Tuttugu ár frá morðinu á Olof Palme Í kvöld verða nákvæmlega tuttugu ár síðan Olav Palme, þáverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, var myrtur í miðborg Stokkhólms. Rannsókn á morðinu er komin í fullan gang á ný og margir verða yfirheyrðir vegna þess á næstunni. Erlent 28. febrúar 2006 13:15
Christer Petterson látinn Christer Petterson, maðurinn sem grunaður var um langt árabil um að hafa myrt Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, lést í dag á Karólínska háskólasjúkrahúsinu í Stokkhólmi. Petterson, sem var 57 ára, var árið 1989 fundinn sekur um að hafa myrt Palme þremur árum áður. Erlent 29. september 2004 00:01