Kvensjúkdómalæknir segir Kristján ætla sér að rústa Krabbameinsfélaginu Benedikt Óskars Sveinsson, kvensjúkdómalæknir sem starfaði á tuttugu ára tímabili fyrir Krabbameinsfélag Íslands segir Kristján Oddsson ætla sér að rústa Krabbameinsfélaginu í hefndarskyni eftir að hafa verið sagt upp þar fyrir nokkrum árum. 28.1.2021 22:01
Drógu vélarvana flutningaskip til Patreksfjarðar Björgunarskipið Vörður II á Patreksfirði var kallaður út laus eftir miðnætti í nótt vegna vélarvana flutningaskips utan við Tálkna sem skilur að Patreksfjörð og Tálknafjörð. Skipið er tæplega 90 metra langt. 28.1.2021 12:06
Lítur lífið öðrum augum eftir brunann í Kaldaseli Karlmaður sem missti húsið sitt í eldsvoða í Breiðholti á mánudagsmorgun segir atburðinn hafa markað mikil og djúpstæð áhrif á sig. Litlu hafi munað að hann yrði sjálfur bráð eldsins. Altjón varð þegar einbýlishús sem maðurinn hafði nýverið fest kaup á brann til kaldra kola. 28.1.2021 10:47
Svona var 157. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til reglulegs upplýsingafundar klukkan 11 í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra. 28.1.2021 10:16
„Ég vissi varla hvort ég átti að hlæja eða gráta“ Efling-stéttarfélag hefur sent bréf til Ármanns Kr. Ólafssonar, bæjarstjóra í Kópavogi og Þorsteins Einarssonar, starfsmannastjóra þar sem skorað er á Kópavogsbæ að standa við skuldbindingar sínar í gildandi kjarasamningi um styttingu vinnuvikunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu. 28.1.2021 09:24
„Þetta verður bara heiðarlegur bisness, ég nenni engu kjaftæði“ Kristján Markús Sívarsson segir alla eiga skilið annað tækifæri. Hann segir veðlánastarfsemi sem hann býður upp á ásamt kærustu sinni vera hugmynd sem hann hafi gengið með í maganum í nokkurn tíma. Hann hafi hins vegar ekki verið í standi til að framkvæma það fyrr en núna. 28.1.2021 09:00
Vikið frá dómgæslu eftir „óeðlileg“ skilaboð til leikmanns í kvennaflokki Formaður Körfuknattleikssambands Íslands segir að dómari muni ekki dæma aftur á vegum sambandsins eftir að hafa orðið uppvís að skilaboðum sem voru „óeðlileg“ og fóru „langt yfir strikið.“ 27.1.2021 14:26
Boeing 737 Max fá græna ljósið í Evrópu Flugöryggisstofnun Evrópu hefur gefið græna ljósið á að Boeing 737 Max flugvélarnar geti flogið um loftin blá í Evrópu. Þar með er 22 mánaða banni á flugvélunum lokið í kjölfar tveggja flugslysa sem kostuðu 346 manns lífið. 27.1.2021 12:30
Dansleikurinn reyndist íþróttaviðburður með tilboði á næsta bar Hátt í 25 geta búist við kæru fyrir brot á sóttvarnalögum eftir að lögregla leysti upp danssamkvæmi í miðborg Reykjavíkur í gær þar sem áfengi var haft við hönd. Áfengið hafði verið borið út af nálægum veitingastað, sem er brot á áfengislögum. 27.1.2021 12:01
3,7 milljarðar í tekjufallsstyrki síðustu tvær vikur Undanfarnar tvær vikur hafa um 3,7 milljarðar króna verið greiddir í tekjufallsstyrki til rekstraraðila sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. 26.1.2021 16:37