Umfjöllun og viðtöl: Þór-Grindavík 72-78 | Grindavík Íslandsmeistari Grindvíkingar eru Íslandsmeistarar í körfubolta eftir 78-72 útisigur í Þorlákshöfn í kvöld. Grindvíkingar unnu þar með einvígið gegn Þór 3-1 en þeir urðu síðast Íslandsmeistarar 1996. Körfubolti 2. maí 2012 18:22
Benedikt: Menn börðust fyrir hverjum einasta bolta "Það voru ansi margir búnir að afskrifa okkur eftir síðasta leik og kannski eðlilega en í kvöld kom allt annað lið til leiks," sagði Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þór frá Þorlákshöfn, eftir sigurinn í kvöld. Körfubolti 29. apríl 2012 22:43
Þorleifur: Vorum okkur til skammar í kvöld "Við komum bara ekki tilbúnir í leikinn og spiluðum einfaldlega illa,"sagði Þorleifur Ólafsson, leikmaður Grindavíkur, eftir tapið í kvöld. Körfubolti 29. apríl 2012 22:38
Myndir frá ótrúlegum sigri Þórs í Grindavík Þórsara unnu í kvöld óvæntan sigur á Grindavík í Röstinni 98-91. Hart var barist suður með sjó en Þórsarar, með bakið upp við vegg, unnu sanngjarnan sjö stiga sigur. Valgarður Gíslason, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á svæðinu og festi augnablikið á filmu. Körfubolti 29. apríl 2012 22:01
Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Þór 91-98 | Frábær sigur Þórsara Þórsarar unnu glæsilegan og nokkuð óvæntan 98-91 sigur á Grindavík í þriðja leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik í Grindavík í kvöld. Þórsarar minnkuðu muninn í einvíginu í 2-1 og geta jafnað leikinn þegar liðin mætast í Þorlákshöfn á miðvikudagskvöldið. Körfubolti 29. apríl 2012 19:00
Samþykkt að fækka erlendum leikmönnum í körfuboltanum Samþykkt var að gera róttækar breytingar á leikmannamálum í körfuboltanum á formannafundi KKÍ sem haldinn var í dag. Hefur stjórn KKÍ verið falið að útfæra tillögurnar sem samþykktar voru. Þetta kom fram á vef KKÍ í kvöld. Körfubolti 27. apríl 2012 21:46
Örvar ráðinn til Njarðvíkur Örvar Þór Kristjánsson hefur verið ráðinn til síns gamla félags, Njarðvíkur, og mun hann verða aðstoðarþjálfari Einars Árna Jóhannessyni næstu tvö árin hið minnsta. Körfubolti 26. apríl 2012 19:51
Umfjöllun og viðtöl: Þór - Grindavík 64-79 Grindavík er einu skrefi frá Íslandsmeistaratitlinum í körfubolta eftir magnaðan útisigur á Þór í Þorlákshöfn í kvöld. Grindavík er komið með 2-0 forskot í einvíginu. Körfubolti 26. apríl 2012 15:12
Búinn að keyra hátt í 40 þúsund kílómetra í vetur Þórsarinn Guðmundur Jónsson býr í Njarðvík og keyrir nær daglega til Þorlákshafnar í æfingar og leiki. "Auðveldara en ég átti von á,“ segir Guðmundur. Hann keyrir enn og aftur í Höfnina í kvöld þegar Þór tekur á móti Grindavík. Körfubolti 26. apríl 2012 06:00
Heimsfriðurinn baðst afsökunar en má eiga von á þungri refsingu Metta World Peace, áður Ron Artest, sýndi gamalkunna takta þegar hann gaf James Harden svakalegt olnbogaskot í leik LA Lakers og Oklahoma City Thunder í NBA-deildinni í gær. Körfubolti 23. apríl 2012 23:45
Pálmi Rafn skoraði í tapleik Lilleström hefur ekki enn unnið leik á tímabilinu í norsku úrvalsdeildinni og situr í fallsæti að loknum fimm umferðum. Liðið tapaði fyrir Noregsmeisturum Molde á útivelli, 3-2. Fótbolti 23. apríl 2012 19:05
Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Þór Þ. 93-89 | Grindavík 1-0 yfir Grindvíkingar sigruðu nýliða Þórs frá Þorlákshöfn 93-89 í fyrsta leiknum í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla í körfuknattleik í kvöld.Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki verður Íslandsmeistari en næsti leikur fer fram í Þorlákshöfn á fimmtudaginn. Leikurinn í kvöld var stórskemmtilegur og lofar góðu fyrir framhaldið. Grindavík var með 12 stiga forskot í hálfleik, 56-44, en svæðisvörn Þórs virkaði vel í síðari hálfleik og lokamínútur leiksins voru æsispennandi. Körfubolti 23. apríl 2012 18:30
Sokkarnir færa mér gæfu Úrslitarimma Grindavíkur og Þórs frá Þorlákshöfn í Iceland Express-deild karla hefst í kvöld í Grindavík. Grindavík lagði Stjörnuna í undanúrslitum á meðan Þór ýtti KR úr vegi. Körfubolti 23. apríl 2012 07:00
Jón Arnar tekur við ÍR Körfuknattleiksdeild ÍR er búið að ráða nýjan þjálfara en félagið samdi í dag við Jón Arnar Ingvarsson. Jón Arnar skrifaði undir tveggja ára samning við félagið. Körfubolti 21. apríl 2012 14:28
Ólafur: Bilaðist þegar ég sá löppina Ólafur Ólafsson, leikmaður Grindavíkur, meiddist illa á ökkla í leik sinna manna gegn Stjörnunni í gær. Þjálfari Stjörnunnar kom honum fyrstur til hjálpar. Körfubolti 20. apríl 2012 18:45
Fannar: Mér finnst eins og við höfum verið rændir Fannar Helgason var allt annað en sáttur eftir leik Stjörnunnar og Grindavíkur í kvöld. Grindavík vann leikinn eftir spennandi lokamínútur þar sem gekk á ýmsu. Dómarar leiksins slepptu til að mynda að dæma brot á Grindvíkinga rétt áður en Sigurður Þorsteinsson skoraði sigurkörfu leiksins. Körfubolti 19. apríl 2012 22:20
Óvíst um meiðsli Ólafs Þessa stundina er Ólafur Ólafsson, leikmaður Grindavíkur, í meðhöndlun á sjúkrahúsi vegna þeirra ökklameiðsla sem hann varð fyrir í leik liðsins gegn Stjörnunni í kvöld. Körfubolti 19. apríl 2012 22:15
Ólafur borinn af velli með slæm ökklameiðsli Ólafur Ólafsson, leikmaður körfuboltaliðs Grindavíkur, var borinn af velli með slæm ökklameiðsli í leik liðsins gegn Stjörnunni sem nú stendur yfir. Körfubolti 19. apríl 2012 19:40
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 77-79 | Grindavík í úrslitin Grindvíkingar eru komnir í úrslit á Íslandsmóti karla í körfuknattleik eftir ótrúlegan sigur á Stjörnunni í fjórða leik liðanna í Garðabæ í kvöld. Stjörnumenn áttu magnaða endurkomu í leiknum en umdeild karfa Sigurðar Þorsteinssonar undir lokin tryggði gestunum sigur og sæti í úrslitum. Körfubolti 19. apríl 2012 13:44
Umfjöllun og viðtöl: Nýliðar Þórs slógu Íslandsmeistaralið KR út Nýliðar Þórs úr Þorlákshöfn leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik eftir 83-80 sigur gegn Íslandsmeistaraliði KR í kvöld. Þetta var þriðji sigur Þórsara í einvíginu sem endaði 3-1. Þór leikur gegn Stjörnunni eða Grindavík í úrslitum en staðan í þeirri rimmu er 2-1 fyrir Grindavík. Körfubolti 18. apríl 2012 18:45
Þórsarar eru engir venjulegir nýliðar Þórsarar úr Þorlákshöfn halda áfram að skrifa söguna á sínu fyrsta ári í úrslitakeppni karla en þeir eru komnir í 2-1 á móti Íslandsmeisturum KR í undanúrslitaeinvígi Iceland Express-deildar karla. Í kvöld er sæti í lokaúrslitunum í boði þegar KR-ingar þurfa að berjast fyrir lífi sínu í Icelandic Glacial-höllinni. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Körfubolti 18. apríl 2012 06:00
Stjörnubjart í Grindavík Stjörnumenn voru ekki á því að fara í sumarfrí í Röstinni í gær og tryggðu sér fjórða leikinn á móti Grindavík með 17 stiga sigri á deildarmeisturunum, 82-65. Körfubolti 17. apríl 2012 06:00
Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Stjarnan | Grindavík er 2-1 yfir Stjarnan gerði sér lítið fyrir og valtaði yfir Grindavík á útivelli í þriðja leik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni Iceland Express deildar karla í kvöld 82-65. Grindavík leiðir einvígið 2-1 en liðin mætast í fjórða sinn á fimmtudaginn í Garðabæ. Körfubolti 16. apríl 2012 18:30
Umfjöllun og viðtöl: KR - Þór Þorl. 86-100 | Þór leiðir einvígið 2-1 Þór frá Þorlákshöfn er komið í algjöra lykilstöðu í einvíginu við KR í undanúrslitum Iceland-Express deild karla en liðið bar sigur úr býtum, 100-86, í þriðja leik liðana sem fram fór í DHL-höllinni í kvöld. Staðan er því 2-1 fyrir Þór í einvíginu og þeim vantar aðeins einn sigur til að komast í úrslit. Þórsarar voru einfaldlega miklu sterkari aðilinn allan leikinn og áttu sigurinn fyllilega skilið. Körfubolti 15. apríl 2012 18:30
Hittust fyrst rétt fyrir leik Bandaríkjamaðurinn Joseph Henley var búinn að vera á landinu í rúmar tvær klukkustundir þegar hann spilaði í leik Þórs frá Þorlákshöfn og KR á fimmtudagskvöldið. "Ekki óskastaða fyrir neitt félag,“ sagði Benedikt Guðmundsson. Körfubolti 14. apríl 2012 09:00
Grindavíkursigur í Ásgarði - myndir Grindavík er komið með annan fótinn í úrslitaeinvígi Iceland Express-deildar karla eftir dramatískan þriggja stiga sigur, 68-71, á Stjörnunni í Ásgarði í kvöld. Grindavík er því komið í 2-0 í einvíginu og getur tryggt sig inn í úrslitin á heimavelli sínum á mánudag. Körfubolti 13. apríl 2012 22:15
Teitur: Ég treysti ekki Keflvíkingum "Ég er svekktur út í Keflvíkinga fyrst þeir komu með yfirlýsingu og gáfu okkur færi á að gera eitthvað sjálfir í málinu sem við og gerðum," sagði Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, en hann missti Fannar Helgason í tveggja leikja bann í kjölfar þess að Keflavík kærði olnbogaskot Fannars í leik gegn Keflavík á dögunum. Körfubolti 13. apríl 2012 16:21
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 68-71 | Grindavík komið í 2-0 Deildarmeistarar Grindavíkur héldu áfram sigurgöngu sinni í úrslitakeppninni með því að vinna þriggja stiga sigur á Stjörnunni, 71-68, í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express deildar karla. Grindavíkurliðið hefur unnið alla fjóra leiki sína í úrslitakeppnini í ár og vantar nú aðeins einn sigur til þess að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Körfubolti 13. apríl 2012 16:16
Fannar Freyr í tveggja leikja bann Fannar Freyr Helgason, fyrirliði Stjörnunnar, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann af Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ. Hann missir því af leiknum gegn Grindavík í kvöld. Körfubolti 13. apríl 2012 15:34
30. sigur Benedikts í úrslitakeppni en sá fyrsti á KR Benedikt Guðmundsson er að gera frábæra hluti með nýliða Þórs úr Þorlákshöfn sem unnu yfirburðasigur á Íslandsmeisturum KR í gær í öðrum leik liðanna í undanúrslitaeinvígi Iceland Express deildar karla í körfubolta. Staðan í einvíginu eru nú 1-1 og er næsti leikur í DHL-höllinni. Körfubolti 13. apríl 2012 14:15
Uppgjörið: Víkingur - Borac 2-0 | Víkingur færist skrefi nær útsláttarkeppninni með góðum sigri Fótbolti