Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik Eftir að hafa lent neðst í Olís-deild kvenna í handbolta á síðasta tímabili en óvænt fengið tækifæri til að halda áfram í deildinni hafa Selfyssingar nú unnið tvo af fyrstu sex leikjum sínum. Valsmenn unnu öruggan sigur á Víkingum í Olís-deild karla í kvöld þar sem Gunnar Róbertsson hélt áfram að fara á kostum. Handbolti 16.10.2026 21:03
KA-menn brotlentu í Garðabæ Stjörnumenn unnu frábæran sigur gegn heitum KA-mönnum í kvöld, 35-33, í 6. umferð Olís-deildar karla í handbolta. Þetta var annar sigur Stjörnunnar og annað tap KA sem situr í 3. sæti. Handbolti 16.10.2026 20:17
Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut ÍBV komst á sigurbraut í Olís-deild karla í handbolta í kvöld með sigri gegn Þór. Þar með komust Eyjamenn tveimur stigum frá Þórsurum í baráttunni um miðja deild. Handbolti 16.10.2026 19:42
Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Gunnar Róbertsson hélt áfram að fara á kostum í Olís deildinni í kvöld þegar lið hans Valur vann Þór Ak. á Hlíðarenda í miklum markaleik. Lokatölur 40-35 sigur Vals Handbolti 2. október 2026 20:35
Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Afturelding valtaði yfir Fram í Lambhagahöllinni í kvöld. Hákon Daði Styrmisson, hornamaður Aftureldingar, skoraði 17 mörk í átján marka sigri liðsins. Lokatölur 24-42 fyrir gestunum úr Mosó. Handbolti 1. október 2026 22:32
Haukar halda sigurgöngunni áfram Haukar sitja enn á toppi Olís-deildar karla eftir að liðið vann sannfærandi sigur á Víkingum í kvöld, 38-29. Haukar hafa ekki enn stigið feilspor í deildinni og byrja deildina sterkt. Handbolti 1. október 2026 20:40
KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum KA vann stórsigur á ÍBV í Olísdeild karla í handbolta í landsbyggðarslag kvöldsins. Fyrri hálfleikur leiksins var jafn en heimamennirnir voru mun betri í seinni hálfleik. Handbolti 1. október 2026 19:50
Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Fram var niðurlægt á heimavelli í kvöld í Olís-deildinni. Gestirnir í Aftureldingu gjörsamlega völtuðu yfir heimamenn sem gátu ekki spilað vörn fyrir sitt litla líf, en staðan í hálfleik var 15-22. Lokatölur 24-42 og Fram að tapa þriðja leiknum í röð á meðan Mosfellingar vinna sinn þriðja sigur á tímabilinu og eru komnir í þriðja sæti deildarinnar. Handbolti 1. október 2026 19:46
Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Ágúst Jóhannsson, þjálfari karlaliðs Vals í handbolta, kannast ekki við fregnir af krísufundi hjá liði hans í aðdraganda stórsigurs á Mors-Thy frá Danmörku í Evrópudeildinni í gær. Handbolti 30. september 2026 08:53
Minden keypti Erling af ÍBV Handboltaþjálfarinn Erlingur Richardsson hefur verið ráðinn þjálfari þýska 2. deildarfélagsins Minden og er því hættur sem þjálfari ÍBV í Olís-deildinni. Handbolti 28. september 2026 10:49
Nafnarnir í KA sáu um Val Víkingar unnu frábæran sigur á Þór í Olís-deild karla í Safamýrinni í kvöld. Lokatölur 36-31 en Þórsarar voru 19-17 yfir í hálfleik. Sport 25. september 2026 21:11
Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ Grétar Ari Guðjónsson, markvörður Hauka, reyndist hetja liðsins í grannaslag gegn FH í toppslag Olís deildar karla í handbolta. Stórbrotin markvarsla hans undir lok leiks sá til þess að Haukar sigldu heim fyrsta sigrinum í Kaplakrika síðan árið 2024. Handbolti 25. september 2026 08:28
„Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ Aron Pálmarsson, þjálfari FH, gat verið stoltur af sínu liði þrátt fyrir eins marks tap gegn Haukum í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Handbolti 24. september 2026 22:21
„Við erum Haukar og við horfum alltaf bara á toppinn“ Grétar Ari Guðjónsson, markvörður Hauka, reyndist hetja liðsins er Haukar unnu dramatískan eins marks sigur í Hafnarfjarðarslagnum gegn FH í Olís-deild karla í kvöld, 34-35. Handbolti 24. september 2026 21:42
Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Montrétturinn í Hafnarfirði er Haukamegin eftir að liðið vann dramatískan eins marks sigur gegn nágrönnum sínum í FH í Karplakrika í kvöld, 34-35. Handbolti 24. september 2026 21:11
Sigurður Dan skellti í lás og Stjarnan valtaði yfir Fram Stjarnan vann frábæran átta marka sigur á Fram 37-29 í Mýrinni í Garðabæ í Olís-deild karla í kvöld. Handbolti 24. september 2026 20:29
Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum HK-ingar unnu í kvöld sinn fyrsta leik í Olís-deild karla á tímabilinu og það í fjórðu umferð. Það sem gerir sigurinn enn merkilegri er að liðið vann ÍBV í Vestmannaeyjum á einum erfiðasta útivelli landsins. Handbolti 24. september 2026 19:50
„Meira en tvö stig undir“ Montrétturinn sem og toppsæti Olís deildarinnar er undir þegar að FH tekur á móti Haukum í nágrannaslag í Kaplakrika. Þar hafa Haukar ekki unnið síðan árið 2024 en þeir verma toppsæti deildarinnar fyrir leik kvöldsins. Handbolti 24. september 2026 12:01
Einar verulega ósáttur: „Mér finnst þetta bara galin ummæli“ Einar Jónsson, þjálfari Fram, vísar ummælum um sig og sína hegðun til föðurhúsanna og segir ómaklega vegið að bæði eftirlitsdómurum og formanni dómaranefndar HSÍ. Verið sé að búa til umræðu gegn honum og hans liði sem eigi engan rétt á sér. Handbolti 22. september 2026 07:54
33 mörk í tveimur leikjum: Mætti á æfingar og leiki með pabba Hinn ungi Gunnar Róbertsson hefur skorað 33 mörk í síðustu tveimur leikjum Vals í Olís-deildinni. Gegn Fram í þarsíðustu umferð gerði hann 17 mörk í sjö marka tapi og í síðustu umferð skoraði hann 16 mörk í öruggum sigri gegn HK. Handbolti 20. september 2026 10:17
ÍBV beið eftir betra veðri og sótti sigur Einn leikur fór fram í Olís-deild karla í dag þegar Fram tók á móti ÍBV. Fram mistókst að viðhalda fullkominni byrjun á mótinu því ÍBV náði í mikilvægan 33-30 sigur á erfiðum útivelli. Handbolti 17. september 2026 19:16
Í skýjunum með dönsku nýlenduna í Þorpinu „Þetta var aldrei í hættu, við mættum vel innstilltir í þetta og bara kláruðum þennan leik, ógeðslega sáttur með þetta“ sagði Þórður Tandri Ágústsson, leikmaður Þórs eftir frábæran sigur á grönnunum í KA í Olís-deildinni í handbolta. Handbolti 17. september 2026 09:25
„Erum að spila fyrir allt Þórs samfélagið“ Daniel Birkelund, þjálfari Þórs, var glaður í bragði eftir sætan sigur gegn erkifjendunum í KA en lokatölur urðu 31-35 í KA heimilinu. Handbolti 16. september 2026 23:17
„Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“ Þór hafði betur gegn erkifjendum sínum í KA í þriðju umferð Olís deildar karla þegar liðin mættust í KA heimilinu í kvöld. Eftir brösusa byrjun tóku Þórsarar við sér og unnu 31-35 sigur eftir spennuþrungnar lokamínútur. Handbolti 16. september 2026 22:11