 2024 09:55
Hlutabréfaverð Amaroq nálgast hæsta gildi eftir að gullvinnsla hófst í Nalunaq Auðlindafyrirtækið Amaroq Minerals, sem er að meirihluta í eigu íslenskra fjárfesta, hefur tilkynnt um að fyrsta framleiðsla og steypun á gulli hefur átt sér stað í Nalunaq-námu félagsins í Suður-Grænlandi. Fjárfestar brugðust vel við tíðindunum, sem eru í samræmi við útgefnar áætlanir félagsins, og hlutabréfaverðið hækkaði nokkuð í fyrstu viðskiptum í morgun. Innherji 28. nóvember 2024 09:47
Gengið frá kaupum Haga á færeyska verslanarisanum Hagar hafa undirritað endanlegan kaupsamning vegna kaupa á færeyska verslanarisanum P/F SMS. Félagið rekur átta Bónusverslanir í Færeyjum, fjórar smærri verslanir í Þórshöfn undir nafninu Mylnan og stórverslunina Miklagarður í Þórshöfn. Viðskipti innlent 27. nóvember 2024 16:59
Framkvæmdastjórn ESB veitir samþykki sitt fyrir yfirtökunni á Marel Samkeppnisyfirvöld í Evrópusambandinu og Ástralíu hafa gefið blessun sína fyrir yfirtöku John Bean Technologies á Marel og er því núna búið að ryðja í burtu síðustu hindrunum fyrir viðskiptunum gagnvart eftirlitsstofnunum. Fáist samþykki frá að lágmarki níutíu prósent hluthafa Marel við tilboðinu frá JBT á allra næstu vikum mun samruninn formlega klárast á fyrstu dögum næsta árs og meðal annars hafa í för með sér nærri hundrað milljarða útgreiðslu til innlendra fjárfesta. Innherji 27. nóvember 2024 16:30
Þrjú fá kauprétt fyrir alls 277 milljónir Síminn hefur veitt forstjóra og tveimur framkvæmdastjórum kauprétt að samtals 22.500.000 hlutum í félaginu. Kaupréttur er veittur á hlutabréfum á grunnverðinu 12,31 króna á hlut, sem gerir grunnkaupverðið alls um 277 milljónir króna. Forstjóri fær helming kaupréttarins. Viðskipti innlent 27. nóvember 2024 11:53
Helena til Íslandssjóða Helena Guðjónsdóttir hefur verið ráðin til að leiða viðskiptaþróun og sjálfbærni fyrir Íslandssjóði. Viðskipti innlent 27. nóvember 2024 11:00
Hrókeringar í framkvæmdastjórn Eimskips Edda Rut Björnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri innanlandssviðs hjá Eimskip. Harpa Hödd Sigurðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri mannauðs- og samskiptasviðs í stað Eddu Rutar. Viðskipti innlent 26. nóvember 2024 17:04
Ráðinn forstöðumaður Arion Premíu Magnús Már Leifsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Premíu hjá Arion banka. Viðskipti innlent 26. nóvember 2024 13:25
Undir hluthöfum komið hvort skráning sameinaðs félags hér heima heppnist Marel kemur inn í áformaðan risasamruna við John Bean Technologies (JBT) „algjörlega sem jafningi“ bandaríska fyrirtækisins, að sögn Árna Sigurðssonar forstjóra, sem telur að hluthafar ættu að hafa enn meiri trú á sameinuðu félagi sem verði með einstaka stærðarhagkvæmni og segist ekki hafa upplifað neina fjárfesta tala „ákveðið“ á móti samrunanum. Í viðtali við Innherja undirstrikar hann að það séu hagsmunir þeirra sem vilja taka tilboðinu hjá JBT að ákveða sig snemma fremur en á lokametrunum og brýnir hluthafa Marel að það sé undir þeim komið hvort skráningin á Íslandi muni heppnast vel eða ekki þegar fram í sækir. Innherji 26. nóvember 2024 07:55
Niðurstöður fyrstu borana í Nanoq gefa til kynna „hágæða-gullsvæði“ Niðurstöður úr rannsóknarborunum Amaroq Minerals í Nanoq á Suður-Grænland sýndu fram á háan styrkleika gulls á svæðinu og undirstrikar mikla möguleika leyfisins, að sögn forstjóra auðlindafyrirtækisins. Frekari boranir eru áformaðar á næsta ári en fyrstu niðurstöður gefa vísbendingar um að hægt sé að finna gull í magni sem má telja í milljónum únsa. Innherji 26. nóvember 2024 07:14