Þegar lögbundin þjónusta bíður en milljarðar fara í „chillout“ Sem íbúi og starfsmaður í Kópavogi er ég hugsi yfir forgangsröðun fjármuna pólitíkunnar í Kópavogi. Nú hefur verið í umræðunni menningarmiðstöð sem á að rísa í Smáralind. Ekki misskilja mig en ég tel að menning og bókasöfn séu mikilvægur þáttur í okkar samfélagi. Meðal annars eigum við þetta dásamlega bókasafn í Hamraborg sem er eitt það flottasta á landinu. Skoðun 18.3.2026 16:32
Semja við Ísaksskóla um leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi Kópavogsbær ætlar að ganga til samninga við Ísaksskóla um að reka nýjan leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi. Menntaráð bæjarins samþykkt viljayfirlýsingu þess efnis í gær. Innlent 18.3.2026 15:41
Hætta að taka við rúmfreku rusli á tveimur stöðvum Endurvinnslustöðvar Sorpu í Jafnaseli í Reykjavík og á Dalvegi í Kópavog munu í lok mánaðar hætta að taka á móti rúmfreku rusli vegna framkvæmda eins og múrbroti, timbri, innréttingum, flísum og ónýtum húsgögnum. Neytendur 18.3.2026 13:49
Skerðing í Kópavogi Niðurrif er hafið á Fannborgarreit í Kópavogi. Áformunum hefur verið mótmælt í mörg ár því ekki sé gert ráð fyrir því að hreyfihamlaðir íbúar á reitnum geti með góðu móti komist til og frá heimili meðan á framkvæmdunum stendur. Samkvæmt áætlunum standa þær yfir í 5 ár en líklegt er að þar sé byggt á bjartsýnum vonum. Skoðun 13. mars 2026 14:30
Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Íbúar í Kórahverfi í Kópavogi munu þurfa að nýta sér hjáleiðir vegna götulokana í kringum Kórinn í Kópavogi um helgina þar sem fram fara stórtónleikar Laufeyjar. Lokanirnar eru í gildi átta og hálfa klukkustund á laugardag og sunnudag. Þá geta langflestir tónleikagestir ekki mætt á bíl á tónleikana, heldur er þeim gert að mæta í Smáralind. Afkastagetu fyrir 4G og 5G á svæðinu hefur verið aukið. Innlent 13. mars 2026 10:55
Hvað hefur oddviti Framsóknar í Kópavogi að fela? Oddviti Framsóknarflokksins í Kópavogi skrifaði grein um meinta reikniskekkju hjá mér er varðar grein mína um tillögu þeirra að Kópavogsbær taki að sér rekstur á Vetrargarðinum undir menningarmiðstöð. Skoðun 13. mars 2026 10:17
Listi Framsóknar í Kópavogi kynntur og Orri áfram oddviti Framsóknarflokkurinn í Kópavogi hefur kynnt lista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningar. Orri Hlöðversson stjórnarformaður Frumherja og bæjarfulltrúi verður áfram oddviti listans. Innlent 13. mars 2026 09:28
Kópavogsleiðin er merkilegt fyrirbæri Kópavogsleiðin er svolítið merkilegt fyrirbæri. Ég finn mig knúna til að tjá mig um hana og hvernig hún reynist mér, einstæðri móður tveggja stúlkna sem eru í leikskóla annars vegar og grunnskóla hins vegar. Skoðun 13. mars 2026 09:03
Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Gunnar Þór Geirsson, formaður félags íslenskra heimilislækna, segir ekki raunsætt að fólk fái tíma hjá heimilislækni innan fimm daga eins og viðmið landlæknis geri ráð fyrir. Hann kallar eftir því að sérnám heimilislækna verði styrkt, gæði námsins sé í hættu. Innlent 13. mars 2026 08:52
Til hamingju, Kópavogsbúar – þið eigið von á góðu! “Það er frábært að vera hluti af bæjarfélagi sem er tilbúið að gera menningu og mannlífi hátt undir höfði. Bæjarfélagi sem er í alvöru tilbúið að fjárfesta í mannrækt og velferð íbúa sinna”. Þetta var það sem ég hugsaði þegar hugmyndir um nýja menningarkjarna komu inn á borð Mannlífs- og menningarnefndar Kópavogs á dögunum. Skoðun 13. mars 2026 08:31
Reikniskekkja Viðreisnar í Kópavogi Mikil og stór skref voru tekin í menningarmálunum í Kópavogi á bæjarstjórnarfundi í vikunni þegar meirihluti bæjarstjórnar samþykkti samninga við Smáralind um opnun metnaðarfullrar menningarmiðstöðvar í verslunarmiðstöðinni. Skoðun 13. mars 2026 07:30
Þau eru á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Samfylkingin í Kópavogi hefur kynnt lista sinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Jónas Már Torfason lögfræðingur leiðir listann. Innlent 12. mars 2026 11:40
Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Verslun Kappahl í Smáralind verður opnuð klukkan 12, laugardaginn 14. mars næstkomandi. Á sama tíma verður opnar vefverslunin kappahl.is. Viðskipti innlent 12. mars 2026 09:07
Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Meðalbiðtími eftir næsta lausa tíma hjá heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu er að jafnaði 27 dagar samkvæmt nýrri úttekt Viðskiptaráðs. Aðeins tvær heilsugæslur standast viðmiði landlæknis. Innlent 12. mars 2026 06:02
„Eins og best verður á kosið í heiminum“ Yfir fimm hundruð manns koma að undirbúningi og annarri vinnu í tengslum við tónleika Laufeyjar í Kórnum um helgina og hefur undirbúningur staðið yfir í meira en ár að sögn tónleikahaldara. Þá er búið að opna svokallað Laufeyjarland í Smáralind. Innlent 11. mars 2026 21:02
Sakar minnihluta um ódýra pólitík í aðdraganda kosninga Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi segir það alrangt að bæjarstjórn hafi samþykkt að greiða 1,5 milljarð í leigu fyrir Vetrargarðinn í Smáralind þar sem áætlað sé að opna nýja menningarmiðstöð og bókasafn. Ásdís segir leigusamninginn trúnaðarmál en 1,5 milljarða kostnaður taki til rekstrar- og launakostnaðar til næstu tíu ára. Innlent 11. mars 2026 16:32
Opna menningarmiðstöð í Smáralind Kópavogsbær og Heimar hf. hafa gert með sér samning um uppbyggingu menningarmiðstöðvar í Smáralind. Áætluð opnun nýrrar menningarmiðstöðvar er vorið 2027. Samkvæmt svörum frá Kópavogsbæ er heildarrekstrarkostnaðurinn áætlaður rúmar 140 milljónir króna á ári. Viðskipti innlent 11. mars 2026 13:51
Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Bæjarstjórn Kópavogs veitti í gær heimild til undirritunar leigusamnings um hluta Smáralindar, sem kallaður hefur verið Vetrargarðurinn, undir verkefnið Menningarmiðstöð í Smáralind. Fulltrúi minni hlutans segir samninginn hljóða upp á 1,5 milljarða króna fyrir tíu ára leigu. Bæjarstjórinn vísar því alfarið á bug. Innlent 11. mars 2026 11:42
Það er gott að vera Halldór Benjamín í Kópavogi: Hluti 1 af 4 Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn hafa nú samþykkt að Kópavogsbær taki að sér að reka Vetrargarðinn í Smáralind. Fyrir það er áætlað að bærinn greiði um 1,5 milljarð króna á samningstímanum. Um er að ræða tíu ára óuppsegjanlegan samning. Skoðun 11. mars 2026 10:00
Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Bæjarstjóri Kópavogs segir að aðgengi almennings að bílastæðum við Fannborg í miðbæ bæjarins verði tryggt á meðan framkvæmdum stendur sem þó feli í sér nokkuð rask. Hún harmi að íbúar upplifi skort á upplýsingum, bæjaryfirvöld hafi lagt sig fram um að tryggja gott upplýsingaflæði. Fjöldi íbúa hafi lýst yfir ánægju með fyrirhugaðar breytingar á miðbænum. Innlent 11. mars 2026 07:03
Jákvæð áhrif Kópavogsleiðarinnar Umræða um leikskólamál hefur verið lífleg undanfarið og Kópavogsleiðin sérstaklega til umræðu. Skoðanir eru skiptar, eins og eðlilegt er þegar gerðar eru breytingar á mikilvægu samfélagskerfi. Skoðun 10. mars 2026 14:30
Varðveisla Guðmundarlundar Guðmundarlundur í Vatnsendahlíð í vatnsendalandi er eitt vistlegasta útisvæði Kópavogs og algjör perla fyrir fjölskyldur og ungmenni. Lundinum er einstaklega vel við haldið af Skógræktarfélagi Kópavogs sem heldur nú úti flottu leiksvæði fyrir börn, mini-golf velli, frisbí-golf velli, útigrillum, salernisaðstöðu og hefur Skógræktarfélagið m.a. staðið fyrir Ævintýri í Jólaskógi við góðar undirtektir. Talið er að um 200.000 manns heimsæki Guðmundarlund árlega. Skoðun 10. mars 2026 10:00
Opna Lindex þar sem Útilíf var S4S hefur undirritað leigusamning við Smáralind um nýtt verslunarrými fyrir Lindex á Íslandi. Rýmið er 675 fermetrar að stærð og er staðsett við hlið Hagkaupa í Smáralind, þar sem Útilíf var áður til húsa. Viðskipti innlent 9. mars 2026 13:08
Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Fólksbíll rann í hálku og endaði í Kópavogstjörn á ellefta tímanum. Tvö önnur umferðarslys urðu vegna launhálku á Reykjanesbraut. Enginn er alvarlega slasaður. Innlent 8. mars 2026 23:03