Sport

Bein út­sending frá Reykja­víkur­mara­þoninu

Áróra L Davíðsdóttir og Ágúst Orri Arnarson skrifa
Maraþonhlauparar spretta úr spori við nýtt rásmark í Vatnmýrinni.
Maraþonhlauparar spretta úr spori við nýtt rásmark í Vatnmýrinni. Viktor Freyr

Yfir fimmtán þúsund keppendur eru skráðir í hlaup Reykjavíkurmaraþonsins á morgun og hafa safnast 268 milljónir til hinna ýmsu góðgerðarfélaga. Hér fyrir neðan má fylgjast með beinni útsendingu frá maraþoninu.

Fjórar vegalengdir eru í boði, heilt maraþon, hálft maraþon, 10 km og skemmtiskokk. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri ræsti í morgun klukkan 8:15 keppnisflokk í hálfu og heilu maraþoni. Keppnisflokkur í tíu kílómetra hlaupinu fer af stað klukkan hálf tíu og klukkan tíu verður almenni flokkurinn ræstur í sömu vegalengd. Upphitun fyrir skemmtiskokkið hefst klukkan hálf  tólf og verðu rræst klukkan tólf. Tímataka stoppar kl 15:30.

Úrslit hlaupsins

Bandaríkjamaðurinn Liam Tilton var fyrstur í mark í hálfu maraþoni karla á tímanum 1:07:50.

Daníel Freyr Magnússon var fyrstur Íslendinga í mark í hálfu maraþoni karla, þremur mínútum á eftir Liam, á tímanum 1:10:50.

Hörð barátta var um þriðja sætið en Atli Jasonarson kom í mark nokkrum skrefum á undan Bandaríkjamanninum Tommy Struzzieri.

Ólympíufari Íslands í skíðagöngu, Dagur Benediktsson, var svo rétt á eftir þeim í fimmta sætinu en hann var sigurvegari hlaupsins á síðasta ári.

Elín Edda Sigurðardóttir var fyrst í mark í hálfu maraþoni kvenna á tímanum 01:23:38 og Íslendingar áttu verðlaunapallinn því Hildur Aðalsteinsdóttir varð önnur, rúmri mínútu á eftir henni á tímanum 01:24:50. Rannveig Oddsdóttir verð þriðja á tímanum 01:25:31.

Baldvin Þór Magnússon var fyrstur í mark í tíu kílómetra hlaupi karla, eins og búist var við. Baldvin er einn sterkasti hlaupari landsins og eigandi Íslandsmetsins sem og brautarmetsins í Reykjavíkurmaraþoninu. Baldvin var nokkuð langt frá sínu besta (27:40) í erfiðum aðstæðum dagsins en kom í mark á fínum tíma, 32:13.

Ný hlaupaleið 

Ný hlaupaleið var kynnt í júní og verður rásmark hlaupsins nú við Háskóla Íslands. Hlaupið hefst fyrir utan Háskóla Íslands, á Sæmundargötu. Allar vegalengdir hefjast á sama stað og enda svo á Geirsgötu.

Hér má sjá hlaupaleiðar, drykkjarstöðvar og hvatningarstöðvar.Reykjavíkurmaraþon

Víða eru götur lokaðar vegna maraþonsins en nánari götulokanir má sjá hér

Sjá einnig: Víð­tækar götulokanir á nýrri hlaupa­leið Reykjavíkurmaraþons






Fleiri fréttir

Sjá meira


×