Bein útsending: Lyklaskipti í borginni Hildur Björnsdóttir var kjörin borgarstjóri Reykjavíkur á fyrsta fundi nýs kjörtímabils í dag. Hún tekur við lyklunum af Heiðu Björgu Hilmisdóttur á skrifstofu borgarstjóra klukkan 13:30. Beina útsendingu frá athöfninni má sjá á Vísi. Innlent 2. júní 2026 13:20
Furðar sig á því að þeir sem vildu minnka báknið fjölgi ráðum Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík furðar sig á því að flokkarnir sem hafi lofað því að minnka báknið í borginni láti það verða sitt fyrsta verk að fjölga nefndum í borgarstjórn. Hann segir Samfylkingu munu styðja góð mál. Innlent 2. júní 2026 11:28
Deiliskipulag við Suðurlandsbraut, sundlaugar og fánar efst á dagskránni Nýr meirihluti í Reykjavík mun leggja fram tólf tillögur á fyrsta borgarstjórnarfundi eftir kosningar, sem hefst í hádeginu í dag. Þá verður lagt til að stofnuð verði þrjú ný ráð í borginni. Innlent 2. júní 2026 06:33
Afsögn enn ódagsett Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, oddviti flokksins í bæjarstjórn Reykjanesbæjar og verðandi bæjarstjóri, segir ekki komna fasta dagsetningu á hvenær hann muni segja sig frá þingmennsku. Innlent 31. maí 2026 16:07
Ætli sér ekki að banna hinsegin fánann Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík og tilvonandi forseti borgarstjórnar, segir nýjan meirihluta ekki ætla að banna hinsegin fánann. Honum, og erlendum fánum, verði flaggað þegar tilefni sé til. Hún segir að utanríkismálum eigi að sinna í utanríkisráðuneytinu. Borgarfulltrúar eigi að vera með fókus á Reykjavík. Innlent 31. maí 2026 13:19
Engir Framsóknarfingur í kökukrúsinni í Kópavogi Framsóknarmaðurinn Stefán Atli Rúnarsson segist alls ekki vera með puttana í kökukrús veisluþjónustunnar Girnó í Kópavogi og hafi því ekkert haft með það að gera að bæjarstjóranum Ásdísi Kristjánsdóttur voru sendar kökur sem hún smakkaði og mærði á myndbandi sem hefur vakið athygli á TikTok og Instagram. Innlent 30. maí 2026 16:04
Sigurjón frá Hornafirði í Skaftárhrepp Sigurjón Andrésson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Skaftárhrepps af meirihluta D-lista og óháðra í Skaftárhreppi. Sigurjón lauk störfum sem sveitarstjóri í næsta sveitarfélagi, Hornafirði, fyrir aðeins nokkrum dögum. Í tilkynningu kemur fram að ráðningin verði formlega staðfest á fyrsta fundi nýrrar sveitarstjórnar þann 9. júní. Innlent 30. maí 2026 11:56
Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Tæpum tveimum vikum eftir kosningar eru flestöll sveitarfélög landsins búin að mynda meirihluta. Fjölmargir nýir bæjar- og sveitarstjórar hafa verið kynntir til sögunnar, sem og einn nýr borgarstjóri. Innlent 29. maí 2026 21:00
Ari Edwald enn undir feldi Ari Edwald oddviti Miðflokksins í borginni hefur ekki enn gert upp hug sinn varðandi tillögu Hildar Björnsdóttur, verðandi borgarstjóra og oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, um að hann taki að sér stjórnarformennsku í Orkuveitunni. Innlent 29. maí 2026 15:56
Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Sjálfstæðisflokkur og Byggðalisti hafa undirritað meirihlutasamkomulag í Skagafirði. Viðræður flokkanna á milli hafa staðið yfir síðan skömmu eftir kosningar. Rúv greinir frá. Innlent 29. maí 2026 14:06
„Búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ“ Oddvitar nýs bæjarstjórnarmeirihluta í Mosfellsbæ boða hóflegar álögur á íbúa og skilvirka þjónustu og lofa að gera gott fyrir Mosfellinga. Þeir segja viðræður hafa gengið vel. Innlent 28. maí 2026 20:12
Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Hilmar Gunnarsson úr Sjálfstæðisflokknum verður bæjarstjóri Mosfellsbæjar í meirihlutasamstarfi sem flokkurinn handsalaði í kvöld við Viðreisn. Innlent 28. maí 2026 18:22
Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Hjalti Þór Vignisson oddviti Framsóknar í Hornafirði verður bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Hornafirði. Fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa undirritað málefnasamning um samstarf á komandi kjörtímabili 2026–2030. Innlent 28. maí 2026 16:38
Enginn meirihluti í Grindavík Enginn meirihluti verður myndaður í bæjarstjórn Grindavíkur. Allir bæjarfulltrúar vilja vinna saman að áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins í bænum. Innlent 28. maí 2026 15:59
Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Nýr meirihluti hefur verið myndaður í Hveragerði þar sem D-listinn og S-listinn hafa náð samkomulagi um meirihlutasamstarf á komandi kjörtímabili. Ingimar Guðmundsson, oddviti og bæjarstjóraefni D-listans, verður næsti bæjarstjóri Hveragerðisbæjar. Þá mun Birgitta Ragnarsdóttir, oddviti S-listans, verða formaður bæjarráðs og María Rún Þorsteinsdóttir, 2. sæti D-listans, verða forseti bæjarstjórnar. Innlent 28. maí 2026 15:48
Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum „Ég er atvinnulaus núna. Ég var að vinna hjá Eflu en missti starfið þar,“ segir Linda Rós Sigurðardóttir tækniteiknari í Vestmannaeyjum. Innlent 28. maí 2026 14:45
Gylfi verður bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar Framsókn og óháðir hafa myndað meirihluta í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar með Viðreisn. Framsókn og óháðir unnu stórsigur í kosningunum og fengu fjóra menn kjörna og Viðreisn einn. Innlent 28. maí 2026 11:28
Hvað hafa þau að fela? „Helvíti er annað fólk,“ er haft eftir persónu í leikriti franska heimspekingsins Jean-Paul Sartre. Lífið 28. maí 2026 07:02
„Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Hildur Björnsdóttir, tilvonandi borgarstjóri Reykjavíkur, segir að nýr meirihluti sé þegar búinn að heyra í Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra í von um að hefja samtal um endurskoðun Samgöngusáttmálans og fjármögnun hans. Innlent 27. maí 2026 21:42
Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá „Okkur langar að koma Reykjavík í fremstu röð í skólamálum“, segir verðandi forseti borgarstjórnar og oddviti Viðreisnar. Oddviti Framsóknar ætlar við stjórn borgarinnar að leggja áherslu vilja almennings, Ari Edwald íhugar tilboð sem Líf Magneudóttir vildi fá. Innlent 27. maí 2026 19:01
Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Það dró til tíðinda í morgun þegar fréttamenn voru kallaðir út í Viðey ellefu dögum eftir borgarstjórnarkosningar. Blaðamannafundurinn var boðaður með skömmum fyrirvara og þurfti fjölmiðlafólk að hafa snör handtök líkt og oft áður til að geta miðlað viðburðinum til landsmanna. Þétt var setið í Viðeyjarferjunni á ellefta tímanum og fylgdu svo fleiri borgarfulltrúar í kjölfarið. Innlent 27. maí 2026 18:52
Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir Sjálfstæðisflokkinn hafa fórnað sögulegu tækifæri til að breyta stefnu Reykjavíkurborgar í nafni starfsfriðar og stöðugleika. Innlent 27. maí 2026 15:34
Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi Fólk bregst vægast sagt misvel við nýmynduðum borgarstjórnarmeirihluta á Facebook og ljóst að hægra megin við miðju þykja berin gallsúr en eins og Baldur Hermannsson bendir á þá er lífið nú einu sinni þannig að „oft kemur grátur eftir skellihlátur.“ Innlent 27. maí 2026 15:03
„Þetta vita Einar og Björg“ Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segist óttast að fyrirætlanir nýs meirihluta um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins muni fela í sér miklar tafir á framkvæmdum og viðhalda umferðarhnútum í borginni til næstu ára. Hann segist ekki sjá handbragð Viðreisnar í meirihlutasáttmálanum og furðar sig á því að Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar vilji nú endurskoða samgöngusáttmála sem hann hafi skrifað undir fyrir átján mánuðum síðan. Innlent 27. maí 2026 14:54
Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Oddvitar nýs meirihluta í Reykjavík hafa þegar átt samtal við Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Þeir segja ætlunina ekki að tefja framkvæmdir heldur þurfi að endurskoða tillögur um veggjöld og flýta Miklubrautargöngum. Innlent 27. maí 2026 13:59
Mun dæma meirihlutann af verkunum „Ég fagna góðu gengi Sjálfstæðisflokksins í borginni. Kjósendur voru að kjósa um breytingar og Sjálfstæðismenn eru komnir til valda í borginni og munu leiða þær breytingar,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Vísi. Þar tjáir hún sig um nýjan meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks í borginni. Innlent 27. maí 2026 12:59
Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi Oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í Múlaþingi skrifuðu í dag undir málefnasamning og staðfestu myndun nýs meirihluta þar. Samningurinn er sagður byggja á sameiginlegri sýn um öflugt samfélaga, ábyrga fjármálastjórn, eflingu atvinnulífs og áframhaldandi uppbyggingar. Innlent 27. maí 2026 12:53
Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Hildur Björnsdóttir verðandi borgarstjóri segist hafa gert atlögu að því að mynda fjögurra flokka meirihluta með Miðflokki. Það hafi ekki gengið eftir og segist hún telja meirihluta Viðreisnar og Framsóknar líklegri til að skapa sátt heldur en meirihluta með Miðflokki. Hún segir boð til Ara Edwalds um að taka við stjórnarformennsku í Orkuveitu Reykjavíkur enga friðþægingu. Innlent 27. maí 2026 12:14
„Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, telur nýjan borgarstjórnarmeirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar ekki vera í samræmi við úrslit nýafstaðinna kosninga. Það séu í raun svik við úrslit kosninganna að Sjálfstæðisflokkur hafi ekki alvarlega íhugað samstarf með Miðflokki. Innlent 27. maí 2026 12:03
Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir verður nýr borgarstjóri Reykjavíkurborgar. Einar Þorsteinsson verður formaður borgarráðs og Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar en þau munu skiptast á hlutverkum þann 1. júní 2027. Innlent 27. maí 2026 11:30