Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 21. ágúst 2026 09:50 Pekka Salminen er landsliðsþjálfari kvennaliðs Íslands í körfubolta. vísir Landslið Íslands í körfubolta er mætt til Portúgal þar sem stelpurnar okkar munu spila æfingaleik við heimakonur síðar í dag og aftur á morgun. Sextán ára nýliði er í hópnum en landsliðsþjálfarinn segir þetta verkefni vera gott tækifæri fyrir unga leikmenn liðsins.
Æfingaleikirnir við Portúgal marka formlegt upphaf á nýju körfuboltatímabili hjá kvennalandsliðinu, liði sem er að ganga í gegnum ákveðin kynslóðaskipti. Margir ungir leikmenn eru í leikmannahópnum og fá tækifæri til að heilla landsliðsþjálfarann. „Auðvitað eru margar hérna sem hafa verið að spila lengi fyrir landsliðið og þekkja kerfið. Svo eru hinar sem hafa bara verið hér í nokkra daga, það tekur þær auðvitað svolítinn tíma en þess vegna er svo mikilvægt að við fáum þessa aukaleiki. Ég er mjög ánægður með það. Vanalega er það líka þannig að lið nota leikmann af því þær eru ungar, við erum að velja þessa leikmenn af því þær eru svo góðar. Þannig að þetta er auðvelt fyrir mig og það er ótrúlegt hversu hratt þær komast inn í hlutina og hafa góðan skilning á leiknum.“ Berglind Katla Hlynsdóttir er ein þeirra sem gæti spilað sína fyrstu A-landsleiki en hún hefur verið að stíga stór skref á sínum ferli í allt sumar. Berglind spilaði einnig á EM undir 20 ára í júlí og var síðan valin besti leikmaður Evrópumóts undir 16 ára leikmanna fyrr í þessum mánuði. „Ég var bara spennt sko, ég veit ekki,“ sagði Berglind aðspurð um viðbrögðin við landsliðskallinu. Hún átti ekki von á því að vera valin í lokahópinn en hefur verið að æfa með liðinu. Flestir þekkja föður Berglindar, Hlyn Bæringsson, fyrrum landsliðsmann í körfubolta til fjölda ára. Hlynur er rúmlega tveggja metra maður sem spilaði sem miðherji. Berglind fær ágætis hæð frá föður sínum en er öðruvísi leikmaður. „Ég er svona hávaxinn point guard (leikstjórnandi) en ég get spilað aðrar stöður.“ Berglind Katla klár í fyrsta A-landsliðsverkefnið.vísir / BJARNI Annar nýliði er í A-landsliðshópnum, Emma Theodorsson, sem hefur alla tíð búið í Bandaríkjunum en áður spilað fyrir yngri landslið Íslands og samdi við nýlega við lið Njarðvíkur. „Ég þekki margar þeirra úr yngri landsliðunum og við Þóranna Kika vorum reyndar herbergisfélagar í háskólanum í Chicago, svo ég þekki margar stelpnanna nú þegar… [Íslenska tungumálið] kemur hægt og bítandi hjá mér. Liðsfélagarnir hafa verið mjög hjálplegir með það,“ sagði Emma, á ensku. Fjallað var um kvennalandsliðið í körfubolta í Sportpakka Sýnar í gærkvöld. Innslagið má sjá hér fyrir ofan. Fyrri leikur Íslands og Portúgal hefst klukkan 16:00 í dag. Seinni æfingaleikurinn hefst klukkan 09:45 í fyrramálið.
Landslið kvenna í körfubolta Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Sjá meira