

Lögreglumál
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.

Mannslát í Reykjavík til rannsóknar og einn í haldi
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í nótt tilkynning um slasaðan karlmann á fertugsaldri fyrir utan hús í Rauðagerði í Reykjavík. Endurlífgunartilraunir hófust strax á vettvangi og í kjölfarið var hann fluttur á Landspítala. Hann var úrskurðaður látinn stuttu eftir komuna.

Sími, borvélar, humar og nautakjöt meðal þess sem stolið var
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fimmtán hávaðaútköllum frá klukkan fimm síðdegis í gær til klukkan fimm í morgun. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.

Þriðji staðurinn á von á sekt eftir brot um helgina
Aðstandendur eins veitingastaðar í Reykjavík mega eiga von á kæru, þar sem staðnum hafði ekki verið lokað þegar klukkan var tuttugu mínútur yfir tíu í gærkvöldi. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar.

Á von á að málum staðanna í miðbænum ljúki með sekt
Víða var fullbókað á veitingastöðum í miðborginni í gær, fyrstu helgina sem krár og skemmtistaðir fengu að taka úr lás eftir rúmlega fjögurra mánaða lokun. Tveir veitingastaðir eiga von á sekt vegna brota á reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Harður árekstur og skemmdarverk í ráðhúsinu
Lögregla var kölluð á vettvang um kl. 21 í gærkvöldi eftir að bifreið var ekið á vegrið á Bústaðavegi með þeim afleiðingum að hún kastaðist yfir á rangan vegarhelming og framan á aðra bifreið.

Tveir veitingastaðir eiga mögulega von á sektum
Einn veitingastaður má búast við kæru fyrir brot á sóttvarnalögum annars vegar og brot á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald annars vegar. Annar veitingstaður verður hugsanlega kærður fyrir brot á sóttvarnalögum.

Sex prósent landsmanna urðu fyrir barðinu á eltihrelli árið 2019
Eltihrellar mega búast við allt að fjögurra ára fangelsisvist eftir að Alþingi hefur samþykkt sérstök lög um umsáturseinelti. Um sex prósent landsmanna urðu fyrir barðinu á eltihrelli árið 2019. Dómsmálaráðherra segir þetta ofbeldisglæp og eitt mál af þessu tagi sé einu máli of mikið.

Lögðu hald á nokkuð magn fíkniefna auk skotvopns
Lögreglan á Austurlandi hefur á undanförnum vikum stöðvað tvær kannabisræktarnir í umdæminu.

Fóru úr landi eftir að þeir brutu sóttkví
Fjórir ferðamenn sem grunaðir eru um að hafa brotið reglur um sóttkví við komuna til landsins hafa yfirgefið landið. Mennirnir voru hér á vegum fyrirtækis sem sendi þá úr landi eftir að stjórnendur fréttu af brotunum. RÚV greinir frá.

Lögregla beitti piparúða
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beitt skömmu fyrir klukkan tvö í nótt piparúða til þess að ná stjórn á vettvangi í Hafnarfirði.

Starfsmenn barnaverndar kærðir til lögreglu: „Þarna er hreinn og klár ásetningur“
Starfsmenn Barnaverndar Reykjavíkur og Barnaverndarnefnd Reykjavíkur hafa verið kærð til lögreglu fyrir brot á hegningarlögum. Í kærunni eru starfsmenn barnaverndar sakaðir um að hafa ítrekað og endurtekið haldið fram ósannindum og rangindum í skýrslum og nefndin sökuð um að byggja ákvarðanir á umræddum gögnum.

Náðu ekki í skottið á Bandaríkjamönnum sem grunaðir eru um brot á sóttkví
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú tveggja Bandaríkjamanna sem grunaðir eru um brot á sóttkví. Mennirnir sátu að sumbli á Lebowski bar í miðbæ Reykjavíkur á sunnudag en voru horfnir á braut þegar lögregla kom á staðinn.

Göngumaður ökklabrotnaði í Esjunni
Talið er að maður sem var á göngu Esjunni hafi ökklabrotnað síðdegis í gær. Í pósti frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að tilkynning um slysið hafi borist um stundarfjórðungi yfir fimm í gær.

Lögreglan leitar að kofaeiganda
Um klukkan hálftíu í gærkvöldi fannst brotinn kofi á Suðurstrandarvegi, rétt vestan við Hlíðarvatn.

Ofurölvi á veitingahúsi og áreitti gest
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók um kvöldmatarleytið í gærkvöldi mann sem var ofurölvi á veitingahúsi í austurbæ Reykjavíkur.

Stríðið gegn konum
Gunnar Smári skrifar um umræðuna og gengdarlaust ofbeldi gegn konum.

Neitaði að borga reikninginn á veitingastað og var vistuð í fangageymslu
Lögregla var kölluð til á ellefta tímanum í gærkvöldi vegna konu á veitingahúsi í miðbæ Reykjavíkur. Konan hafði neitað að greiða reikninginn á veitingastaðnum og gaf ekki upp nafn eða kennitölu þegar lögregla kom á vettvang. Var hún vistuð sökum ástands í fangageymslu lögreglu.

Grunaður um að hafa stolið tveimur pokum af humri
Lögregla sinnti nokkrum útköllum vegna þjófnaðar í gærkvöldi og í nótt, en á níunda tímanum í gærkvöld var tilkynnt um hnupl úr verslun í miðbæ Reykjavíkur. Þar var maður sagður hafa stolið matvöru og var hann tekinn í skýrslutöku hjá lögreglu en látinn laus að henni lokinni.

Óboðnir gestir ruddust í samkvæmi ungmenna
Lögregla var kölluð til í samkvæmi í Grafarvogi á öðrum tímanum í nótt eftir ítrekaðar tilkynningar. Þar voru flestir gestir á aldrinum sextán til átján ára og höfðu óboðnir gestir ruðst inn í samkvæmið samkvæmt upplýsingum lögreglu. Grunur er um líkamsárás, húsbrot og brot á vopnalögum, að því er fram kemur í dagbók lögreglu.

Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á innflutningi fíkniefna
Karlmaður um þrítugt var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald til 12. febrúar á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Lögreglan lýsir eftir Kára Siggeirssyni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir hinum 32ja ára Kára Siggeirssyni. Kári er sagður vera 174 sentimetrar á hæð, þéttvaxinn, brúnhærður og með stutt hár.

Grunaður byssumaður losnar úr varðhaldi
Karlmaður á sextugsaldri sem grunaður er um að hafa skotið með riffli á fjölskyldubíl Dags B. Eggertssonar borgarstjóra losnar úr gæsluvarðhaldi klukkan fjögur í dag. Héraðssaksóknari taldi ekki grundvöll til að krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir manninum.

Í haldi lögreglu vegna líkamsárásar
Laust fyrir klukkan miðnætti í gær handtók lögreglan á höfuðborgarsvæðinu manns í Árbænum sem grunaður er um líkamsárás og brot á vopnalögum.

Á 135 kílómetra hraða í Ártúnsbrekkunni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði bíl í Ártúnsbrekkunni eftir hraðamælingu um klukkan átta í gærkvöldi en ökumaðurinn ók bílnum á 135 kílómetra hraða á klukkustund. Leyfilegur hámarkshraði í Ártúnsbrekku er 80 kílómetrar á klukkustund.

Maðurinn sem myrti Freyju áður verið dæmdur fyrir morð
Karlmaðurinn sem játað hefur að hafa myrt Freyju Egilsdóttur í Malling á Jótlandi hefur áður verið dæmdur fyrir morð. Árið 1996 hlaut hann dóm fyrir morðið á annarri barnsmóður sinni, en sonur þeirra var þá tveggja ára gamall.

„Hún var vinsæl og vinamörg, við erum í algjöru áfalli“
Vinir Freyju Egilsdóttur sem fannst látin á heimili sínu í nótt segja mikla sorg ríkja í Malling þar sem hún bjó. Þeir tóku þátt í leit að henni í gær, ásamt fjölmennu lögregluliði. Kerti og blóm hafa streymt að heimili hennar í dag.

Garðkönnu kastað í rúðu á heimili varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í nótt
Skemmdarverk voru unnin á heimili Ólafs Kr. Guðmundssonar, varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, í nótt. Þetta staðfesti hann í samtali við Vísi en vildi ekki tjá sig frekar um málið.

Líkama látna líklega velt yfir handriðið og kastað
Við rannsókn á dauða manns sem lést eftir fall af svölum fjölbýlishúss í Grafarholti 8. desember 2019, komust sérfræðingar að þeirri niðurstöðu að „utanaðkomandi“ kraftur hefði orðið til þess að maðurinn fór fram af.

Hélt grunuðum þjófi þar til lögregla kom
Um klukkan hálffjögur í nótt var óskað eftir aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem þjófi var haldið í Hafnarfirði.

Fyrrverandi lögreglumaður grunaður um skotárásina á bíl borgarstjóra
Maðurinn sem nú er í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa skotið úr byssu á bíl Dags B. Eggertssonar er fyrrverandi lögreglumaður.