Akureyri skellti Stjörnunni Akureyri vann nokkuð sigur á Stjörnunni í Ásgarði í leik kvöldsins í DHL deild karla í handknattleik 23-22, eftir að heimamenn höfðu 5 marka forskot í hálfleik. Akureyri skaust með sigrinum í 3. sæti deildarinnar og hefur hlotið 7 stig í 5 leikjum, en Stjarnan er í 5. sæti með 4 stig. Handbolti 12. nóvember 2006 19:44
Fylkir úr leik Fylkir er úr leik í Áskorendakeppni Evrópu eftir annað naumt 30-29 tap fyrir svissneska liðinu St. Otmar ytra, en fyrri leik liðanna lauk með sama markamun í gær og því er íslenska liðið úr leik. Handbolti 12. nóvember 2006 19:35
Valsmenn aftur á toppinn Einn leikur fór fram í DHL deild karla í handbolta í dag. Valsmenn skelltu sér aftur á topp deildarinnar með 31-25 sigri á ÍR. Markús Máni Michaelsson var markahæstur hjá Val með 7 mörk en Davíð Georgsson skoraði 8 fyrir botnlið ÍR. Handbolti 11. nóvember 2006 17:51
HK á toppinn HK skellti sér á toppinn í dhl deild karla í kvöld með sigri á Haukum 26-21 í Digranesi. HK hefur 9 stig í efsta sæti deildarinnar en Valsmenn hafa 8 stig og eiga leik til góða. Haukar eru í sjötta sætinu með 4 stig eftir 6 leiki. Handbolti 8. nóvember 2006 20:49
Naumur sigur Akureyri á Fylki Akureyri komst upp fyrir Fylki og í 3. sæti DHL-deildar karla í handbolta með því að sigra Árbæjarliðið á heimavelli sínum í kvöld, 30-27. Akureyri er nú komið með 5 stig eftir fjóra leiki en Fylkir er með sama stigafjölda eftir fimm leiki. Handbolti 6. nóvember 2006 20:39
Valur vann í Laugardalshöllinni Valsmenn unnu öruggan og sannfærandi sigur á Íslandsmeisturum Fram í DHL-deild karla, 30-25, en leiknum Í Laugardalshöllinni var að ljúka rétt í þessu. Valur endurheimti þar með efsta sæti deildarinnar en Framarar sitja áfram í næst neðsta sæti deildarinnar. Handbolti 5. nóvember 2006 17:40
HK skellti ÍR í Breiðholti HK endurheimti toppsæti DHL-deildar karla í handbolta í dag með því að vinna nauman útisigur á ÍR-ingum í Breiðholti, 21-22. HK er með sjö stig á toppi deildarinnar en Valsmenn, sem koma í öðru sæti með sex stig, mæta Fram á morgun. Handbolti 4. nóvember 2006 18:34
Stjarnan lagði Hauka Stjarnan lagði Hauka 33-29 á útivelli í leik kvöldsins í DHL deild karla í handbolta og náði með þessum mikilvæga sigri að rétta sinn hlut nokkuð í deildinni eftir slæma byrjun. Bæði lið eru með 4 stig eftir 5 umferðir í deildinni. Handbolti 1. nóvember 2006 22:25
Tveir stórleikir í 16 liða úrslitunum Í dag var dregið í 16 liða úrslit karla í ss bikarnum í karlaflokki og þar verða tveir stórleikir á dagskrá. Íslandsmeistarar Fram mæta Fylki og Haukar taka á móti Valsmönnum, en leikirnir verða spilaðir 15. nóvember. Handbolti 1. nóvember 2006 14:53
Kristján ráðinn þjálfari út tímabilið Stjarnan réð í gær Kristján Halldórsson sem þjálfari karlaliðsins út þetta tímabil en Kristján tekur við starfinu af þeim Sigurði Bjarnasyni og Magnúsi Teitssyni sem sögðu upp störfum á dögunum. Það hafði gengið frekar brösuglega hjá Stjörnumönnum að finna nýjan mann en nú er loks orðið ljóst að Kristján stýrir skútunni til loka tímabilsins en hann hitti leikmennina í gærkvöldi. Handbolti 24. október 2006 08:00
Patrekur og Konráð þjálfa Stjörnuna tímabundið Patrekur Jóhannesson fyrirliði og Konráð Olavsson munu stýra karlaliði Stjörnunnar í handbolta þangað til eftirmaður Sigurðar Bjarnasonar finnst, en Sigurður sagði starfi sínu lausu í gær. Formaður handknattleiksdeildar félagsins staðfesti þetta í samtali við NFS í kvöld, en vonaðist til að ganga frá ráðningu þjálfara í vikunni. Handbolti 16. október 2006 19:45
Sigurður hættur að þjálfa Stjörnuna Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem tilkynnt er að Sigurður Bjarnason hafi látið af störfum sem þjálfari karlaliðs félagsins og aðstoðarmaður hans Magnús Teitsson sömuleiðis. Handbolti 16. október 2006 14:12
Valur lagði Stjörnuna Valsmenn unnu í dag góðan sigur á Stjörnunni í úrvalsdeild karla í handbolta 30-29 og því er Stjarnan enn án sigurs í deildinni eftir þrjá leiki. Ernir Hrafn Arnarson skoraði 7 mörk fyrir Val og Patrekur Jóhannesson skoraði einni 7 mörk fyrir Stjörnuna. Ólafur Haukur Gíslason varði 17 skot í marki Vals. Handbolti 14. október 2006 17:39
HK á toppnum Einn leikur var á dagskrá í DHL-deild karla í handknattleik í kvöld. Íslandsmeistarar Fram urðu að láta sér lynda jafntefli gegn HK í Digranesi 22-22 og því er Kópavogsliðið í efsta sæti deildarinnar. Handbolti 11. október 2006 21:29
Akureyringar kafsigldu dapra Breiðhyltinga Það var rífandi stemmning KA-heimilinu á Akureyri í gær þegar samnefnt lið bæjarnafninu tók á móti ÍR í fyrsta heimaleiknum sem sameinað lið KA og Þórs. Greinilegt er með öllu að þessir sameinuðu kraftar hafa nú myndað sterkt handboltalið sem er með dyggann stuðning allra bæjarbúa með sér og er ljóst að það verður erfitt fyrir öll lið að mæta í gryfjuna sem KA-heimilið er. Handbolti 9. október 2006 07:15
Akureyri vann góðan heimasigur Akureyri vann góðan heimasigur, 33-24, á ÍR á Akureyri í dag. Sigur Akureyringa var aldrei í hættu en staðan í hálfleik var 17-9. Akureyringar léku mjög vel í dag og varnarleikur þeirra var góður að sama skapi náðu ÍR-ingar sér aldrei á flug. Handbolti 8. október 2006 17:38
Vorum ömurlegir í þessum leik Valsmenn sóttu Fylkismenn heim í Árbænum í gær. Fylkismenn náðu fjögurra marka forskoti í upphafi leiks og héldu því til leiksloka og unnu sanngjarnan sigur, 28-26. Þjálfari Vals, sem var spáð sigri í úrvalsdeild karla fyrir mótið, var mjög ósáttur en lítill meistarabragur var yfir Valsmönnum í gær. Handbolti 8. október 2006 09:00
Fylkir lagði Íslandsmeistaraefnin Fylkismenn, sem spáð var sjöunda sæti og falli í deildinni, gerðu sér lítið fyrir og skelltu Íslandsmeistaraefnunum í Val í Árbænum nú rétt áðan 28-26. Val var spáð titlinum í spá fyrirliða og forráðamann fyrir mótið. Staðan í hálfleik var 14-9 fyrir fylki. Handbolti 7. október 2006 17:47
Bikarmeistararnir í Digranesið Í dag var dregið í 32-liða úrslit karla og 16-liða úrslit kvenna í SS bikarnum. Í karlaflokki ber hæst að þar fá bikarmeistarar Stjörnunnar það erfiða verkefni að mæta HK mönnum, en Kópavogsliðið vann góðan sigur á bikarmeisturunum í deildinni í gær. Handbolti 5. október 2006 17:26
Haukar skelltu Íslandsmeisturunum Haukar gerðu sér lítið fyrir og lögðu Framara að velli 30-29 í dhl deild karla í handbolta í kvöld. Andri Stefan skoraði 7 mörk fyrir Hauka, Guðmundur Pedersen 6 og þeir Gísli Þórisson, Árni Sigtryggsson og Freyr Brynjarsson 4 hver. Þorri Gunnarsson skoraði 8 mörk úr 8 skotum fyrir Fram og Sergey Serenko skoraði 6 mörk. Handbolti 4. október 2006 21:48
Öruggur sigur HK í Ásgarði Lið Stjörnunnar í Garðabæ er enn án sigurs í DHL deild karla í handknattleik eftir að liðið steinlá á heimavelli fyrir HK í kvöld 28-23. Þetta var annar sigur HK í deildinni og tölfræði úr leiknum má lesa hér fyrir neðan. Handbolti 4. október 2006 21:16
Þrír leikir í kvöld Þrír leikir fara fram í DHL-deildinni í handbolta í kvöld, tveir í karlaflokki og þá verður leikur Gróttu og ÍBV í kvennaflokki spilaður klukkan 19 á Seltjarnarnesi eftir að leiknum var frestað í gær. Í karlaflokki mætast Stjarnan og HK í Ásgarði klukkan 19 og Fram tekur á móti Haukum í Framhúsinu klukkan 20. Handbolti 4. október 2006 15:36
Valur lagði Akureyri Fyrsta umferð DHL deildar karla í handbolta kláraðist í dag með tveimur leikjum. Valur vann sigur á liði Akureyrar 26-22 í Laugardalshöllinni og HK lagði Fylki örugglega 31-24 í Digranesi. Handbolti 30. september 2006 17:40
Óvæntur sigur ÍR á Haukum Lið ÍR gerði sér lítið fyrir og skellti Haukum örugglega 36-30 í síðari leik kvöldsins í DHL deild karla í handbolta. Það var mál manna fyrir mót að ÍR yrði í miklum vandræðum í vetur eftir að hafa enn eina ferðina misst mikið af mönnum úr hóp sínum, en þessi fyrsti leikur liðsins í deildinni virðist þó ekki bera þess merki. Handbolti 27. september 2006 21:53
Framarar komu fram hefndum Íslandsmeistarar Fram sóttu Stjörnuna heim í fyrsta leik DHL deildar karla í handknattleik í kvöld og höfðu Íslandsmeistararnir sigur 30-26 og komu því fram hefndum frá tapinu í meistarakeppni HSÍ á dögunum. Þess má geta að Fram tekur á móti lærisveinum Alfreðs Gíslasonar í Gummersbach í meistaradeildinni um helgina og verður sá leikur sýndur beint á Sýn. Handbolti 27. september 2006 21:14
Deildin byrjar á stórleik DHL-deild karla hefst í kvöld með tveimur leikjum. Fyrsti leikur tímabilsins er stórleikur í Ásgarði þar sem bikarmeistarar Stjörnnunar mæta Íslandsmeisturum Fram og hefst leikurinn kl. 19:00. Í Austurbergi mætast ÍR og Haukar og hefst sá leikur kl. 20:00. Handbolti 27. september 2006 15:30
Spá þjálfara og forráðamanna Valsmönnum er spáð Íslandsmeistaratitlinum í DHL-deild karla, samkvæmt spá þjálfara og forráðamanna. Fram er spáð öðru sætinu, síðan koma Haukar, Stjarnan, HK og Akureyri. Fylkismönnum og ÍR-ingum er spáð falli í sjöunda og áttunda sæti deildarinnar. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í dag. Handbolti 25. september 2006 13:50
Fram - Stjarnan að hefjast Leikur Fram og Stjörnunnar í meistarakeppni HSÍ hefst nú klukkan 19 í Framhúsinu, en þetta er árleg viðureign Íslands- og bikarmeistaranna í handboltanum og markar hann upphaf leiktíðarinnar. Handbolti 20. september 2006 18:51
Handboltavertíðin hefst á morgun Á morgun hefst handboltavertíð vetrarins með formlegum hætti þegar kvennalið ÍBV og Hauka leiða saman hesta sína í Vestmannaeyjum í meistarakeppni HSÍ. Á miðvikudaginn er svo komið að körlunum þar sem Fram og Stjarnan eigast við í Framhúsinu. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19. Handbolti 18. september 2006 19:15
Neitar að tjá sig Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu síðustu daga þá hefur Geir Sveinsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði, sakað Hjálmar Vilhjálmsson, varaformann handknattleiksdeildar Fram, um að fara huldu höfði á spjallborði Vals þar sem hann hafi reynt að skapa óróa innan félagsins með ummælum sínum. Handbolti 14. september 2006 00:01