Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Tímabilið hefst stórkostlega hjá nýliðum Hull, með 2-0 sigri gegn Manchester United í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Semi Ajayi og Nobel Mendy skoruðu mörkin. 22.8.2026 11:02
Russell vann sprettinn í þriðja sinn George Russell varð fyrstur í sprettkeppni Formúlu 1 kappakstursins í Hollandi. Hann var fremstur alla 24 hringina og kom í mark 1,3 sekúndu á undan Charles Leclerc. 22.8.2026 10:46
Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Arsenal hóf titilvörn sína í ensku úrvalsdeildinni með sannfærandi hætti þegar liðið vann nýliða Coventry City 3-0 í gærkvöld. Mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir neðan. 22.8.2026 10:21
Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Bandaríkjamaðurinn Liam Tilton var fyrstur í mark í hálfu maraþoni karla í Reykjavíkurmaraþoni en hann hafði aldrei hlaupið jafn langt áður. 22.8.2026 09:58
Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Lionel Messi hefur verið sektaður fyrir að slá Quinn Sullivan í leik Inter Miami og Philadelphia Union í MLS deildinni á miðvikudag. 22.8.2026 09:37
Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Yfir fimmtán þúsund keppendur skráðu sig í hlaup Reykjavíkurmaraþonsins og hafa safnast tæpar þrjú hundruð milljónir til hinna ýmsu góðgerðarfélaga. Hér var fylgst með beinni útsendingu frá maraþoninu. 22.8.2026 08:29
Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Þróttur sótti þrjú stig til Vestmannaeyja með 1-2 sigri gegn ÍBV í 16. umferð Bestu deildar kvenna. Sterk byrjun Þróttara skilaði sigrinum en Eyjakonur voru nálægt því að jafna leikinn undir lokin. 21.8.2026 16:30
Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Víkingur tapaði 1-3 gegn Borac Banja Luka í fyrri leik Sambandsdeildarumspilsins. Mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir neðan. 21.8.2026 11:35
Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ Landslið Íslands í körfubolta er mætt til Portúgal þar sem stelpurnar okkar munu spila æfingaleik við heimakonur síðar í dag og aftur á morgun. Sextán ára nýliði er í hópnum en landsliðsþjálfarinn segir þetta verkefni vera gott tækifæri fyrir unga leikmenn liðsins. 21.8.2026 09:50
„Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ „Ég er aðallega svekktur með hvernig við spiluðum sem lið í fyrri hálfleik,“ sagði Sölvi Geir Ottesen eftir 1-3 tap Víkings gegn Borac Banja Luka í umspili Sambandsdeildar Evrópu. 20.8.2026 20:45