Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ Bandaríski körfuboltamaðurinn Tony Wroten hefur ekki enn gefið upp vonina að spila með Selfossi í 1. deildinni á þessu tímabili. Hann segist hafa myndað sterk tengsl við liðið og bæinn mánuðinn sem hann var hér á landi. Hann vonast til að mál hans leysist sem fyrst svo hann komist aftur til Íslands. Körfubolti 26. febrúar 2025 10:30
„Geitin“ í kvennakörfunni hætt Diana Taurasi, stigahæsti leikmaður WNBA deildarinnar í körfubolta frá upphafi, hefur ákveðið að setja skóna upp á hillu. Hún tilkynnti þetta í viðtali við Time tímaritið. Körfubolti 26. febrúar 2025 08:21
Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Íslenski landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson, leikmaður Alba Berlin, gæti hafa fundið mjög svo óvænta lausn á meiðslum sem hafa verið að plaga hann að undanförnu. Með því að skipta um körfuboltaskó hefur hann ekki fundið til í margar vikur en málið er þar með ekki svo auðveldlega úr sögunni. Körfubolti 26. febrúar 2025 08:00
Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Luka Doncic var með þrefalda tvennu í NBA deildinni í körfubolta í nótt þegar hann mætti sínu gamla félagi með Los Angeles Lakers. Körfubolti 26. febrúar 2025 06:20
Aþena vann loksins leik Botnlið Bónus deildar kvenna í körfubolta, Aþena, vann loks leik þegar liðið sótti Hamar/Þór heim. Sigurinn var eins naumur og hægt var, lokatölur 87-88. Körfubolti 25. febrúar 2025 21:15
„Eins gott að þeir fari að fokking semja“ Stjarnan vann góðan sigur á Grindavík í kvöld í Bónus-deild kvenna 77-64 en þetta var í annað sinn á viku sem liðin mætast. Körfubolti 25. febrúar 2025 21:10
Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 77-64 | Slökktu á gestunum í seinni hálfleik Stjarnan og Grindavík eigast við í annað sinn á skömmum tíma, nú þegar búið er að skipta Bónus-deild kvenna í körfubolta í tvo hluta. Liðin leika í neðri hlutanum. Körfubolti 25. febrúar 2025 17:30
„Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Líf atvinnumannsins er ekki alltaf dans á rósum. Landsliðsfyrirliðinn í körfubolta, Martin Hermannsson, spilar sem atvinnumaður með liði Alba Berlin í Þýskalandi og meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá honum. Þá býr hann fjarri fjölskyldu sinni úti í Þýskalandi. Körfubolti 25. febrúar 2025 12:03
Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Kanadamaðurinn geðþekki Craig Pedersen hefur nú komið íslenska karlalandsliðinu í körfubolta á þrjú Evrópumót og var einu skoti frá því að koma því á heimsmeistaramót. Samt er tilfinningin að hann ætti að vera í meiri metum hjá íslensku þjóðinni en hann er. Körfubolti 25. febrúar 2025 10:00
Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ Martin Hermannsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í körfubolta, segir leikinn gegn Tyrkjum þar sem að landsliðið tryggði sæti sitt á EM með skemmtilegustu leikjum sem hann hefur tekið þátt í. Hins vegar fór umræðan um liðið fyrir leikinn fyrir brjóstið á honum. Körfubolti 25. febrúar 2025 07:31
„Þetta er eins og að vera dömpað“ Eftir rólega fyrstu leiki í búningi LA Lakers, eftir ein óvæntustu og merkustu leikmannaskipti í sögu NBA-deildarinnar, þá sýndi Luka Doncic snilli sína í sigrinum gegn Denver Nuggets um helgina. Slóveninn er til umræðu í nýjasta þætti Lögmála leiksins á Stöð 2 Sport 2 í kvöld. Körfubolti 24. febrúar 2025 17:16
Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Einhverrar óánægju gætir vegna þess hvernig staðið hefur verið að úthlutun miða á mikilvæga landsleiki í körfubolta, líkt og í gærkvöld þegar Ísland mætti Tyrklandi í leik upp á sæti á EuroBasket. Framkvæmdastjóri KKÍ bendir á að nauðsynlegt sé fyrir sambandið að selja sem flesta miða. Körfubolti 24. febrúar 2025 15:48
Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Áhuginn er mikill hjá gestgjafaþjóðum EM í körfubolta að fá Ísland í sinn riðil að sögn Hannesar S. Jónssonar, framkvæmdastjóra KKÍ, sem bindur vonir við að með sæti á stórmóti verði íslenskur körfubolti á toppnum er kemur að fjárframlagi til landsliðsstarfsins. Körfubolti 24. febrúar 2025 13:31
Sex fara fyrir Ísland á sitt fyrsta stórmót Þrír leikmenn í íslenska landsliðinu í körfubolta gætu verið á leiðinni á sitt þriðja stórmót í ágúst þegar Ísland mætir til leiks á EuroBasket, eða EM, eftir að hafa tryggt sig inn á mótið með sigri gegn Tyrkjum í gærkvöld. Ljóst er að hið minnsta sex Íslendingar fara á sitt fyrsta stórmót. Körfubolti 24. febrúar 2025 11:32
Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Jafnaldrarnir og vinirnir Elvar Már Friðriksson og Martin Hermannsson áttu stóran þátt í að Ísland tryggði sér sæti á EM í körfubolta með sigri á Tyrklandi í Laugardalshöll í gær. Eftir leikinn birti umboðsmaður þeirra félaga skemmtilega gamla mynd af þeim sem sýnir hversu lengi þeir hafa fylgst að. Körfubolti 24. febrúar 2025 08:30
Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar NBA stórstjarnan Luka Dončić og félagar í slóvenska körfuboltalandsliðinu munu líklega spila æfingaleik gegn Íslandi í sumar, ef liðin dragast ekki saman í riðil á Evrópumótinu. Körfubolti 24. febrúar 2025 07:31
„Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ „Þetta er það sem þú lifir fyrir. Ástæðan fyrir því að þú ert í þessu. [Komast inn á EM] með mörgum af mínum bestu vinum, fyrir framan ættingja og vini. Ég mun lifa á þessu restina af ævinni, og við allir“ sagði Martin Hermannsson, stigahæsti leikmaður íslenska landsliðsins í sigri gegn Tyrklandi sem tryggði Íslandi sæti á EM í sumar. Körfubolti 23. febrúar 2025 22:06
Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Ungverjar unnu sigur á Ítölum í riðli Íslands í undankeppni Evrópumótsins í körfubolta í kvöld. Sigurinn dugir þó skammt því sigur Íslands á Tyrkjum gerir það að verkum að Ungverjar sitja eftir með sárt ennið. Körfubolti 23. febrúar 2025 21:20
Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Ísland tryggði sér sæti á Evrópumótið í körfubolta í sumar með 83-71 sigri gegn Tyrklandi í lokaleik undankeppninnar. Strákarnir okkar þurftu sigur í kvöld til að tryggja sætið og kláruðu verkefnið með stæl gegn gríðarsterku tyrknesku liði. Ísland byrjaði leikinn stórkostlega og sigurinn varð aldrei tvísýnn. Körfubolti 23. febrúar 2025 21:00
Martin komst í hóp þeirra gömlu og mjög góðu Íslenski landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson komst á fimmtudagskvöldið í hóp þeirra elstu sem hafa skorað 25 stig eða meira í leik með íslenska karlalandsliðinu í körfubolta. Körfubolti 23. febrúar 2025 13:00
Popovich kemur ekki til baka á þessu tímabili Allt stefnir í það að Gregg Popovich sé búinn að stýra sínum síðasta leik í NBA deildinni í körfubolta. Körfubolti 23. febrúar 2025 12:32
Loksins fékk Lakers að sjá Luka eins og við þekkjum hann Los Angeles Lakers sýndi mátt sinn og megin í NBA deildinni í körfubolta í nótt með flottum sigri á öflugu liði Denver Nuggets. Körfubolti 23. febrúar 2025 11:30
Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Ísland mætir Tyrkjum í undankeppni Eurobasket í Laugardalshöll annað kvöld en sigur tryggir Íslandi sæti í lokakeppninni. Körfubolti 22. febrúar 2025 23:47
Uppselt á körfuboltalandsleikinn á morgun Íslenska karlalandsliðið í körfubolta spilar mikilvægan leik í Laugardalshöllinni annað kvöld og það er ljóst að strákarnir fá góðan stuðning. Körfubolti 22. febrúar 2025 10:19
Ruglaðist á Tramadol og Toradol og féll á lyfjaprófi NBA hefur dæmt Bobby Portis, leikmann Milwaukee Bucks, í 25 leikja bann fyrir að brjóta lyfjareglur deildarinnar. Nafnaruglingur varð til þess að hann féll á lyfjaprófi. Körfubolti 21. febrúar 2025 18:01
Slagur um stól formanns KKÍ Kjartan Freyr Ásmundsson, formaður Íslensks toppkörfubolta (ÍTK), tilkynnti í dag um framboð til formanns Körfuknattleikssambands Íslands. Þar með er ljóst að tveir menn koma til greina í kjörinu. Körfubolti 21. febrúar 2025 17:08
LeBron með fjörutíu stig í fjarveru Doncic: „Hann storkar lögmálunum“ Hinn fertugi LeBron James skoraði fjörutíu stig þegar Los Angeles Lakers sigraði Portland Trail Blazers, 102-110, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Körfubolti 21. febrúar 2025 15:15
Fær ekki að spila á Íslandi vegna gamals dóms: „Ekki ógn við þjóðina“ Körfuboltamaðurinn Tony Wroten, sem lék 145 leiki í NBA-deildinni á sínum tíma, hefur ekki enn fengið leyfi til að spila með Selfossi í 1. deildinni. Ástæðan er dómur sem hann fékk fyrir að taka þátt í stóru svikamáli vestanhafs. Lögfræðingur Selfoss vonast til að Útlendingastofnun sjái að sér. Körfubolti 21. febrúar 2025 09:00
Bætti skólamet pabba síns Körfuboltakonan Kate Harpring átti magnaðan leik með Marist gagnfræðiskólanum á dögunum og hún kom sér með því í metabækurnar. Körfubolti 21. febrúar 2025 08:42
Undrið Wembanyama frá það sem eftir lifir leiktíðar Hinn franski Victor Wembanyama mun að öllum líkindum ekki spila fleiri leiki á yfirstandandi leiktíð NBA-deildarinnar í körfubolta. Hann er með blóðtappa (e. deep vein thrombosis) í öxl. Körfubolti 20. febrúar 2025 23:02