Bein útsending: Skýra frá athugun sinni á vöggustofunum Nefnd sem hafði það verkefni að kynna sér starfsemi tveggja vöggustofa sem reknar voru í Reykjavík á síðustu öld mun kynna niðurstöðu skýrslu sinnar á blaðamannafundi í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Innlent 5. október 2023 13:40
Ekki ljóst hvort veitingastaðir eða aðrir hafi keypt heilsuspillandi matvörur Matvælaeftirlit heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar hefur látið farga nokkrum tonnum af matvælum sem lagt var hald á í síðustu viku. Matvælin voru geymt á ólöglegum stað án tilskylinna leyfa og segir deildarstjóri matvælaeftirlitsins málið fordæmalaust. Innlent 5. október 2023 12:53
Um aðgengi að upplýsingum Þann 27. september birtist pistill eftir Sigurð Gylfa Magnússon prófessor í menningarsögu við Háskóla Íslands þar sem hann skorar á borgarstjóra og bæjarstjóra Kópavogs að endurskoða ákvarðanir þeirra um að hætta rekstri Borgarskjalasafns og Héraðsskjalasafni Kópavogs. Skoðun 5. október 2023 11:01
Ofbauð verðið á kökusneiðum og kjötsúpu í Perlunni Viðskiptavinur Perlunnar segir verðlagningu á veitingum kaffihússins ósvífna. Tertusneið kostar 2.490 krónur og belgísk vaffla 2.790 krónur. Þá hafa nokkrir klórað sér í höfðinu yfir næstum fimm þúsund króna skammti af kjötsúpu, sem veitingastjóri staðarins segir sjálfur að sé okur. Neytendur 5. október 2023 10:44
Mörgum tonnum af mat fargað af ólöglegum matvælalager Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar hefur lagt hald á og fargað nokkrum tonnum af matvælum sem geymd voru við óheilnæmar aðstæður á höfuðborgarsvæðinu. Málið er sagt fordæmalaust. Innlent 5. október 2023 06:19
Líst illa á að lífsbjargandi neyslurými verði í bifreið: „Fólk er að deyja“ Reykjavíkurborg skoðar að opna færanlegt neyslurými aftur á meðan leitað er að varanlegu rými. Rauði krossinn segir hugmyndina afleita. Að þjóðfélagshópurinn sem sæki sér þjónustuna eigi skilið betri húsakost en bíl. Innlent 4. október 2023 20:03
Frelsissvipting í Kópavogi Lögreglu barst tilkynning um líkamsárás og frelsissviptingu í Kópavogi á sjöunda tímanum í morgun. Innlent 4. október 2023 19:29
Tímamót í Vesturbænum: Hræðilega sárt að selja „barnið hans Þóris“ Elsta starfandi blómabúð landsins, sem hefur verið rekin af sömu fjölskyldunni frá stofnun, er komin á sölu. Eigandi segir það skelfilega sárt að selja búðina en ekkert annað sé í stöðunni. Viðskipti innlent 4. október 2023 19:29
Eigandi Tulipop selur sjarmerandi miðbæjarperlu Signý Kolbeinsdóttir vöruhönnuður og hugmyndasmiðurinn á bak við töfraheim Tulipop hefur sett sjarmerandi íbúð sína við Grettisgötu í Reykjavík til sölu. Ásett verð fyrir eignina er 90,9 milljónir. Lífið 4. október 2023 16:34
Skokkarinn lagði Reykjavíkurborg með minnsta mun Starfsmaður Reykjavíkurborgar á rétt á slysabótum vegna slyss sem varð þegar hann hljóp heim til sín úr vinnunni. Þrír dómarar Hæstaréttar voru á þessari skoðun en tveir á móti. Þótt skokkarinn hefði ekki farið stystu leið heim þá hefði hún ekki verið úr hófi löng og réttlætanleg þar sem leiðin var um göngustíga. Innlent 4. október 2023 16:14
Framtíðin sé á Íslandi en verður sendur út eftir nokkra daga Á dögunum kom lögreglumaður á skrifstofu Þróttar og tilkynnti að búið væri að kaupa flugmiða fyrir vallarstjóra félagsins. Honum á að vísa úr landi þann sextánda október næstkomandi. Innlent 4. október 2023 14:08
Áfram í gæslu eftir harmleikinn í Bátavogi Krufning á 58 ára karlmanni sem fannst meðvitundarlaus í félagsíbúð við Bátavog í Reykjavík laugardagskvöldið 23. september bendir til þess að honum hafi verið ráðinn bani að sögn lögreglu. Kona á 42. aldursári var í dag úrskurðuð í tveggja vikna áframhaldandi gæsluvarðhald en hún var á vettvangi þegar lögreglu bar að garði. Innlent 4. október 2023 13:22
Nýr byggingarfulltrúi og framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits í Reykjavík Brynjar Þór Jónasson hefur verið ráðinn nýr byggingarfulltrúi Reykjavíkur og Tómas G. Gíslason nýr framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Innlent 4. október 2023 12:34
Vill frekar deyja en að fara aftur til Venesúela Tugir komu saman við Hallgrímskirkju í morgun til að mótmæla ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja megi hælisleitendum frá Venesúela um alþjóðlega vernd. Mótmælendur, bæði Venesúelamenn og stuðningsfólk, lýstu reiði og ótta við framtíðina. Innlent 4. október 2023 11:49
Veiga stígur fram vegna orðróms um „karlmanninn í kvennaklefanum“ Trans konan Veiga Grétarsdóttir Sulebust hefur nú stigið fram og greint frá því að sögusagnir um karlmann sem á að hafa nýtt sér kvennaklefa Grafarvogslaugar séu uppspuni byggður á hatri. Innlent 3. október 2023 21:34
Manninum sem fannst látinn í austurborginni virðist hafa verið ráðinn bani Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir allt benda til þess að manni, sem lést eftir að hafa fundist meðvitundarlaus um þarsíðustu helgi, hafi verið ráðinn bani. Innlent 3. október 2023 17:17
Átök ókunnugra kvenna við Petersen-svítuna enduðu fyrir dómi Ung kona var í dag dæmd í þrjátíu daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir líkamsárás sem átti sér stað á djamminu í miðbæ Reykjavíkur í júní 2021, nánar tiltekið fyrir framan Petersen-svítuna. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness. Innlent 3. október 2023 16:00
Einbýli á Sunnuveginum í upprunalegum stíl á 220 milljónir Við Sunnuveg 24 í Reykjavík er glæsilegt 328 fermetra einbýlishús til sölu. Húsið var byggt árið 1964 og er í upprunalegum stíl sem er einstakur fyrir margar sakir. Lífið 3. október 2023 15:37
Leitað að gerendum í líkamsárásarmáli Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk símtal rétt fyrir klukkan eitt í nótt þar sem maður sagðist hafa orðið fyrir líkamsárás. Þegar lögregla mætti á vettvang voru meintir gerendurnir farnir af vettvangi í bifreið. Innlent 3. október 2023 06:05
Fimmtán ára drengur grýtti skóflu að lögreglumönnum Fimmtán ára drengur kastaði skóflu í átt að lögreglumönnum í dag. Skóflan endaði á lögreglubifreið svo af hlutust minniháttar skemmdir. Innlent 2. október 2023 23:43
Fjölbreyttar hugmyndir hlutu kosningu: „Breiðholt er náttúrlega eitt af flottustu svæðum heims“ Sextíu og tvær hugmyndir hlutu kosningu í verkefninu Hverfið mitt, sem lauk í síðustu viku. Innlent 2. október 2023 23:14
Grét lengi eftir að hún komst að því að hugmyndin yrði að veruleika Birgitta Jeanne Sigursteinsdóttir segist enn vera að jafna sig á fréttum þess efnis að Alexöndruróló, leikvöllur gerður í minningu dóttur hennar, verði að veruleika. Verkefnið var eitt af þeim sem var kosið um í Hverfið mitt, en 98 prósent þeirra sem kusu um það voru samþykkir verkefninu. Innlent 2. október 2023 17:23
Emilíana Torrini syngur og Yoko Ono býður fría siglingu Kveikt verður á Friðarsúlunni í Viðey í 17. sinn mánudaginn, 9. október klukkan 20. Boðað er til friðsælrar athafnar en 9. október er fæðingardagur Johns Lennon. Friðarsúlan varpa ljósi upp í himininn til 8. desember sem er dánardagur hans. Lífið 2. október 2023 16:34
Skoða mikið magn myndefnis vegna árásarinnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fer nú yfir mikið magn myndefnis vegna árásarinnar á ráðstefnugest á vegum Samtakanna '78 á Hverfisgötu í miðborg Reykjavíkur síðastliðið þriðjudagskvöld. Árásarmennirnir eru enn ófundnir. Innlent 2. október 2023 15:00
Húsavíkurflugi haldið áfram í tvo mánuði í viðbót Flugfélagið Ernir mun halda áfram með áætlunarflug á milli Reykjavíkur og Húsavíkur fimm daga í viku næstu tvo mánuði, á meðan framtíðarfyrirkomulag flugsins verður skoðað. Þetta er ljóst eftir viðræður Vegagerðarinnar og flugfélagsins. Innlent 2. október 2023 14:01
Gert að sæta „öruggri gæslu“ eftir vopnað rán Karlmaður sem framdi vopnað rán þann 22. ágúst 2021 þarf að sæta öruggri gæslu á viðeigandi hæli. Þetta er niðurstaða dóms Héraðsdóms Reykjavíkur. Innlent 2. október 2023 11:42
Dagur hyggst bjóða Kjötborgarbræðrum í kaffi Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, hyggst bjóða eigendum Kjötborgar, bræðrunum Gunnari og Kristjáni Jónassonum til sín í kaffi. Hann vill skoða lausnir vegna gjaldskyldu við búð bræðranna að erlendri fyrirmynd. Innlent 2. október 2023 10:02
Viðbragðsaðilar kallaðir út eftir að maður sást ganga í sjóinn Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um hálfeittleytið í nótt vegna manns sem hafði sést ganga í sjóinn á Eiðisgranda. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu var lið strax kallað út ásamt köfurum eins og gert er í tilvikum sem þessum. Innlent 2. október 2023 07:06
„Við borgum það ekki með glöðu geði, heldur með óbragð í munni“ Gjaldskyldutími í bílastæði miðsvæðis í Reykjavík lengdist í dag og borga þarf meira á ákveðnum stöðum. Verslunareigendur segja gjaldtökuna ósanngjarna og skref í ranga átt. Innlent 1. október 2023 19:16
Ósáttur með verðlagningu og barði leigubílstjóra Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um mann sem hafði barið leigubílstjóra í miðbæ Reykjavíkur. Innlent 1. október 2023 16:48