Skjóta á sænska Toppinn og segja Kristal eins íslenskan og íslenskir drykkir verða Ölgerðin, sem framleiðir sódavatnið Kristal, segir í færslu á Facebook-síðu sinni að sá drykkur sé eins íslenskur og íslenskir drykkir verða. Viðskipti innlent 30. apríl 2020 17:55
Sænskt lindarvatn í Toppdósunum Þrátt fyrir að það sé ekki tiltekið á umbúðunum eða pakkningunni er Toppur í dós framleiddur og fluttur inn frá Svíþjóð. Viðskipti innlent 30. apríl 2020 10:20
Afslættir til skoðunar vegna ferðamannafátæktar í sumar Faraldur kórónuveirunnar hefur gert það að verkum að íslensk ferðaþjónustufyrirtæki sjá fram á erfiða tíma. Mörg þeirra róa lífróður og hafa þegar þurft að grípa til sársaukafullra aðgerða til að halda lífi. Þau undirbúa sig nú undir erfitt sumar og reyna í meiri mæli að ná inn íslenskum viðskiptavinum. Viðskipti innlent 30. apríl 2020 09:00
Drekinn seldi tugi ólöglegra níkótínvökva Aðstandendur söluturnsins Drekans á Njálsgötu seldu alls 60 tegundir ólöglegra áfyllinga á rafrettur. Viðskipti innlent 29. apríl 2020 11:04
Björgunarsveitir verða að henda partíbyssunum Slysavarnarfélaginu Landsbjörg hefur verið gert að farga svokölluðum „partíbyssum“ Viðskipti innlent 29. apríl 2020 10:11
Skilur viðskiptavini mjög vel en biðlar til fólks að vera rólegt á meðan farið er í gegnum skaflinn Þórunn Reynisdóttir, forstjóri Úrval Útsýnar, segist mjög vel skilja þá viðskiptavini fyrirtækisins sem séu orðnir óþreyjufullir eftir endurgreiðslum vegna ferða sem ekki hefur verið farið í vegna kórónuveirufaraldursins. Innlent 28. apríl 2020 21:00
Boða hópmálsókn gegn Úrval-Útsýn vegna draumaferðarinnar sem aldrei var farin Nokkrir viðskiptavinir ferðaskrifstofunnar Úrval-Útsýn hafa í hyggju að fara í hópmálsókn gegn félaginu. Þeim hefur gengið illa að fá ferðaskrifstofuna til þess að endurgreiða draumaferðina til Egyptalands sem aldrei var farin vegna kórónuveirufaraldursins. Innlent 28. apríl 2020 16:00
Innkalla bórmikið prumpuslím Leikfangaverslunin Kids Cool Shop hefur innkallað leikfangaslímið „Gas Maker“ frá framleiðandanum Robetoy, Neytendur 28. apríl 2020 13:51
Ekki hægt að horfa upp á aðra eins kaupmáttarrýrnun og varð eftir hrun Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segist vongóður um að á morgun hefjist formlegar viðræður við Samtök atvinnulífsins um hvernig verja megi lífskjarasamninginn í því alvarlega ástandi sem nú ríki á vinnumarkaði. Innlent 27. apríl 2020 23:15
Verð í matvöruverslunum hækkað síðan í febrúar Vöruverð í matvöruverslunum landsins hefur í mörgum tilfellum hækkað talsvert síðan í febrúar samkvæmt nýrri úttekt ASÍ. Viðskipti innlent 26. apríl 2020 16:54
Segja inneignarnótu ferðaskrifstofu ótraustvekjandi og ábyrgðinni varpað á viðskiptavini Áhrif ferðabanns, ferðatakmarkanna og efnahagsástands hafa einnig neikvæð áhrif á rekstur ferðaskrifstofa. Mælst er til þess að fólk fái inneignarnótur í stað endurgreiðslu. Hjón sem áttu draumaferð pantaða um páskana segja galið að leggja ábyrðina á herðar viðskiptavinarins. Innlent 24. apríl 2020 18:35
100 milljónir svo Íslendingar kaupi meira íslenskt Stjórnvöld og atvinnulífið hyggjast ráðast í sameiginlegt átak til að fá landsmenn til að versla við innlend fyrirtæki. Innlent 24. apríl 2020 15:21
Heimsending Tíu sopa mögulega komið í bakið á þeim Ólafur Örn Ólafsson, einn eigenda vínstúkunnar, óttast að þær litlu tekjur sem Tíu sopar höfðu af heimsendingum kunni að hafa skemmt möguleika þeirra á öðlast stuðning stjórnvalda. Viðskipti innlent 22. apríl 2020 15:11
Efast um að „inneignarnótuúrræði“ standist eignaréttarákvæði stjórnarskrár Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna segir hið svokallaða „inneignarnótuúrræði“ fyrir ferðaskrifstofur koma illa niður á neytendum og að verið sé að velta vandanum yfir á neytendur sem, margir hverjir, hafi misst lífsviðurværi sitt í heimsfaraldrinum sem nú geisar. Hann telur úrræðið ganga gegn eignaréttarákvæði stjórnarskrárinnar. Innlent 22. apríl 2020 13:16
„Við erum enginn banki fyrir ferðaskrifstofur“ Ekki eru allir á eitt sáttir við frumvarp um að ferðaskrifstofur geti endurgreitt ferðir sem ekki verði farnar í formi inneignarnótu. Hjón sem í október keyptu draumaferðina til Egyptalands um páskana og hafa reynt að fá ferðina endurgreidda segjast til að mynda ekki vera banki fyrir ferðaskrifstofur. Innlent 22. apríl 2020 12:51
Rúmlega 3000 heimili hafa sótt um greiðslufrest hjá fjármálafyrirtækjum Um 3.300 heimili og rúmlega eitt þúsund fyrirtæki hafa fengið greiðslufrest hjá bönkum og sparisjóðum vegna kórónuveirufaraldursins. Formaður Samtaka fjármálafyrirtækja segir mikið kapp lagt á að hjálpa fyrirtækjum í gegnum erfiðleika. Innlent 21. apríl 2020 20:00
Mótmæla að velta eigi lausafjárvanda fyrirtækja á herðar neytenda Stjórn Neytendasamtakanna mótmælir því harðlega að velta eigi lausafjárvanda fyrirtækja á herðar neytendum eins og gert er ráð fyrir í efnahagsaðgerðum stjórnvalda sem kynntar voru í dag. Innlent 21. apríl 2020 19:56
Söguleg staða á olíumörkuðum sem gæti komið íslenskum neytendum vel Sögulegir tímar eru nú uppi á olíumörkuðum þar sem verð hefur hríðfallið vegna hárrar birgðastöð og einstaklega lítillar eftirspurnar vegna kórónuveirunnar. Hagfræðingur segir þetta geta haft veruleg áhrif á olíuverð hér heima haldi þróunin áfram. Viðskipti innlent 21. apríl 2020 12:32
Heimilt að merkja með íslensku fánalitunum þó hluti vörunnar sé útlenskur Þó svo að íslensk fyrirtæki styðjist við útlensk „fylliefni“ í vörum sínum mega þau merkja þær í íslensku fánalitunum - svo lengi sem meirihluti heildarandvirðisins er frá Íslandi. Viðskipti innlent 21. apríl 2020 10:42
Bílasala hefur dregist saman um rúmlega helming í Evrópu Bílasala í Evrópu hefur dregist saman um um rúmlega helming á milli mars í fyrra og mars í ár. Í mars 2019 seldust 1,2 milljón nýrra bíla innan Evrópusambandsins en í ár voru það 570 þúsund. Bílar 21. apríl 2020 07:00
Skýlaus réttur til endurgreiðslu má ekki fara forgörðum Formaður Neytendasamtakanna vonast til að í næsta aðgerðarpakka ríkisstjórnarinnar verði úrræði fyrir ferðaþjónustuna og neytendur. Innlent 19. apríl 2020 12:14
Páskaegg uppurin á landinu Eftirspurn eftir páskaeggjum hér á landi hefur sjaldan verið meiri. Raunar var hún svo mikil fyrir þessa páska að ekki fengu allir þau egg sem þeir óskuðu sér helst. Framkvæmdastjóri hjá Nóa Síríus segist ekki muna eftir öðru eins og segir að í raun hafi verið um skort á eggjum að ræða. Innlent 12. apríl 2020 11:33
Tekur því ekki að greiða inn á verðtryggð lán? Á hverri kaffistofu er einhver sem virðist alltaf svo viss í sinni sök. Leiðið hugann að ykkar vinnustað, er þetta kannski sá sem sömuleiðis er háværastur? Skoðun 10. apríl 2020 09:00
Krefjast þess að skráningum á vanskilaskrá verði tafarlaust hætt Alþýðusamband Íslands og Neytendasamtökin krefjast þess að Creditinfo-Lánstraust hætti að skrá einstaklinga og fyrirtæki á vanskilaskrá. Viðskipti innlent 6. apríl 2020 16:00
Þurfa ekki að greiða fyrir bílatryggingar í maí vegna faraldursins Tryggingafélagið Sjóvá hefur ákveðið fella niður iðgjöld af bifreiðatryggingum einstaklinga í maí vegna kórónuveirunnar. Viðskipti innlent 5. apríl 2020 19:24
Iðkendur geti ekki krafist skaðabóta frá íþróttafélögum Hefðbundið, skipulagt íþróttastarf liggur niðri hér á landi vegna kórónuveirufaraldursins en iðkendur eiga ekki rétt á skaðabótum frá íþróttafélögunum af þeim sökum. Sport 4. apríl 2020 09:42
Víðir gaf grænt ljós á „Ég hlýði Víði“- boli til styrktar spítalanum Hafin hefur verið framleiðsla á stuttermabolum með áletruninni „Ég hlýði Víði.“ Viðskipti innlent 3. apríl 2020 09:00
Olíufélögin mætt minni eftirspurn með því að halda verðinu uppi Íslensku olíufélögin standa á bremsunni þegar kemur að því að skila lækkun heimsmarkaðsverðs á olíu til neytenda Viðskipti innlent 2. apríl 2020 12:08
Ábyrgð á pakkaferðum er tímaskekkja Lög um pakkaferðir eru í dag einhver mesta tímaskekkja sem þekkist á neytendamarkaði. Skoðun 2. apríl 2020 11:00
590 reyndu að panta sér einstakt nammitilboð Iceland 1. apríl Tæplega sex hundruð manns hlupu apríl í gabbi sem Vísir og verslunarkeðjan Iceland stóðu fyrir í dag. Viðskipti innlent 1. apríl 2020 17:35