Vest­manna­eyjar

Vest­manna­eyjar

Mannfjöldi: 4.470 (2025). Flatarmál: 16 ferkílómetrar.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hætta rann­sókn á and­láti á Hraunbúðum

Lögreglan á Suðurlandi hefur hætt rannsókn á andláti konu á tíræðisaldri á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum en rannsókn lögreglu hófst í janúar á þessu ári. Krufningarskýrsla hafi leitt í ljós að ekki sé grundvöllur fyrir því að halda rannsókn áfram. 

Innlent
Fréttamynd

Við­gerð á mótor Herjólfs á á­ætlun

Viðgerðir á mótor Herjólfs IV Vestmannaeyjaferju eru á áætlun og gert ráð fyrir að mótorinn verði sendur til Íslands með skipi frá Hollandi þann 13. júlí. Mótorinn verði settur í ferjuna þegar hann berst til landsins og ferjan Baldur í kjölfarið snúa aftur til siglinga á Breiðafirði þegar uppsetningu mótorsins er lokið. Þetta segir í tilkynningu Vegagerðarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Funda um niður­stöðu héraðs­dóms

Fulltrúar bæjarstjórnar Vestmannaeyjabæjar funda í vikunni með lögmönnum sínum eftir að Héraðsdómur Suðurlands sýknaði Vinnslustöðina, Hugin og Vís tryggingar af kröfum bæjarins. Bærinn krafðist tæpra tveggja milljarða vegna tjóns sem varð á vatnsleiðslu.

Innlent
Fréttamynd

Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar

Héraðsdómur Suðurlands hefur sýknað Vinnslustöðina, Huginn og VÍS tryggingar af kröfum Vestmannaeyjabæjar vegna tjóns sem varð vatnsleiðslu þann 17. nóvember 2023. Málskostnaður var felldur niður.

Innlent
Fréttamynd

Sumarmótin: Æfir út í dómarann þrátt fyrir sigur

Sumarmótin halda áfram að rúlla á Sýn Sport og Orkumótið í Vestmannaeyjum er næst á dagskrá. Drengir á eldra ári í 6. Flokki karla keppa á mótinu sem hefur verið haldið árlega frá árinu 1984. Mótið fór fram í blíðskaparveðri í Vestmannaeyjum helgina 24.-26. júní.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“

Framkvæmdastjóri Herjólfs segir ekki hafa áhyggjur af samgöngum fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þó enn verði tafir á viðgerð Herjólfs. Þá gangi vel að koma fólki frá Eyjum eftir Orkumótið sem fram fór þar um helgina þrátt fyrir að fella hafi þurft niður ferðir með Baldri.

Innlent
Fréttamynd

Kölluð út vegna afl­vana báts við Hellis­ey

Klukkan tíu í morgun var áhöfn björgunarskipsins Þórs í Vestmannaeyjum kölluð út vegna aflvana fiskibáts. Í tilkynningu frá Landsbjörg kemur fram að einn skipverji hafi verið um borð og taldi hann enga yfirvofandi hættu á ferðum fyrir utan aflleysið.

Innlent
Fréttamynd

Ráð­herra vill varamótor Herjólfs til­tækan hér­lendis

Áfram eru tafir á viðgerðum á Herjólfi vegna seinkunar á afhendingu varahluta til verkstæðis í Hollandi. Innviðaráðherra, Eyjólfur Ármannsson, leitar nú leiða til að tryggja að rekstraraðilar Herjólfs eigi til aukalegan varamótor fyrir Herjólf hér á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Sumarmótin: TM mótið í Vest­manna­eyjum

Veðrið lék við gesti TM mótsins í Vestmannaeyjum um síðustu helgi. Mótið í ár var með þeim stærri sem haldið hefur verið. Þáttur um mótið verður sýndur á Sýn Sport Ísland í gærkvöldi og hægt er að sjá hann í heild sinni hér neðar í fréttinni.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Hefja borun rannsóknar­holu á Land­eyja­sandi í vikunni

Allur undirbúningur er nú á lokastigi og er allt klárt til að hefja fóðrun og kjarnaborun á rannsóknarholunni EG-02 á Landeyjasandi. Verkefnið er einn af lykilþáttunum í viðamiklum jarðfræðirannsóknum sem munu skera úr um fýsileika þess að gera jarðgöng á milli lands og Vestmannaeyja.

Innlent
Fréttamynd

Við­gerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“

Enn eina ferðina hefur því að Herjólfur verði kominn í fullan rekstur á ný seinkað. Í þetta skiptið veldur framleiðsla á koparvír sem verður fluttur frá Tyrklandi til Hollands, þangað sem mótorinn er, því að viðgerð tefst. Áætlað var að viðgerðinni lyki í júní en nú er útlit fyrir að það verði um miðjan júlímánuð og er útlit fyrir að hrakföllum Herjólfs fari að linna.

Innlent
Fréttamynd

Kom leiðin­lega á ó­vart að vélin væri sérsmíði

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hyggst stofna starfshóp til að móta áætlun til lengri tíma fyrir ferjusiglingar á Íslandi. Honum verði einnig falið að útbúa viðbragðsáætlun við skerðingu á siglingum til og frá Vestmannaeyjum sem muni liggja fyrir í vetur.

Innlent
Fréttamynd

Baldur og Herjólfur sigla til Eyja

Ferjurnar Baldur og Herjólfur munu báðar sigla til og frá og með næsta mánudegi 8. júní. Ferjan Særún mun sinna siglingum til Flateyjar í fjarveru Baldurs.

Innlent
Fréttamynd

Kúluhúsið falt fyrir níu­tíu milljónir

Kúluhúsið fræga að Vesturvegi 18 í Vestmannaeyjum hefur verið sett á sölu. Húsnæðið er 238,9 fermetrar að stærð og er ásett verð 89,9 milljónir króna. Lengi vel var matvöruverslunin Vöruval í húsinu en árið 2021 var því breytt í gisti- og veitingahús.

Lífið