Hörður Ellert dæmdur fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur sinni Hörður Ellert Ólafsson, frumkvöðull og ljósmyndari, hefur verið dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn dóttur þáverandi sambýliskonu sinnar. Þegar stúlkan var níu til tólf ára braut hann margítrekað gegn henni, meðal annars með því að láta hana veita honum munnmök. Hann fékk síma stúlkunnar afhentan hjá lögreglu á meðan málið var til rannsóknar og fékk nálgunarbann á föður hennar um tíma. 28.6.2024 08:43
Fastagestur á níræðisaldri káfaði á konu í sundi Karlmaður fæddur árið 1940 hefur verið sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni með því að káfa á konu í sundlaug á Vestfjörðum. Ákvörðun refsingar mannsins, sem er fastagestur í lauginni, var frestað og hún fellur niður haldi hann skilorð í tvö ár. 27.6.2024 13:30
Semja um 27 milljarða króna Tækniskóla í Hafnarfirði Nýr tækniskóli rís við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði. Stjórnvöld, Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn undirrituðu skuldbindandi samkomulag þess efnis í dag. Næstu skref eru undirbúningur hönnunar og framkvæmdar með áætluð verklok haustið 2029. Heildarkostnaður er áætlaður 27 milljarðar króna. 27.6.2024 10:58
Rafmagnsbruni truflar útsendingar Stöðvar 2 Rafmagnsbruni kom upp í tækjarými Sýnar í nótt. Útsending liggur því niðri á Stöð 2 Sport 3, 4, og 5. Bilunin truflar ekki dagskrá eins og er og unnið er að viðgerð. 27.6.2024 08:01
Samhljóða ákærur leiddu til þungra dóma Ákæra á hendur Pétri Jökli Jónassyni, sem ákærður er fyrir þátttöku í stóra kókaínmálinu svokallaða, er samhljóða ákærum á hendur þeim fjórum sem þegar hafa hlotið þunga refsidóma í málinu. Landsréttur taldi því engin efni til að vísa ákærunni frá. 26.6.2024 14:31
„Það er mikilvægt að fólk hlýði þessum boðum“ Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir enn ekki vitað hvað orsakaði eldinn sem kviknaði á Höfðatorgi um klukkan 11:30. Slökkvistarf hafi gengið vel og þar hafi hjálpað til hversu vel húsið er hólfað niður og hannað. 26.6.2024 12:34
Landsréttur snýr frávísuninni við Landsréttur ógilti í gær frávísunarúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Pétur Jökuls Jónassonar, sem grunaður er um aðild að stóra kókaínmálinu svokallaða. Héraðsdómur taldi ákæru ekki innihalda nægilega nákvæma verknaðarlýsingu Péturs Jökuls. 26.6.2024 11:04
Staðfesta skipun Ruttes Framkvæmdastjórn Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefur staðfest skipun Marks Rutte, forsætisráðherra Hollands, í stöðu framkvæmdastjóra NATO. 26.6.2024 10:31
Miðflokkurinn nartar í hæla Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðisflokkurinn missir tæplega þrjú prósentustig frá síðustu mælingu Maskínu en Sósíalistaflokkurinn bætir við sig tveimur. Marktækur munur er á fylgi Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins sextánda mánuðinn í röð. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna er nú 30 prósent og hefur aldrei verið lægra. 26.6.2024 09:21
Aðalmeðferð í Bátavogsmálinu hafin Aðalmeðferð í máli Dagbjartar Rúnarsdóttur, sem er ákærð fyrir að hafa orðið manni að bana í Bátavogi í september síðasta árs, hófst í dag. Gert er ráð fyrir því að aðalmeðferðin taki þrjá daga og meðal gagna í málinu eru myndskeið þar sem sjá má og heyra Dagbjörtu valda brotaþola ítrekuðum líkamsmeiðingum. 26.6.2024 09:15