Patrekur í viðræðum við Val Samkvæmt heimildum Vísis eru verulegar líkur á því að Patrekur Jóhannesson verði næsti þjálfari karlaliðs Vals. Patrekur staðfesti við Vísi í dag að óformlegar viðræður hefðu átt sér stað. Handbolti 29. mars 2012 13:51
Óskar Bjarni tekur við danska liðinu Viborg Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Valsmanna og aðstoðarþjálfari Guðmundar Guðmundssonar hjá íslenska landsliðinu, verður næsti þjálfari danska liðsins Viborg. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í kvöld. Handbolti 28. mars 2012 20:22
ÍR tryggði sér sæti í N1-deildinni ÍR mun leika í deild þeirra bestu í handboltanum næsta vetur. ÍR-ingar tryggðu sér sigur í 1. deildinni í kvöld er þeir skelltu Víkingi örugglega. Handbolti 23. mars 2012 22:36
Einar: Dómgæslan var skelfileg Einari Jónssyni, þjálfara Fram, var heitt í hamsi eftir leikinn gegn Akureyri í kvöld. Þar köstuðu hans menn sigrinum frá sér undir lokin. Handbolti 23. mars 2012 21:52
Anton afgreiddi sína gömlu félaga Valur hristi Gróttu af sér í síðari hálfleik í kvöld og vann góðan sigur á botnliðinu sem hefur lítið gert í vetur. Handbolti 23. mars 2012 21:21
Haukar geta orðið deildarmeistarar í kvöld - heil umferð í N1 deild karla Haukar geta tryggt sér deildarmeistaratitilinn í kvöld verði úrslitin þeim hagstæð en þá fer fram næstsíðasta umferðin í N1 deild karla í handbolta. Vinni Haukarnir Aftureldingu á sama tíma og nágrannar þeirra í FH tapa stigum á móti HK þá næla Haukar í þriðja titilinn á tímabilinu en þeir hafa þegar unnið bikarinn og deildarbikarinn. Handbolti 23. mars 2012 16:30
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Afturelding 21-19 Haukar eru orðnir deildarmeistarar í handbolta þrátt fyrir að ein umferð sé enn eftir af N1-deild karla. Þeir unnu Aftureldingu í kvöld en á sama tíma mistókst FH að vinna HK. Handbolti 23. mars 2012 14:29
Umfjöllun og viðtöl: Fram - Akureyri 29-29 Fram og Akureyri skildu jöfn 29-29 í N1 deildinni í kvöld. Leikurinn var æsispennandi og kaflaskiptur og hefðu Framarar getað unnið leikinn á lokasekúndunum en tókst ekki. Handbolti 23. mars 2012 14:26
Umfjöllun og viðtöl: FH - HK 24-24 | FH-ingar komnir í úrslitakeppnina FH-ingar unnu upp fimm marka forskot HK í seinni hálfleik og tryggðu sér 24-24 jafntefli og um leið öruggt sæti í úrslitakeppninni þegar FH og HK mættust í spennandi leik í Kaplakrika í N1 deild karla í kvöld. HK var 17-12 yfir í hálfleik og FH komst síðast yfir í leiknum í stöðunni 6-5 þegar fyrri hálfleikurinn var hálfnaður. Handbolti 23. mars 2012 14:21
Haukar unnu í Digranesi - myndir Haukar komust aftur á topp N1-deildar karla í gærkvöld er liðið lagði HK í Digranesi. Á sama tíma tapaði FH á Akureyri og missti þar með toppsætið í hendur nágranna sinna. Handbolti 20. mars 2012 06:00
Fram lagði botnlið Gróttu Eftir dapran fyrri hálfleik rifu Framarar sig upp í þeim síðari og lögðu botnlið Gróttu af velli með þriggja marka mun, 23-26. Handbolti 19. mars 2012 21:58
Umfjöllun og viðtöl: Akureyri - FH 30-26 Akureyri vann góðan og sannfærandi sigur á FH í N1-deild karla í handbolta í kvöld. Lokatölur 30-26 sem var síst of stórt. Handbolti 19. mars 2012 18:30
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Afturelding 24-20 Valsmenn unnu í kvöld fjögurra marka heimasigur, 24-20 á Aftureldingu í N1 deildinni. Leikurinn var lítið fyrir augað og virkuðu bæði lið frekar áhugalaus í leiknum. Sigurinn er þó kærkominn Valsmönnum enda eygja þeir ennþá litla von á sæti í úrslitakeppninni. Þeir þurfa þó að klára síðustu tvo leiki sína í deildinni ásamt því að treysta á hagstæð úrslit í öðrum leikjum. Handbolti 19. mars 2012 16:25
Umfjöllun og viðtöl: HK - Haukar 20-26 Haukar unnu öruggan sigur,26-20, á HK í Digranesinu í kvöld og eru því komnir í efsta sæti deildarinnar. Sigur gestanna var aldrei í hættu og voru þeir einfaldleika mikið betri aðilinn í leiknum. Heimir Óli Heimisson skoraði sex mörk fyrir Hauka og Aron Rafn Eðvarðsson varði 18 skot í markinu. Handbolti 19. mars 2012 16:23
Sigfús biðst afsökunar Sigfús Sigurðsson, leikmaður Vals hefur beðist afsökunar á ummælum sínum eftir tap Vals á móti Fram í N1 deild karla í gær en hann gagnrýndi þar dómara leiksins þá Arnar Sigurjónsson og Svavar Ólaf Pétursson. Handbolti 12. mars 2012 22:54
Aron Rafn: Ég gef landsliðssætið ekki svo létt frá mér "Þetta var mjög þægilegur sigur gegn sterki liði Akureyri," sagði Aron Rafn Eðvarðsson, maður leiksins, eftir sigurinn í kvöld. Handbolti 12. mars 2012 22:46
FH-ingar unnu léttan sigur á botnliði Gróttu FH-ingar endurheimtu toppsætið með öruggum þrettán marka sigur á Gróttu, 31-18, í N1 deild karla í kvöld en Haukar voru klukkutíma á toppnum eftir sigur á Akureyri fyrr í kvöld. FH-ingar tóku öll völd í fyrri hálfleik og féllu ekki sömu gryfju og nágrannar þeirra á dögunum. Handbolti 12. mars 2012 21:09
Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - HK 21-30 | HK upp í 3. sætið HK endurheimtu þriðja sætið með öruggum 9 marka sigri í Mosfellsbænum í kvöld. Eftir að hafa leitt allan leikinn náðu þeir ekki að hrista heimamenn frá sér fyrr en í seinni hálfleik þegar þeir gerðu út um leikinn um miðjan hálfleikinn. Handbolti 12. mars 2012 14:25
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Akureyri 26-18 | Aron Rafn í miklu stuði Fjögurra leikja sigurganga Akureyringa í N1 deild karla í handbolta endaði í kvöld þegar Haukar unnu átta marka sigur á Akureyri, 26-18, í Schenkerhöllinni á Ásvöllum. Handbolti 12. mars 2012 14:19
Sigfús: Fram vann þetta á heimadómgæslu "Ég er mjög ánægður með tveggja marka tap þrátt fyrir að hafa verið tveimur til þremur mönnum færri allan leikinn," sagði Sigfús Sigurðsson allt annað en sáttur við dómgæsluna í Safamýrinni í dag er Fram lagði Val með tveggja marka mun í mikilvægum leik. Handbolti 11. mars 2012 20:27
Lykilsigur hjá Fram - myndir Það var hart tekist á þegar Fram og Valur mættust í gríðarlega mikilvægum handboltaleik í Safamýri í dag. Handbolti 11. mars 2012 18:55
Umfjöllun og viðtöl: Fram - Valur 30-28 Framarar sigruðu granna sína í Val í Reykjavíkurslagnum í N1-deildinni í handbolta karla í dag. Lokatölurnar urðu 30-28 í leik sem var spennandi langt fram í síðari hálfleik þegar Framarar sigu fram úr. Gríðarlega mikilvægur fyrir Framara í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni en Valsmenn eru aftur á móti í slæmum málum. Handbolti 11. mars 2012 00:01
Hádramatík þegar Valsmenn unnu toppliðið - myndir Valsmenn héldu lífi í voninni um sæti í úrslitakeppni N1 deildar karla með 28-27 sigri á FH í 17. umferð N1 deildar karla í kvöld. Valsmenn hafa þar með náð í þrjú stig af fjórum mögulegum í síðustu tveimur leikjum sínum á móti toppliðum deildarinnar. Valsliðið tók stig af Haukum í umferðinni á undan en það jafntefli kostaði Haukana toppsætið. Handbolti 8. mars 2012 22:45
Kristján: Eins og að danska landsliðið hefði verið að spila Kristján Arason, þjálfari FH, var eins og aðrir FH-ingar afar ósáttur við að sigurmark Vals gegn sínum mönnum hafi verið dæmt gilt. Valur vann leikinn, 28-27, en sigurmarkið kom úr hraðaupphlaupi í blálokin. Handbolti 8. mars 2012 21:51
Óskar Bjarni: Viðurkenni að þetta var vafasamt "Ég þori ekki að segja til um þetta. En þetta var mjög vafasamt - ég skal viðurkenna það. Ég veit ekki hvað ég hefði dæmt. Ég verð að sjá þetta á myndbandi aftur.“ Handbolti 8. mars 2012 21:47
Grótta vann mjög óvæntan sigur á Haukum Botnlið Gróttu fagnaði sínum fyrsta sigri í vetur þegar liðið vann þriggja marka sigur á bikarmeisturum Hauka, 23-20, á Seltjarnarnesinu í N1 deild karla í handbolta í kvöld. Haukarnir lentu mest sjö mörkum undir og hið unga lið Gróttu hélt síðan út í lokin. Handbolti 8. mars 2012 21:14
Umfjöllun og viðtöl: Akureyri - HK 31-28 | Akureyri í toppbaráttuna Akureyri vann sinn fjórða leik í röð í N1 deild karla í handbolta í kvöld þegar liðið vann þriggja marka sigur á HK í Höllinni á Akureyri. HK var fyrir leikinn búið að vinna báða deildarleiki liðanna í vetur. Akureyringar komust upp fyrir HK og upp í þriðja sætið með þessum sigri en norðanmenn eru búnir að vinna sjö af síðustu átta deildarleikjum sínum. Handbolti 8. mars 2012 18:30
Umfjöllun og viðtöl: Fram - Afturelding 30-25 Þrátt fyrir að hafa verið undir fyrstu 48 mínútur leiksins náðu Framarar að stíga upp fyrir lokin og tryggja sér öruggan 5 marka sigur á Aftureldingu í N1-deild karla í kvöld, 30-25. Handbolti 8. mars 2012 11:35
Umfjöllun og viðtöl: Valur - FH 28-27 | Umdeilt sigurmark Sveinn Aron Sveinsson tryggði Val afar nauman og umdeildan sigur á FH í kvöld. Markið skoraði hann úr hraðaupphlaupi á lokasekúndunum og er deilt um hvort að leiktíminn hafi verið útrunninn þegar boltinn hafnaði í netinu. Handbolti 8. mars 2012 11:33
HK vann skyldusigur á Gróttu Einn leikur fór fram í N1-deild karla í dag. HK vann nauman sigur á botnliði Gróttu, 33-30. Gróttumenn eru því enn að bíða eftir fyrsta sigrinum. Handbolti 3. mars 2012 17:58