Bein útsending: Vísindi á mannamáli Á Stafræna Háskóladeginum situr vísinda- og fræðafólk Háskóla Íslands fyrir svörum í beinu streymi úr Hátíðasal skólans. 27.2.2021 12:00
Dæmdur fyrir nauðgun undir fölsku flaggi Gabríel Varada Snæbjörnsson hefur verið dæmdur í fjögurrra ára fangelsi fyrir nauðgun og brot gegn blygðungarsemi ungrar konu. Gabríel vilti á sér heimildir um tuttugu mánaða skeið, kúgaði konuna til kynmaka með öðrum mönnum og til að senda sér kynferðislegt myndefni. Þá nauðgaði hann henni á hótelherbergi á höfuðborgarsvæðinu. 26.2.2021 16:02
Dómar yfir Jaroslövu og fimm samverkamönnum mildaðir Jaroslava Davíðsson var í Landsrétti í dag dæmd í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot með aðild að framleiðslu amfetamíns í sumarbústað í Borgarnesi. Dómur hennar og fimm karlmanna í málinu voru mildaðir frá því sem var í héraðsdómi. Landsréttur kvað upp dóm sinn klukkan 14 í dag. 26.2.2021 14:14
Fimm stórir skjálftar á 25 mínútum við Fagradalsfjall Enn nötrar jörðin á suðvesturhorninu þar sem stórir skjálftar finnast. Stór skjálfti að stærð 4,4 reið yfir upp úr klukkan tólf og virðist ekkert lát á skjálftavirkninni sem verið hefur á svæðinu undanfarna tvo sólarhringa. 26.2.2021 12:08
„Ég varð að halda andliti barnanna vegna“ „Tíminn vinnur almennt með okkur, en þetta var svakalega erfitt sérstaklega fyrsta árið eftir að þetta gerðist. Ég varð að halda andliti barnanna vegna. Þau hafa misst tvær mikilvægar manneskjur úr lífi sínu, og ég stóð eftir ein.“ 26.2.2021 11:04
Áfram í gæsluvarðhaldi grunaður um aðild að morðinu Karlmaður á fimmtugsaldri var í morgun úrskurðaður í áframhaldandi vikulangt gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á morðinu í Rauðagerði þann 13. febrúar. Í tilkynningu frá lögreglu segir að úrskurðurinn sé á grundvelli rannsóknarhagsmuna. 26.2.2021 10:13
Borgin greiðir Alex Má bætur vegna stuðningsfulltrúans Alex Már Jóhannsson, 25 ára karlmaður sem varð fyrir grófu kynferðisofbeldi af hálfu stuðningsfulltrúa sem starfaði hjá Barnavernd Reykjavíkur, hefur komist að samkomulagi við Reykjavíkurborg um skaðabætur. 25.2.2021 16:50
Prentmet Oddi kaupir Ásprent Stíl Prentmet Oddi hefur keypt rekstur Ásprents Stíls á Akureyri og hyggst endurvekja rekstur þess í samstarfi við KEA. Prentmet Oddi hyggst efla límmiðaprentun sem og stafræna prentun Ásprents Stíls og verður tækjakostur starfseminnar efldur í því samhengi að því er segir í fréttatilkynningu. 25.2.2021 16:20
Tryggvi hættir sem umboðsmaður Alþingis Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, hefur beðist lausnar frá embættinu sem hann hefur gegnt frá ársbyrjun 2000. Frá þessu greindi Steingrímur J. Sigúfsson forseti Alþingis, við upphaf þingfundar klukkan 13. Forsætisnefnd Alþingis hefur fallist á beiðni Tryggva. 25.2.2021 13:21
Þriggja ára dómur fyrir nauðgun á kvennasalerni í Reykjavík Reebar Abdi Mohammed, 34 ára karlmaður frá Kúrdistan sem látið hefur að sér kveða í starfi Pírata, hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir nauðgun á kvennasalernisbás skemmtistaðar í Reykjavík í febrúar 2019. 25.2.2021 10:46