Jafnvel von á meira bóluefni fyrr en búist var við Sóttvarnalæknir telur að vonast megi til þess að meira bóluefni berist til landsins fyrr en talið hefur verið til þessa. Þá sé „mjög óráðlegt“ að hans mati að gefa bóluefni á annan máta en framleiðendur og rannsóknir mæla með, til dæmis í hálfum skömmtum. Innlent 4. janúar 2021 12:30
Lyfjastofnun klár um leið og leyfi Moderna liggur fyrir Búist er við því að bóluefni Moderna fái markaðsleyfi hér á landi á morgun og forstjóri Lyfjastofnunar gerir ráð fyrir að dreifing hefjist fljótlega. Íslendingar hafa samið um að fá skammta frá Moderna fyrir 64 þúsund manns. Innlent 4. janúar 2021 12:10
Biður fyrir því að sóttvarnayfirvöld „íhugi málin með visku“ „Ég lýsi yfir að þrátt fyrir góðan vilja getum við ekki fylgt öllum gildandi sóttvarnareglum í sambandi við messuhald í kirkjum okkar. Með harm í hjarta hef ég tekið þá ákvörðun að aflýsa öllum opinberum sunnudagsmessum og vigilmessum á laugardagskvöldum. Ákvörðunin tekur þegar gildi.“ Innlent 4. janúar 2021 11:46
„Hugsanlega ein alvarleg“ tilkynning um aukaverkanir vegna bólusetningar Sjö tilkynningar um aukaverkanir í kjölfar bólusetningar við kórónuveirunni hafa borist Lyfjastofnun Íslands, þar af „hugsanlega ein alvarleg“. Þetta kom fram í máli Ölmu Möller landlæknis á upplýsingafundi almannavarna í dag. Innlent 4. janúar 2021 11:36
Tíu greindust innanlands í gær Alls greindust tíu með kórónuveiruna innanlands í gær. Sjö þeirra voru í sóttkví. Þá greindust þrettán manns á landamærunum. Þrír þeirra reyndust með virkt smit, hjá hinum er beðið niðurstöðu mótefnamælingar. Innlent 4. janúar 2021 10:48
Svona var 150. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11:00 í dag. Um er að ræða fyrsta upplýsingafundinn á nýju ári. Innlent 4. janúar 2021 10:21
Landlægt útgöngubann kemur til greina í Englandi Enn þarf að herða sóttvarnaraðgerðir í Englandi til að hægja á og stöðva dreifingu nýs afbrigðis nýju kórónuveirunnar þar í landi. Þetta sagði Matt Hancock, heilbrigðisráðherra landsins, í morgun en í gær voru tilkynnt tæplega 55 þúsund ný tilfelli og hafa rúmlega 75 þúsund manns dáið vegna faraldursins. Erlent 4. janúar 2021 09:31
Einn greinst með breska afbrigðið innanlands Alls hafa sautján einstaklingar greinst með hið svokallaða breska afbrigði kórónuveirunnar hér á landi. Þar af er einn sem greindist innanlands með afbrigðið en sú manneskja var nátengd annarri sem hafði greinst á landamærunum. Innlent 4. janúar 2021 08:23
Bretar hefja bólusetningar með bóluefni AstraZeneca Bólusetningar með bóluefni Oxford-AstraZeneca hefjast í dag og ætla Bretar að setja aukinn kraft í bólusetningar þar í landi til að reyna að stemma stigu við hraðri útbreiðslu kórónuveirunnar þar í landi. Erlent 4. janúar 2021 07:06
Til skoðunar að helminga bóluefnaskammta Bandarísk stjórnvöld eru nú með það til skoðunar að gefa hópi fólks hálfan skammt bóluefnis Moderna við Covid-19, með það að markmiði að hraða bólusetningarferlinu vestanhafs. Erlent 3. janúar 2021 23:33
Breska afbrigðið komið til Grikklands Fjórir einstaklingar hafa greinst með hið svokallaða „breska afbrigði“ kórónuveirunnar í Grikklandi. Um er að ræða afbrigði sem talið er meira smitandi en flest önnur afbrigði veirunnar, og var uppgötvað í Bretlandi. Erlent 3. janúar 2021 21:46
Íslendingum ráðið frá því að ferðast í gegnum Bretland Utanríkisráðuneytið hefur birt orðsendingu á Facebook-síðu sinni þar sem fólki sem ferðast frá Íslandi er ráðlagt að forðast ferðalög í gegnum Bretland. Innlent 3. janúar 2021 21:12
„Maður verður fyrst og fremst dapur þegar maður fær svona fréttir“ „Einstök mál eru rannsökuð hjá staðarlögreglu eftir því sem við á, sem í þessu tilfelli er lögreglan á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, þegar fréttastofa leitaði eftir viðbrögðum hans við mannmargri messu sem haldin var í Landakotskirkju í dag. Innlent 3. janúar 2021 19:02
Heimila notkun á indversku bóluefni Lyfjaeftirlit Indlands hefur veitt neyðarleyfi fyrir notkun bóluefnisins Covaxin við Covid-19, sem þróað var og framleitt á Indlandi. Erlent 3. janúar 2021 18:45
Svæðisbundnar aðgerðir verði líklega hertar í Bretlandi Svæðisbundnar reglur í Bretlandi, til að hefta útbreiðslu covid-19, verða að öllum líkindum hertar að sögn Boris Johnson forsætisráðherra. Erlent 3. janúar 2021 17:26
Norðmenn herða reglur: Mest fimm megi koma saman og sala áfengis bönnuð Norsk stjórnvöld hafa boðað til blaðamannafundar nú í kvöld þar sem hertar aðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins verði kynntar. Norska blaðið VG greinir frá því að samkvæmt nýjum reglum muni að hámarki fimm koma saman í einkasamkvæmum auk þess sem reglur um sölu áfengis verði hertar. Erlent 3. janúar 2021 16:56
Ísland í fimmta sæti yfir ríki þar sem flestir hafa verið bólusettir Ísland er sem stendur í fimmta sæti yfir þau ríki heims sem hafa bólusett flesta íbúa samkvæmt tölfræði sem Our World in Data, samstarfsverkefni á vegum Oxford-háskóla og bresks góðgerðafélags um menntun, hefur tekið saman. Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavörunum segir að allt sé tilbúið fyrir aðra umferð bólusetningar hér á landi sem verður um eða upp úr miðjum þessum mánuði. Innlent 3. janúar 2021 16:00
Of margir í messu í Landakotskirkju í dag Allt of margir voru komnir saman til messu í Landakotskirkju á öðrum tímanum í dag og mætti lögreglan á staðinn og ræddi við sóknarprest. Rúv greinir frá. Innlent 3. janúar 2021 14:50
Fyrsti sjúklingurinn sem lagður er inn á sjúkrahús vegna Covid-19 Í fyrsta sinn frá upphafi heimsfaraldurs kórónuveirunnar hefur nú þurft að leggja Covid-smitaðan einstakling inn á sjúkrahús á Grænlandi. Landlæknir Grænlands segir ástand sjúklingsins ekki vera alvarlegt, heldur sé um að ræða varúðarráðstöfun vegna undirliggjandi sjúkdóms viðkomandi. Erlent 3. janúar 2021 14:23
Larry King á sjúkrahúsi vegna Covid-19 Bandaríski sjónvarpsmaðurinn Larry King, hefur greinst með kórónuveiruna og hefur verið lagður in á sjúkrahús í Los Angeles. Bandarískir fjölmiðlar hafa eftir heimildarmönnum að hinn 87 ára King hafi verið lagður inn á Cedars-Sinai Medical Centre vegna einkenna Covid-19 fyrir rúmri viku. Erlent 3. janúar 2021 13:02
Telur líklegt að búið verði að bólusetja meirihluta þjóðarinnar á fyrri helmingi árs Líklegt er að búið verði að bólusetja meirihluta þjóðarinnar á fyrri helmingi árs. Þetta segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sem telur það hafa verið rétt ákvörðun að fylgja Evrópusambandinu í bóluefnamálum. Innlent 3. janúar 2021 13:01
65 prósent Íslendinga segja öruggt að þeir muni þiggja bólusetningu Hátt í 92 prósent Íslendinga segja líklegt að þeir muni þiggja bólusetningu gegn covid-19. Ríflega 5 prósent segja það ólíklegt og um 3 prósent segja það hvorkilíklegt né ólíklegt. Þetta eru niðurstöður nýs þjóðarpúls Gallup. Af þeim sem sögðu ekki líklegt að þeir myndu þiggja bólusetningu sögðu flestir ástæðuna vera að þeir vildu bíða eftir að komin væri meiri reynsla á bólusetninguna og mögulegar aukaverkanir. Innlent 3. janúar 2021 12:31
Segir bólusetninguna hafa gríðarlega þýðingu fyrir bráðamóttökuna Yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans segir það mjög ánægjulegt og hafa gríðarlega þýðingu fyrir deildina að byrjað sé að bólusetja starfsmenn. Hann segir starfsmenn varla hafa fundið fyrir nokkrum aukaverkunum af fyrri bólusetningunni. Innlent 3. janúar 2021 12:31
„Það kemur margt gott út úr Covid,“ segir Elliði bæjarstjóri Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi segir að Íslendingar hafi lært mikið af Covid og að heimsfaraldurinn hafi kennt þjóðinni margt. Innlent 3. janúar 2021 12:30
Fleiri leikmenn á Englandi í vandræðum: Mendy hélt nýárspartí Manchester City segir í yfirlýsingu sinni að þeir séu vonsviknir með framkomu varnarmannsins Benjamin Mendy en hann hélt nýárspartí, þrátt fyrir strangar reglur í Englandi. Enski boltinn 3. janúar 2021 12:01
„Óhjákvæmilegt“ að margir greinist á landamærum Fjórir greindust með covid-19 innanlands í gær og þar af voru allir í sóttkví. Mun fleiri, eða alls fjórtán greindust á landamærum. Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavörnum segir fjölda smitaðra sem greindust á landamærum ekki koma á óvart, enda séu margir að snúa heim eftir að hafa varið jólunum í útlöndum. Innlent 3. janúar 2021 11:38
Fjögur smit innanlands og fjórtán á landamærum Fjórir greindust með covid-19 innanlands í gær og voru allir í sóttkví. Vel yfir þúsund sýni voru tekin innanlands í gær. Mun fleiri, eða alls fjórtán greindust á landamærum. Þetta staðfestir Rögnvaldur Ólafsson yfirlögregluþjónn í samtali við fréttastofu. Innlent 3. janúar 2021 11:03
Braut reglurnar viljandi til að leyfa viðskiptavinum að skipta jólagjöfum Fataverslunin Laura Thomsen Luxury í Silkeborg í Danmörku var opnuð í gær svo viðskiptavinir gætu skipt og skilað jólagjöfum. Þetta gerðu eigendur verslunarinnar, þrátt fyrir núgildandi reglur danskra stjórnvalda vegna sóttvarnaaðgerða sem kveða á um að verslanir skuli vera lokaðar til að minnsta kosti 17. janúar. Viðskipti erlent 3. janúar 2021 10:43
Áskoranir á nýju ári Nýtt ár er runnið upp með fyrirheitum og vonum um batnandi tíð. Við blasir að kveða niður veiruna með fjöldabólusetningum og koma atvinnulífinu í fullan gang. Skoðun 3. janúar 2021 10:01
Forstjóri almannavarna Svíþjóðar taldi jólaferð til Kanaríeyja nauðsynlega Dan Eliasson, framkvæmdastjóri almannavarna í Svíþjóð, hefur verið harðlega gagnrýndur í heimalandinu fyrir ferð sína til Las Palmas um jólin. Sjálfur segir hann ferðina hafa verið nauðsynlega. Erlent 2. janúar 2021 20:18