Halla Hrund býður sig fram Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri ákvað um páskana að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands. 7.4.2024 10:01
Vaktin: Katrín situr áfram í bili Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fundaði með forseta Íslands og baðst lausnar. Hún mun sitja áfram í starfsstjórn. 7.4.2024 09:37
Efnahagsmálin, Katrín mætir og staðan á Gasa Ákvörðun forsætisráðherra um að gefa kost á sér í komandi forsetakosningum verður rædd á Sprengisandi í dag. Sérfræðingar kryfja pólitískar afleiðingar og Katrín stendur fyrir máli sínu. 7.4.2024 09:31
Áfram bálhvasst víða en dregur úr í kvöld Djúp lægð suðaustur af landinu gerir það að verkum að hvasst verður víða í dag. Hvassast suðaustantil, þar sem gul veðurviðvörun gildir líkt og á öllu austanverðu landinu. 7.4.2024 08:07
Etna blæs ótrúlegum reykhringjum Eldfjallið Etna á Sikiley, stærsta virka eldfjall í Evrópu, hefur blásið fallegum reykhringjum síðan á miðvikudag. Eldfjallafræðingur segir ekkert fjall hafa blásið jafnmörgum hringjum og Etna gerir nú. 7.4.2024 07:55
Fór út með hundinn og var rændur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi eftir að tveir menn réðust á mann sem var út að ganga með hundinn sinn og rændu hann verðmætum. 7.4.2024 07:18
Halla Hrund boðar til fundar á Kirkjubæjarklaustri Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri mun tilkynna ákvörðun sína um mögulegt forsetaframboð á fundi á Kirkjubæjarklaustri klukkan 14 á morgun. 6.4.2024 15:15
„Aldrei teflt í tvísýnu með öryggi gesta eða starfsfólks“ Fyrstu gestirnir í þrjár vikur dýfðu tánum í Bláa lónið klukkan tólf á hádegi. Framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu fagnar opnuninni og segir fyllsta öryggis gætt. 6.4.2024 13:23
Hádegisfréttir Bylgjunnar Framtíð ríkisstjórnarinnar er enn í óvissu en leiðtogar funda í dag. Formaður Flokks fólksins væntir þess að kosið verði í haust. Farið verður yfir stöðu mála í hádegisfréttum. 6.4.2024 11:56
Kæran felld niður Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fellt niður mál forystukvenna söfnunar fyrir brottflutning Palestínumanna af Gasa. Hæstaréttarlögmaður hafði kært þær fyrir að brjóta lög um opinberar fjársafnanir, mútugreiðslur til erlendra opinerra starfsmanna og fjármögnun hryðjuverka. 6.4.2024 10:54
Ólafur Ragnar við CNBC: Afleiðingarnar „gífurlegar“ ef Bandaríkin tækju Grænland með valdi Erlent